Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Blaðsíða 40
3 Rúllaðu hárinu inn
með vísifingri og baug-
fingri annarrar handar.
5 Dragðu
fingurna ró-
lega úr vafn-
ingnum og
leggðu sömu
hönd ofan á
hann. Festu
hárið betur
niður með
spennum/
hárpinnum.
Gerðu nú ná-
kvæmlega eins
við neðra
taglið.
É
g hef fengið til mín mikið
af stelpum með sítt hár
og hef alltaf varið miklum
tíma eftir klippinguna í
að kenna þeim greiðslur, hvernig
á að setja krullur og bara al-
mennt um hvernig á að hugsa
um hárið á sér,“ segir Theodóra
Mjöll Skúladóttir um hvernig
hugmyndin að bókinni Hárið
kviknaði.
„Mér fannst vanta fræðslu um
hvað þú átt að gera alla hina
dagana sem þú ert ekki nýbúin í
klippingu. Ég fór að leita út um
allt að svona bókum og komst að
því að þetta var ekki til. Mér
fannst kominn tími til að prófa
að gefa út svona bók sem hægt
er að fletta upp í og sýnir skref
fyrir skref bæði einfaldar og
flóknar greiðslur. Ég hef líka
sankað að mér greiðslum lengi
og átti því efni sem hefði getað
fyllt fleiri bækur,“ segir Theo-
dóra. Salka gefur bókina út en í
henni er að finna yfir 70
greiðslur fyrir sítt og millisítt
hár.
Stundar nám í vöruhönnun
Theodóra útskrifaðist úr hág-
reiðslu árið 2008 en stundar nú
nám í vöruhönnun við Listahá-
skóla Íslands. Sem stendur er
hún þó í fæðingarorlofi því hún
eignaðist nýverið sitt fyrsta barn.
Hún segist vera föndrari í sér.
„Ég hef eiginlega alltaf haft
meira gaman af því að greiða
hár en að klippa og lita. Það
hentar mér vel að vinna í hönd-
unum og í raun er vöruhönnunin
nátengd því sem ég hef verið að
gera,“ segir Theodóra.
Hún segir vel koma til greina
að gefa bókina út víðar, t.d. á
Norðurlöndunum. „Það er alveg
inni í myndinni, þetta er allt í
skoðun,“ segir Theodóra.
Kuðungur
Þessi greiðsla er ein af
mörgum í bókinni en
er einfaldari en hún
lítur út fyrir að vera.
1 Skiptu hárinu í
tvennt, þvert yfir
hvirfil og settu báða
hlutana í tagl. Taktu
einn lokk frá úr efra
taglinu og snúðu hon-
um utan um teygjuna.
Spenntu niður end-
ann á lokknum með
því að setja spennuna
undir teygjuna, þann-
ig sést hún ekki.
GEFUR ÚT BÓK UM HÁR OG GREIÐSLUR
Vantaði
bók um
„hina dagana“
NÚ ER ENGIN AFSÖKUN LENGUR FYRIR ÚFNU HÁRI
ÞVÍ Í BÓKINNI HÁRIÐ ERU EINFALDAR LEIÐBEININGAR
UM HÁRUMHIRÐU OG FLOTTAR GREIÐSLUR.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Theodóra Mjöll Skúladóttir.
4 Haltu vafn-
ingnum þéttings-
fast með fingr-
unum fyrir
neðan teygjuna.
Spenntu hárið
vel niður sitt-
hvorumegin við
vafninginn.
2 Túperaðu und-
ir taglið til þess
að fá fyllingu.
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012
Föt og fylgihlutir