Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 84
84 Jólablað Morgunblaðsins
D
esember er yndislegur
mánuður; ljósadýrð,
stemning, aðventan –
og freistingar,“ segir
Lína Guðnadóttir
einkaþjálfari. „Það er eiginlega
sama hvert við förum í desember,
það flæðir allt í sælgæti og konfekti,
smákökum og jólagosi. Margir
tengja aðventuna við slíkt góðmeti
og vilja halda í þá siði og það er vel
hægt að gera það, innan ákveðinna
marka. Regla númer eitt er að gera
plan og átta sig á því að það eru
ekki alltaf jólin. Jólin eru að-
fangadagskvöld og jóladagur, tveir
dagar.“ Lína segir best að skipu-
leggja sig og taka einn dag í einu,
bæði hvað varðar næringu og hreyf-
ingu.
„Ekki taka þér frí frá heilsurækt-
inni í desember, haltu áfram. Það er
ekki bara hressandi heldur líka
streitulosandi. Ef við erum dugleg
að mæta í ræktina, fara út að ganga
eða taka sundsprett, þá er miklu
minna mál að halda næringunni
góðri. Við eigum auðveldara með að
velja vel og af hófsemi.“
Bakað og borðað
Lína bendir á að hægt sé að velja
heimagerðar smákökur og konfekt í
hollari kantinum eða baka ljúffeng-
ar vöfflur sem allir elska, með sultu
án viðbætts sykurs og rjóma.
„Á mínu heimili höfum við fyrir
sið á aðventunni að baka smákökur
á sunnudögum. Þá veljum við eina
sort sem öllum þykir góð og njótum
þess að borða þær við ljósið frá að-
ventukertunum. Einnig er um að
gera á aðventunni að gæða sér á
einu besta konfektinu sem fáanlegt
er í desember, mandarínum,“ segir
Lína. Bætir við að oft og iðulega sé
einn helsti lykillinn að því að ná ár-
angri í heilsueflingu að ná stjórn á
mataræðinu, alla daga ársins. Fast
á eftir fylgja svo hreyfing og nægur
svefn.
„Vikan á milli jóla og nýárs getur
verið strembin hjá sumum í jólaboð-
um og veislum. Gott er að búa sig
undir þessa hátíðisdaga í huganum
og borða af hófsemi í jólaboðunum.
Í rauninni er þetta mjög einfalt. Það
sama gildir í desember og allt árið;
hreyfðu þig á hverjum degi, sofðu
nóg, drekktu vel af vatni, forðastu
sykraða safa og gos. Slepptu sæl-
gæti og smákökum á virkum dög-
um, líka í desember. Fáðu þér einu
sinni á diskinn, borðaðu mikið af
grænmeti og veldu deserta í hófi.
Með þessum hætti passa allir áfram
í fötin sín eftir hátíðirnar.“
Hætt í megrun
Sjálf sneri Lína við blaðinu fyrir
nokkrum árum, gjörbreytti mat-
aræðinu og tók upp nýjan lífsstíl.
„Ég eignaðist þrjár dætur á fjór-
um árum og aukakílóin hrönnuðust
upp. Í ársbyrjun 2009 horfðist ég
loks í augu við að líkamsþyngd mín
var orðin hættuleg heilsu minni. Ég
ákvað að snúa vörn í sókn og styðj-
ast við máltækið: Góðir hlutir ger-
ast hægt. Ég ætlaði ekki í enn eitt
megrunarátakið heldur einsetti mér
að hreyfa mig meira og læra að
velja réttan mat ofan í mig, alla
daga ársins. Ég naut leiðsagnar og
þjálfunar hjá frábærum einkaþjálf-
ara og er nú, tæpum fjórum árum
síðar, 30 kílóum léttari. Þessi breyt-
ing hafði svo mikil áhrif á mig og
mitt líf að ég ákvað að leggja fyrir
mig einkaþjálfun. Nú er það gleði
en ekki kvöð að hreyfa mig.“
Amerískt jólaþorp
Lína segist vera mikið jólabarn
og hún er stolt af ameríska jóla-
þorpinu sínu.
„Mig dreymdi lengi um að eignast
fallegt jólaþorp, eins og maður sér
stundum í jólamyndum frá Am-
eríku. Ég eignaðist svo fyrsta vísinn
að jólaþorpinu á ferðalagi um
Bandaríkin árið 2005. Ég keypti
nokkur hús og fólk, ásamt jólatrjám
og gervisnjó. Eftir það hef ég farið
nokkrum sinnum yfir hafið og alltaf
tekið eitthvað nýtt í þorpið með mér
heim. Það er ótrúlega góð blanda af
rómantík og hátíðleika að sitja seint
um kvöld með öll ljósin í stofunni
slökkt og horfa á upplýst jólaþorp-
ið,“ segir Lína.
„Dæturnar á heimilinu hafa búið
til margar sögur um fólkið sem þar
býr og er á ferli. Sögur um það
hvaðan fólkið er að koma og hvert
það er að fara. Þorpið hefur fengið
nafnið Þorláksmessa, af því að þar
er alltaf svo mikil stemning. Ég
held að jólaþorpið verði ekki stærra
en ég ætla að halda áfram að safna
hnetubrjótum og svo er draumurinn
að eignast fallega jólalest sem nær
utan um jólatréð í miðri stofunni.“
Börnin skreyta pakka
Lína segist hafa mikla ánægju af
því að pakka inn jólagjöfum enda
finnst sé umbúðirnar vera hluti af
gjöfinni.
„Dætur mínar hafa gaman af
þessu með mér. Við pökkum gjarn-
an jólagjöfum inn í brúnan pappír
sem fæst í öllum bókabúðum og í
Amerískt „Mig dreymdi lengi um að eignast fallegt jólaþorp, eins og maður sér stundum í jólamyndum,“ segir Lína. Hún eignaðist fyrstu jólahúsin árið 2005 og er enn að bæta í safnið.
Gott í hófi
Lína Guðnadóttir einkaþjálfari segir vel hægt að
njóta jólanna án þess að borða yfir sig og heilsa
nýju ári laus við allt samviskubit.
Molar Hollt og gott jólakonfekt sem enginn fær staðist.
Morgunblaðið/Ómar
Jólastelpa Línu Guðnadóttur dreymir um að eignast fallega jólalest sem nær utan um tréð í miðri stofunni.