Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 78
78 Jólablað Morgunblaðsins
Polarolje
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
Pöntunarsímar 698 7999 og 699 7887
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera á
sterum án árangus. Reynt var að
skipta um fæði sem bar heldur ekki
árangur. Eina sem hefur dugað
er Polarolje fyrir hunda. Eftir að
hann byrjaði að taka Polarolje
fyrir hunda hefur heilsa hans tekið
stakkaskiptum. Einkennin eru horfin
og hann er laus við kláðann og
feldurinn orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
E
in stærsta spurningin
sem svara þarf í sam-
bandi við jólahald er það
hvað eigi að vera í jóla-
matinn. Á Íslandi er al-
gengast að hamborgarhryggur sé á
boðstólum á aðfangadag en fleiri
hefðir hafa rutt sér til rúms og fest í
sessi. Margar fjölskyldur eru með
rjúpur, hreindýrasteik eða aðra villi-
bráð í jólamatinn og margir hafa það
fyrir sið að vera með lambalæri,
reykt eða nýtt. Á undanförnum ár-
um hefur það færst verulega í vöxt
að matreiða kalkún að amerískum
sið.
Hentar í fjölmenn matarboð
Blaðamaður tók hús á Auði Styrk-
ársdóttur, forstöðukonu Kvenna-
sögusafns Íslands, og Svani Krist-
jánssyni, prófessor í stjórnmála-
fræði, en þar hefur kalkúnn verið á
boðstólum í nokkur ár í 12-14 manna
jólaboði sem þau halda á annan í jól-
um. Margar sögur eru sagðar í fjöl-
skyldinni af gæðum kalkúnsins.
Auður ber hitann og þungann af
þessari eldamennsku og þykir henni
takast vel að gera kjötið bragðgott
og safaríkt. „Við byrjuðum á þessu
fyrir nokkrum árum, eftir að fjölga
fór verulega í jólaboðunum hjá okk-
ur. Þegar fjöldinn var kominn yfir
tíu manns hefði þurft að hafa minnst
tvö lambalæri og okkur langaði að
prófa eitthvað nýtt,“ segir Auður.
Stór kalkúnn dugar í matinn fyrir
þennan hóp. Þetta féll strax í góðan
jarðveg en bragðið af kalkúninum er
nokkuð sem öllum hópunum virðist
líka, að sögn Auðar.
Galdurinn
Auður er fljót að svara þegar hún
er spurð hver galdurinn sé við að
halda kalkúninum frá því að verða of
þurr. „Trixið er engar tilfæringar.
Öfugt við marga af þessum sjón-
varpskokkum sem ég hef séð sný ég
bringunum niður allan tímann. Fyrir
steikingu losa ég skinnið frá bring-
unum og set smjör, með salti, pipar
og kryddjurtum undir skinnið, næst
bringunum. Þar með er öllum tilfær-
ingum lokið og kalkúnninn er í ofn-
inum á sömu hlið allan tímann. Ég
smyr hann meðan á steikingu send-
ur svona af og til en ekkert mjög oft.
„Hvar fékkstu þessa hugmynd að
láta bringuna snúa niður?“ spyr
Svanur og ekki stendur á svari: „Það
vita þetta allar húsmæður í Am-
eríku. Þær láta ekkert sjónvarps-
kokka glepja sig. Þetta kemur fram í
gömlum amerískum matreiðslubók-
um og amerískar húsmæður hafa
vitað þetta lengi,“ svarar Auður að
bragði.
Rjúpur og lambalæri
Auður ólst upp við rjúpur á að-
fangadag en Svanur vandist lamba-
lærinu. Bæði eru svo vön að fá
hangikjöt á jóladag. „Mér finnst kal-
kúnninn mjög góður matur en hann
er léttur í maga og manni líður vel af
því að borða hann,“ segir Svanur.
Hann segir að í Bandaríkjunum sé
þakkargjörðarhátíðin mun meiri og
almennari hátíð en jólin. „Menn geta
allt að því sagt sig úr fjölskyldum ef
þeir mæta ekki í þakkargjörðarmat-
inn þar í landi en jólin eru hins vegar
ekki eins mikið mál enda stórir hóp-
ar fólks þar sem ekki halda jól. Kal-
kúnninn er rík hefð í Bandaríkj-
unum og líklega ein ríkasta hefðin í
landinu, sérstaklega á
þakkargjörðarhátíðinni. Þar í landi
er oft haldið mjög fast í hefðirnar
sem orðið hafa til í fjölskyldum og
hlutirnir alltaf hafðir eins.“ Þau
hjónin eru yfirleitt með lambalæri á
aðfangadag, hangikjöt á jóladag en á
annan í jólum eru þau með boð með
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum. Þá er kalkúnninn mat-
reiddur. „Það er svo gott að vera
með kalkúninn á eftir hangikjötinu,
hann er svo léttur í maga,“ segir
Auður.
Ung hefð
Kalkúnahefðin hjá Auði og Svani
er ung en í fjögur ár hefur kalkún-
ninn orðið fyrir valinu í matinn í jóla-
boðinu. Þau segja að þegar hefðir
eru svona ungar þá leyfi maður sér
að gera tilraunir og hafa hlutina ekki
alltaf eins. Til dæmis voru þau fyrst
með fyllingu í kalkúninum en þegar
hún var aldrei borðuð hættu þau því.
Þau sögðust hins vegar strax hafa
komist upp á lag með að elda fuglinn
og lítið hróflað við því. „Það er verst
að hafa ekki uppgötvað kalkún fyrr
því að þetta er virkilega góður mat-
ur sem öllum, sérstaklega krökkum,
þykir gaman að borða,“ segja Auður
og Svanur að lokum.
Magn af kjöti taki mið
af meðlæti
Ef miða á við að hver fullorðinn
borði 400-500 g af kjöti lætur nærri
að 6-7 kílóa kalkúnn dugi fyrir 12-14
manns. Þá er hins vegar ekki líklegt
að mikill afgangur verði daginn eftir.
Þetta veltur einnig á því hversu mik-
ið meðlæti er haft, en því meira sem
er af því, því minna þarf líklega af
kalkún. Þetta þarf hver að meta út
frá sinni fjölskyldu, aldri fjölskyldu-
meðlima, matarlyst og hvort ætlunin
sé að geyma eitthvað fram á næsta
dag. Magnið af kryddjurtum er ekki
tiltekið.
Kalkúnn
6-7 kg kalkúnn
500 g smjör
salt
pipar
rósmarín (í sérstöku uppáhaldi
hjá Auði með kalkúninum)
kóríander
salvía
timían
Skinnið losað frá bringum, ekki þó
tekið af.
250 g af mjúku smjöri hrært sam-
an við salt, pipar og kryddjurtir eftir
smekk.
Kryddsmjörinu smurt á bringuna,
undir skinnið.
Ef ekki stendur til að vera með
fyllingu er gott að salta og pipra
fuglinn að innan.
Binda saman leggina ef þörf er á,
sérstaklega ef sett er fylling.
Það sem eftir er af smjörinu er
brætt og salti og pipar bætt út í eftir
smekk. Fuglinn smurður vel í byrj-
un og síðan á 30-40 mínútna fresti.
Ofninn hitaður í 200 gráður og
fuglinn settur með bringuna niður
og hafður þar í 30 mínútur á þeim
hita.
Að þeim tíma liðnum er hitinn
lækkaður í 180 gráður í tvo klukku-
tíma og síðan lækkaður í 110 gráður
í einn og hálfan tíma eða þar til kjöt-
hitamælir í læri sýnir 70-75 gráður.
Borinn fram með trönuberjasultu,
brúnni smjörbollusósu úr soðinu og
sætum eða brúnuðum kartöflum.
halldorbach@gmail.com
Léttur í maga og mjúkur undir tönn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gómsætur Þegar matarboðin eru orðin fjölmenn er hentugt að matreiða kalkún. Hann virðist falla vel í kramið í fjölskyldu Auðar og Svans.
Auður Styrkársdóttir og
Svanur Kristjánsson
tóku upp á því fyrir
fjórum árum að vera
með kalkún í matinn í
jólaboði sem þau halda
fyrir börn, tengdabörn
og barnabörn á annan
jóladag. Þeim þykir
verst að hafa ekki upp-
götvað kalkúninn fyrr.
’Trixið er engar til-
færingar. Öfugt við
marga af þessum
sjónvarpskokkum
sem ég hef séð sný
ég bringunum nið-
ur allan tímann.
Veislumatur Þennan fyllta kalkún útbjó Pálmar Halldórsson mat-
reiðslumaður. Ljúffengur og léttur valkostur við reykt kjöt og saltað.