Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 12
Þ
egar Daníel Örn Einarsson kom út úr skápnum
árið 2009 var hann fyrsti afreksmaðurinn í íþrótt-
um til þess í efstu deild á Íslandi. Hann segir það
hafa verið auðveldara en hann hafði búist við. Ótti
hans við viðbrögð liðsfélaganna hafi verið ástæðu-
laus. „Ég var hræddari við það að koma út fyrir hand-
boltastrákunum en flestum öðrum og óttaðist að þurfa að
hætta í handbolta vegna þess að ég er hommi. En sá ótti
reyndist ástæðulaus,“ segir Daníel. Hann segir að hann hafi
aldrei formlega tilkynnt liðsfélögum samkynhneigð sína.
,,Þetta spurðist bara út og ég sagði mönnum frá þessu hægt
og rólega í kjölfarið. Síðan kom sprengja þegar ég var með
handboltastrákunum í gleðskap. Þá buldu á mér ýmsar mis-
gáfulegar spurningar, t.d. hverjir mér fyndust sætir og hvern-
ig ég hagaði mér í persónulega lífinu. En svo var þetta bara
útrætt innan liðsins.“ Hann segir að í fyrstu hafi fyrirfundist
menn sem voru neikvæðir í garð samkynhneigðar hans. „Eftir
að þeir kynntust mér hættu þeir að vera hræddir og varð al-
veg sama.“ Hann segir að í fyrstu hafi sumir forðast það að
fara með sér í sturtu. „Síðan áttuðu þeir sig á því að þeir
pældu meira í mér en ég í þeim,“ segir Daníel og hlær við.
Verið kallaður fífl og fáviti
Hann segir að í hita leiksins hafi hann verið kallaður öllum
illum nöfnum eins og „fífl og fáviti“ en enginn hafi dregið
samkynhneigð hans inn í þrætur á vellinum. „Ég myndi ekki
taka það nærri mér ef einhver myndi draga samkynhneigð
mína inn í deilur. Nema þá að ég vissi að það væri illa meint
og eitthvað meira lægi að bak við orðin.“ Hann segir marga
hafa haft samband við sig síðustu daga eftir að fjölmiðlar fóru
að sýna honum athygli. Þó hafi enginn utanaðkomandi úr
íþróttaheiminum haft samband við hann til að segja frá sam-
kynhneigð sinni. Reynsla Daníels er sú að lítið sé um fordóma
gagnvart samkynhneigðum í fullorðinsflokki í íþróttum. Frek-
ar sé um hana að ræða í yngri flokkum. Þar keppist strákar
um að vera í forystuhlutverki með tilheyrandi stælum. „Þá
var auðvelt að vera gæinn sem var með hommabrandarana til
að sýnast sem stærstur,“ segir hann.
Ég hreinlega sprakk
Daníel kom út úr skápnum tvítugur að aldri. ,,Ég viðurkenndi
í raun eigin samkynhneigð um leið og ég kom út úr skápnum.
„Pældu meira
í mér en
ég í þeim“
ÞEGAR DANÍEL ÖRN EINARSSON HAND-
KNATTLEIKSMAÐUR KOM ÚT ÚR SKÁPNUM
REYNDIST ÞAÐ HONUM AUÐVELDARA EN
HANN HAFÐI BÚIST VIÐ. INNRI BARÁTTAN
FRAM AÐ ÞVÍ VAR HINS VEGAR MUN ERFIÐARI.
Daníel er hér að set’jann í leik með Akureyri.
Úttekt
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012
Fáir hommar meðal
afreksíþróttamanna
Einungis örfá dæmi eru af karlmönnum úr heimi afreksíþrótta sem komið hafa út úr skápnum. Til að mynda höfðu ein-
ungis 23 íþróttamenn viðurkennt samkynhneigð sína á Ólympíuleikunum í London og þar af voru þrír karlmenn. Hand-
knattleiksmaðurinn Daníel Örn Einarsson er fyrsti samkynhneigði karlmaðurinn í hópíþrótt í efstu deild á Íslandi, sem stig-
ið hefur fram og viðurkennt samkynhneigð sína. Fræðslufulltrúi HSÍ segir ljóst að auka þurfi fræðslu
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is
3,8-5%
fólks eru samkynhneigð að sögn
Williams-stofnunarinnar í
UCLA-lagaháskólanum.
0,2%
íþróttamanna sem kepptu á
Ólympíuleikunum hafa við-
urkennt samkynhneigð sína
opinberlega eða 23 af um
10.900 keppendum.
0,04%
karlkyns þátttakenda á Ólymp-
íuleikunum hafa komið fram
opinberlega með samkynhneigð
sína. Eða 3 af 6.098
karlmönnum.
0,4%
kvenkyns þátttakenda á Ólymp-
íuleikunum hafa komið fram op-
inberlega með samkynhneigð
sína. Eða 20 af 4.862 konum.
173
samkynhneigðir atvinnu-
íþróttamenn voru nafn-
greindir í úttekt Sports
illustrated frá árinu 2011.
Í greininni voru bæði
tilgreindir núverandi og
fyrrverandi atvinnu-
íþróttamenn. Sérstaklega er
tekið fram að listinn er ekki
tæmandi.
6
ár eru síðan fyrstu World
Out leikarnir fóru fram. Á
leikunum etja samkyn-
hneigðir kappi í ýmsum
íþróttagreinum.
2017
Reykjavík er meðal þeirra
borga sem sótt hafa um að
halda World Out leikana ár-
ið 2017.
ÍÞRÓTTIR OG
SAMKYNHNEIGÐ