Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 112
Morgunblaðið/Ómar
Hönnunarhús „Við lítum gjarnan á okkur sem segulstál og samkomustað í senn, fyrir alla innlenda og erlenda
unnendur og áhugafólk um íslenska hönnun,“ segir Thelma Björk Jónsdóttir, verlsunarstjóri hjá ATMO.
112 Jólablað Morgunblaðsins
SCOTTISH FINE SOAPS
HÚÐ OG BAÐVÖRUR FRÁ
LÚXUS Í JÓLAPAKKANN
tla jólasápan
Fást í helstu apótekum og sérverslunum um land allt
A
TMO er verslun með
vörur eftir íslenska
hönnuði á þremur hæð-
um. Þá er í kjallaranum
að finna verslunina 9 líf
sem býður upp bæði fatnað og hús-
muni sem leita framhaldslífs með
nýjum eigendum,“ útskýrir Thelma.
„Vörurnar þar eru sérvaldar af stíl-
istum hússins sem starfa með Góða
hirðinum og Rauða krossi Íslands,
sem nýtur góðs af starfseminni.
Aðgangur að íslenskri hönnun
Yfirlýst markmið ATMO er að
auðvelda aðgang að íslenskri hönnun
enda er hvergi að finna annað eins
úrval af íslenskri hönnunarvöru á
einum stað. „Við viljum auka veg og
virðingu íslenskrar hönnunar um leið
og við kappkostum að aðstoða ís-
lenska hönnuði við að selja sína
hönnun, bæði hérlendis og erlendis,
þannig að þeir geti sett tíma sinn
sem mest í að hanna og þróa nýjar
vörur,“ segir Thelma. „Við lítum
gjarnan á okkur sem segulstál og
samkomustað í senn, fyrir alla inn-
lenda og erlenda unnendur og áhuga-
fólk um íslenska hönnun. Það er gríð-
arleg gróska í gangi og margt
spennandi hjá okkur að skoða. Svo er
bara gaman að koma við og upplifa
sköpun og nýjustu strauma á Ís-
landi.“
Jólaföt eftir íslenska hönnuði
Sem fyrr segir er af mörgu að taka
í ATMO-húsinu og því kjörið að kíkja
þar á jólafötin. Meðal hönnuða og
merkja sem til sölu eru í ATMO eru
Bóas Kristjánsson, Steinunn, Spaks-
mannsspjarir, Skaparinn, Sonja
Bent, Marta Jónsson, Hlín Reykdal,
Huginn Muninn, Hildur Yeoman,
Birna og Gló, og er þá fátt eitt talið
upp. Jólablaðið fékk þær Ástu Krist-
jánsdóttur og Thelmu Björk í lið með
sér til að fá nokkrar góðar hug-
myndir að fötum fyrir jólin.
jonagnar@mbl.is
Hálsmen: Hildur
Yeoman.
Jólaföt frá íslensk-
um hönnuðum
Yfir 60 vörumerki hönnuða eru samankomin í ATMO á Laugavegi. Þar á
meðal er fatnaður, skór, gjafavara, snyrtivörur, skartgripir, tónlist og bækur,
eins og Thelma Björk Jónsdóttir verslunarstjóri segir frá.
’Af mörgu að taka í
ATMO og því kjör-
ið að kíkja þar á
jólafötin.
Svartur kjóll: Skaparinn.
Gylltur kjóll yfir: Skaparinn.
Skór: Marta Jónsson.