Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Blaðsíða 57
SAGA BÍLS-
INS OG
KENNSLA
Í LJÓS-
MYNDUN
Bílaáhugamenn fá sann-
arlega bók við sitt hæfi í
bókinni Bílar í máli og
myndum. Þar er saga
bílsins rakin í máli og
myndum. Um 1.200 bílar
af öllum stærðum og
gerðum koma við sögu
og sagt er frá vélum, teg-
undunum og mönnunum bak við hönnunina. Bókin er í stóru broti og ríkulega mynd-
skreytt. Vegleg jólagjöf handa bílanördum.
Þeir sem hafa áhuga á ljósmyndun verða vitanlega að eiga bók við hæfi. Stafræn ljós-
myndun skref fyrir skref er slík bók. Höfundurinn Tom Ang er verðlaunaljósmynd-
ari, sjónvarpsþáttastjórnandi og metsöluhöfundur. Í bókinni kennir hann lesendum að
ná góðum tökum á ljósmyndun og fjallar um helstu nýjungar í stafrænni ljósmyndun.
4.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Landvættir, skáldsaga
Ófeigs Sigurðssonar,
fjallar um Sókrates, ung-
an mann sem vinnur í
kjötvinnslu, og kynnist
þar formanni Þjóðernis-
hreyfingarinnar. Þetta er
metnaðarfullt verk,
tæplega 500 blaðsíður
og ekki gallalaust, en
það besta er gríðarlega
vel gert. Ófeigur er
hæfileikamikill höfundur,
vel skrifandi og getur
verið bæði fyndinn og
beittur.
Áhuga-
verður
rithöfundur
Íslenskir rithöfundar leika sér gjarnan að
því að setja þekkta Íslendinga inn í skáld-
verk sín undir nýjum nöfnum. Kunnugir
segja að einmitt þetta geri Stefán Máni í
nýútkominni bók sinni Húsinu.
Blaðamaðurinn Mikael er meðal per-
sóna í bókinni og vinnur á DV. Ritstjóri
hans er aukapersóna í bók-
inni en lýsing á útliti hans
og klæðaburði er nokkuð
nákvæm. Hann er fyrrver-
andi togarasjómaður,
klæddur í bláa vinnuskyrtu
og þröngar gallabuxur, „til
að minna sig á sjálfan sig
og aðra á brimsaltan upp-
runann,“ eins og segir í sögunni. Um háls-
inn er hann með ísbjarnarkló í leðuról og
með kúrekahatt á höfði. Þessi lýsing þykir
minna allnokkuð á Reyni Traustason nú-
verandi ritstjóra DV sem er gamall sjóari,
gengur með hatt og er einmitt iðulega með
ísbjarnarkló um hálsinn. Stefán Máni. Nýja bókin hans er Húsið.
Morgunblaðið/Kristinn
KUNNUGLEGUR RITSTJÓRI Í HÚSINU
Reynir Traustason
Nýjasta bók Gyrðis Elíassonar
er Suðurglugginn og aðal-
persónan er einrænn rit-
höfundur sem dvelur í sum-
arhúsi og skrifar skáldsögu –
en verkið gengur ekki vel.
Gyrðir sannar enn og aftur
snilli sína í bók sem er frá-
bærlega vel stíluð og full af
stemningum, sumum afar
þunglyndislegum. En þarna er
ekki bara myrkur því lúmskur
húmor höfundar hefur senni-
lega aldrei notið sín betur en
í þessu listilega vel gerða
verki.
Meistaralegur
Gyrðir
Skáldverk, dag-
bók og barnabók
FORVITNILEGAR BÆKUR
GYRÐIR ELÍASSON, EINN FREMSTI RITHÖFUNDUR
OKKAR, SENDIR FRÁ SÉR SKÁLDSÖGU OG ÞAÐ GERIR
EINNIG ÓFEIGUR SIGURÐSSON SEM SANNAR AÐ
HANN Á FRAMTÍÐINA FYRIR SÉR Á RITVELLINUM.
DAGBÓKARSKRIF KRISTJÁNS ELDJÁRNS ÚR FERÐ
HANS TIL NÝFUNDNALANDS RATA Á PRENT OG
ÞÝDD BÓK EFTIR JACQUELINE WILSON ER KOMIN ÚT.
Barnabókahöfundar gerast ekki mikið betri en
Jacqueline Wilson, enda njóta verk hennar gríð-
arlegra vinsælda meðal barna og unglinga víða um
heim. Henni tekst fádæma vel að skrifa um erfið efni
án þess að það verði yfirþyrmandi og stíll hennar er
léttur og leikandi. Í þessari bók segir frá Ellu sem býr
með móður sinni og stjúpa sem hún kann ekki við. Móðirin fæðir barn en
fellur eftir það í dá. Ella og stjúpinn þurfa að sjá um nýja barnið og það
reynir á samskiptin meðan þau vona að móðirin vakni.
Ung stúlka þarf að
standa sig
Sumarið 1962 fór Kristján Eldjárn þjóð-
minjavörður í rannsóknarleiðangur til
Nýfundnalands ásamt félögum sínum. Hann
hélt dagbók um ferðina en þau skrif hafa
ekki birst á prenti fyrr en nú. Kristján var
afar góður stílisti, með næma athyglisgáfu
og texti hans er grípandi og svo skemmti-
lega persónulegur að lesandanum finnst eins
og verið sé að tala til sín. Þórarinn Eldjárn
skrifar inngangsorð og Adolf Friðriksson
fornleifafræðingur skrifar fróðlegan eftir-
mála.
Í fylgd með
Kristjáni Eldjárn
* Ég get ekki gengið og get ekki andað –en annars líður mér bara vel.Benedikt Gröndal
BÓKSALA 24.-30. 10.
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Pennanum-Eymundssyni.
1 HáriðTheodóra Mjöll / Saga Sig
2 Makalaust lífAnna Ingólfsdóttir ofl.
3 Iceland - Small World - small ed.Sigurgeir Sigurjónsson
4 HúsiðStefán Máni
5 Aukaspyrna á AkureyriGunnar Helgason
6 LimrubókPétur Blöndal tók saman
7 KantataKristín Marja Baldursdóttir
8 Fimmtíu gráir skuggar - kiljaE.L. James
9 EldvitniðLars Kepler
10 Krakkinn sem hvarfÞorgrímur Þráinsson
Innbundin skáldverk,
ljóðabækur & hljóðbækur
1 HúsiðStefán Máni
2 LimrubókPétur Blöndal tók saman
3 KantataKristín Marja Baldursdóttir
4 Ár kattarinsÁrni Þórarinsson
5 SkáldEinar Kárason
6 RofRagnar Jónasson
7 Augu LíruEva Joly / Judith Perrignon
8 StekkSigurbjörg Þrastardóttir
9 LjósmóðirinEyrún Ingadóttir
10 BoxarinnÚlfar Þormóðsson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Hart á móti hörðu, sagði kerling,
hún settist á stein.