Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Blaðsíða 22
Þegar þau slógu í gegn MEÐ HJÁLP DAGBLAÐA, GAMALLA AUGLÝSINGA, UPPSKRIFTARBÓKA FRÁ ÝMSUM TÍMUM OG FRÓÐLEIKSFÓLKS MÁ LEIÐA AÐ ÞVÍ LÍKUM HVENÆR NOKKRAR VINSÆLAR GRÆNMETIS- OG ÁVAXTATEGUNDIR SLÓGU FYRST ALMENNILEGA Í GEGN HÉRLENDIS. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is * 2004SÆTAR KARTÖFLUR Sætar kartöflur voru farnar að fást í verslunum í kringum 1995 en voru ekki algengar. Í kringum 2003-2005 var eins og kartöflurnar féllu skyndilega í kramið og sætar kartöflur að finna í annarri hverri uppskrift. * 1995KJÚKLINGABAUNIR Árið 1995 opnaði veitingastaðurinn Grænn kostur sem hafði mikil áhrif. Kjúklingabaunir voru þó farnar að þekkjast hérlendis í kringum 1988. Lík- lega hefur hummusgerð eflt vinsældir kjúklingabauna sem urðu vinsælar um það leyti sem Grænn kostur opnaði. * 1985 ENGIFEREngifer fór að fást í verslunum þegar asísk matargerð varð vinsæl upp úr 1980. Í kringum 1985 var hráefnið orðið vinsælt hráefni til matar- gerðar og þótti einnig fyrir- taks flensumeðal. Síðari árin hefur það einkum tengst hinum og þessum megrunar- kúrum. * 1993 LIME Ákveðin tegund af mexíkóskum bjór í flöskum varð afar vinsæl á skemmtistöðum í kringum árið 1993 og var þá hafður sá háttur á að sneið af lime var troðið ofan í stút flöskunnar. Vinsældirnar urðu fádæmar í kjölfarið en ávöxt- urinn hafði fengist hérlendis frá árinu 1980. * 1950 AGÚRKA OG TÓMATAR Fjölgun gróðurhúsa og garðyrkjumanna og almenn hvatning til neyslu á grænmeti, til að mynda frá Helgu Sigurðardóttur, á sinn þátt í að í kringum 1950 eru flestir farnir að þekkja tómata og gúrkur. Tómatneysla er rúmlega kíló á mann á ári og gúrkuneysla þá rúmlega 1 stykki. 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012 Hreyfing og heilsa  Regluleg hreyfing og æfingar á efri árum geta hægt á og verndað gegn hrörnun heilans en slík hrörnun hefur mikil áhrif á minni fólks og skýra hugsun. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í tímaritinu Neurology en vísindamenn við Háskólann í Edinborg fylgdust með rúmlega 600 einstaklingum í þrjú ár. Allir sem tóku þátt í rannsókninni voru komnir yfir sjötugt.  Miklu máli skiptir hvort það er svefnlaus kona eða karlmaður sem sest að snæðingi illa sofinn. Eldri rannsóknir hafa sýnt að tengsl eru á milli of lítils svefns og offitu. Lítill svefn virðist þó ekki hafa sömu efnafræðilegu áhrif á karl og konu en bæði kyn hafa þó jafnmikla þörf fyrir aukahitaeiningar daginn eftir. Munurinn er sá að sögn vísindamanna við Columbia- háskólann að hjá karlmönnum eykst matarlystin, án þess að þeir finni beinlínis til svengdar, meðan kon- um líður eins og þær hafi ekki borðað neitt og finnst þær vera með tóman maga.  Unglingar sem nota snjallsíma eru líklegri til að stunda áhættusamt kynlíf. Niðurstöður rannsóknarinnar sem gerð var af Háskólanum í Suður-Kaliforníu; Menntastofnun fé- lagsfræði í Los Angeles, voru kynntar í vikunni. Unglingar sem hafa aðgang að netinu í símum sínum eru líklegri til að stunda óábyrgt kynlíf og skipuleggja að hitta ókunnugt fólk eða manneskjur sem þeir rétt kannast við en þeir sem hafa ein- ungis aðgang að netinu í gegnum tölvu.  Þunglyndi og streita geta valdið því að ungar kon- ur nota síður getnaðarvarnir en þær sem eru afslapp- aðri og líður vel. Bæði voru þær líklegri til að sleppa getnaðarvörnum alveg og stór hluti kvenna sem leið illa var líklegur til að nota þær aðeins stöku sinnum. Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar í vikunni á árlegri ráðstefnu America Public Health Associa- tion. Tæplega 700 konur tóku þátt í rannsókninni.  Unglingar sem eru yfir kjörþyngd eru líklegri til að þurfa að glíma við nýrnasjúkdóma síðar á lífsleiðinni. Rannsóknin var unnin í Ísrael þar sem stór hópur 17 ára gamalla unglinga tók þátt. Niðurstöður leiddu í ljós að of þungir unglingar eru þrisvar sinnum líklegri til að enda sem nýrnasjúklingar. Rann- sóknin er afar ýtarleg en unnið var að henni í 25 ár.  Flensusprauta getur ekki aðeins minnkað líkurnar á því að fólk veikist heldur minnkar hún einnig líkurnar á því að viðkomandi fái hjartaáfall. Rannsóknin sem gaf þessar niðurstöður var unnin í Kanada og var kynnt á læknaráðstefnu í Toronto í síðasta mánuði. Í ljós kom að þeir sem ekki þáðu flensusprautu voru 50 sinnum líklegri til að fá hjartaáfall en þeir sem þáðu sprautuna.  Þrátt fyrir að rannsóknir sýni fjölmarga kosti þess að taka inn D-vítamín hefur vítamínið engin áhrif í baráttunni gegn vetrarflensum. Í nýsjálenskri rannsókn voru 322 einstaklingar rannsakaðir og þeir sem tóku reglulega inn D-vítamín náðu sér ekki sjaldnar í flensur en þeir sem gerðu það ekki. FREGNIR ÚR HEILSUHEIMINUM Hitt og þetta nýtt úr heilsutengdum rannsóknum Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.