Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012 Þegar næðir inn um hverja glufu er gott að halla sér aftur með góða bók. Eins og bókalisti vikunnar á bókaopnu blaðsins sýnir glöggt er fjölbreytnin mikil sem endranær. Bækur um jafn ólík efni og hár- greiðslur, drauga, knattspyrnu, líf án maka og limrur verma efstu sætin. Ef listinn yfir allar bækur er skoðaður sést að þar færist mömmuklám E.L. James neðar eftir því sem jólabókunum fjölgar í hillum verslana og titlar úr ólík- um áttum raða sér í efri sætin. Limrubók Péturs Blöndal vermir 6. sæti listans og er í öðru sæti á eftir Húsi Stefáns Mána á lista yf- ir innbundin skáldverk, ljóðabæk- ur og hljóðbækur. Bókin Hárið eftir Theodóru Mjöll Skúladóttur með myndum eftir Sögu Sigurð- ardóttur vermir toppsætið á list- anum yfir allar bækur að þessu sinni, en í blaði dagsins fáum við leiðbeiningar um hárgreiðslu upp úr bókinni. Þótt við getum sannarlega yljað okkur við góðar bækur úr ýmsum áttum þá er vert að hafa í huga að maður er manns gaman. Bækur og blöð eru góð til síns brúks en koma ekki í staðinn fyrir nærveru, samtöl og vináttu. Þegar veðurguðirnir sýna mátt sinn er tækifæri til að þjappa sér saman og ef til vill leyfa kertaljósi að njóta sín. Ljósið getum við not- að til að minna okkur á að það hafa ekki allir komist heilir frá duttlungum íslenskrar veðráttu. Í gegnum tíðina hafa sem betur fer ófáir notið liðsinnis björgunar- sveita og slysavarnafélaga víða um land við að komast niður af fjöllum og losna úr óbyggðum. Með því að festa kaup á lítilli lyklakippu – Neyðarkalli – styrkj- um við sjálfboðið starf fólks sem hættir sér út í hvaða veðri sem er allan ársins hring. Þeim pen- ingum er vel varið. RABBIÐ Kúrt í hvassviðri Eyrún Magnúsdóttir Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin er löngu búin að festa sig í sessi sem hápunktur tónlistarársins á Íslandi. Sköpunarkrafturinn er jafnan þar allsráðandi en í ár hafa önnur náttúruöfl sett sinn svip á hátíðina, nefnilega rokið. Kapphlaupið er venjulega mikið milli tónleika en í þetta skiptið hefur fólk hreinlega fok- ið milli staða. En inni er stuð og stemning sem fyrr og besta ráðið er að dansa eða slamma sér til hita. Hljómsveitin Sykur hélt svo sannarlega uppi stuð- inu í Silfurbergi í Hörpu en á meðfylgjandi mynd sést söngkona sveitarinnar fara á kostum. Hátíðin í ár er haldin um tveimur vikum síðar en venjulega en þessi tilfærsla þýðir vonandi ekki að fyrsti gesturinn sem bóki sig á hátíðina í framtíðinni verði kuldaboli eða einhver af hans félögum. ingarun@mbl.is AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Styrmir Kári ROK OG RÓL Í BÆNUM ICELAND AIRWAVES-HÁTÍÐIN SETUR MARK SITT Á LÍFIÐ Í MIÐBÆ REYKJAVÍKUR ÞESSA HELGINA OG SÖMULEIÐIS ROKIÐ. SKÖPUNARKRAFTURINN SEM EINKENNIR HÁTÍÐINA ER ALLTAF SÁ SAMI OG FÓLK DANSAR SÉR TIL HITA. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Óperukórinn í Reykjavík Hvar? Langholtskirkja Hvenær? Kl. 17.00 Nánar? www.operukorinn.is Petite Messe Solenelle Hvað? Tónleikar Sigurrósar Hvar? Í Laugardalshöll Hvenær? Kl. 19.00 Nánar Hægt er að kaupa miða sér- staklega á tónleikana óháð Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni á www.midi.is Tónleikar Sigurrósar Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Friðrik Ómar Hvar? Hamra- borg, Hofi Hvenær? Kl.21.00 á laugardag Nánar Syngur frumsamið efni af sólóplötu. Frumsamið frá Friðriki Hvað? „Off venue“ viðburðir Hvar? Víða á höfuðborgarsvæðinu Hvenær? Um alla helgina Nánar www.icelandairwaves.is Frítt á Iceland Airwaves Hvað? Safnahelgi á Suðurlandi. Við- burðir handverks- og listafólks. Hvar? Um allt Suðurland. Hvenær? Um helgina Nánar www.sunnanmenning.is Safnahelgi á Suðurlandi Hvað? Hljómsveitin Thin Jim Hvar? Græni hatt- urinn á Akureyri Hvenær? Kl.22.00 á laugardag Nánar www.fa- cebook.com/graenihatturinn Thin Jim útgáfutónleikar Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Skúla Mogensen í Skerjafirðinum.*

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.