Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012
Leiðangurinn var gerður út til að rannsaka hvernig stæði á þúsundum lóna á Grænlandsjökli. Haraldur gengur með bakkanum og Skúli heldur um kaðalinn.
Morgunblaðið/RAX
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
30
55
KULDANN
KLÆDDU
AF ÞÉR
VIKING POLAR THERMO STÍGVÉL
Stærðir 21–41. Svört og fjólublá.
5.990 KR.
FULLT VERÐ 7.990 KR.
SKOGSTAD MILLE DÚNÚLPA
Stærðir 80–116.
Bleikar og brúnar.
12.990 KR.
FULLT VERÐ 16.990 KR.
ANIK PEAK GÖNGUSKÓR OMNI-HEAT
Stærðir 41–48. Herraskó.
Svartir.
18.990 KR.
FULLT VERÐ 24.990 KR. SKOG
Stærð
Svarta
15
FULLT
SKOGSTAD TO
Stærðir 80–116
Bláar og mosa
12.99
FULLT VERÐ 16
gjörlega ótengdur afkomu bankans, byggist
á veltuumfangi og fjölda starfsmanna og er
þar af leiðandi algjörlega galin uppfynding.
Og svo núna, eftir að við fórum af stað í
ferðaþjónustu og lögðum út í miklar fjárfest-
ingar í flugfélagi, þá voru álögur hækkaðar á
hótel og bílaleigur, sem gera ekkert annað
en að draga úr áhuga ferðamanna. Ágætur
félagi minn sagði: „Í guðannna bænum ekki
fara í matvörugeirann, þá aukast álögur þar.
Þetta hefur mér þótt einna verst þegar ég
horfi til baka, að ekki er hægt að treysta
settum reglum og maður veit í raun ekki við
hverju á að búast þegar farið er af stað.“
Reyndi í tvígang að hætta
Hvarflaði ekkert að þér í sumar að láta gott
heita?
„Nei, en ég get alveg sagt að upprunaleg
áætlun stóðst engan veginn. Eftir að hafa
kynnt mér markaðinn betur var ég hins vegar
sannfærðari en síðastliðið haust um að tæki-
færin væru þarna. Og í kjölfarið á því ákveð
ég að setja meira fjármagn í reksturinn og
taka sjálfur í taumana. Ég er viss um að með
því að fínstilla ýmislegt, sem unnið hefur ver-
ið að hörðum höndum, er hægt að byggja upp
mjög skemmtilegt og öflugt félag.“
Af hverju þessi áhersla á að allt eigi að
vera skemmtilegt?
„Ég er svo lánsamur að vera vel stæður
og þurfa í sjálfu sér ekki að vinna. Þar af
leiðandi finnst mér algjört skilyrði að það sé
gaman í vinnunni, ég sé að vinna með
skemmtilegu fólki og stöðugt að læra og tak-
ast á við áskoranir. Við leggjum mikið upp
úr því að byggja upp inn á við öflugan fyr-
irtækjakúltúr, en farþegarnir þurfa líka að
upplifa það. Og það kostar ekkert að brosa.
Það er frábært að lesa umsagnir farþega
vegna góðrar þjónustu um borð. Það þarf
ekki mikið, galdurinn liggur í smáatriðunum,
hvernig við merkjum okkur, hvernig við
komum fram og svo framvegis.“
Hann bætir við eftir stutta þögn:
„Fyrir utan að ég reyndi í tvígang að
hætta að vinna, en var að drepast úr leið-
indum eftir tvær vikur í bæði skiptin!“
Fékkstu símtal frá Pálma Haraldssyni,
eiganda Iceland Express, þar sem hann
sagði: Já, já, nú er ég hættur þessu!
„Það gerðist kannski ekki alveg þannig,“
segir Skúli og brosir. „En það gerðist í raun
að jú, Pálmi hafði samband. Við fengum okk-
ur kaffi saman, þar sem við fórum vítt og
breitt yfir málin, og okkur var báðum ljóst
að eina vitið var að sameina þessi félög.
Þetta var því frekar spurning um hvernig en
ekki hvort. Og samningar náðust mjög hratt.
Það liðu tíu dagar frá þessu fyrsta símtali
þar til við sendum út tilkynningu.“
Keyptirðu reksturinn?
Já, formið er í raun þannig að ég kaupi og
tek yfir alla ábyrgð og skuldbindingar gagn-
vart farþegum Iceland Express,“ segir Skúli.
„Fyrir það greiðum við ákveðna upphæð til
Iceland Express. Það heitir reyndar IEME
ehf. Skipt var um nafn, af því að við keypt-
um líka nafnið, öll merkin, kerfið og teng-
ingar við umheiminn, erlenda umboðsmenn,
ferðaskrifstofur og svo framvegis. Fyrst um
sinn bjóðum við ferðir í nafni Iceland Ex-
press. En við keyptum ekki fyrirtækið. Eftir
stendur skelin og því miður er hagræðing
ein meginröksemdin fyrir sameiningu. Við
tökum við tíu eða tólf starfsmönnum frá Ice-
land Express og því miður missir mikið af
góðu og reyndu fólki vinnuna í kjölfarið.“
Langyngsti flugflotinn
Hann segir að Iceland Express hafi verið
með áberandi bestu stundvísina í sumar, 92-
93%, á meðan WOW hafi verið með 83% og
Icelandair 82%. „Þarna er því verðmæt
þekking og reynsla. En það breytir því ekki
að við vorum fullmannað flugfélag og í
augnablikinu gátum við ekki tekið við flug-
liðum Iceland Express. En síðast í dag til-
kynntum við að við hefðum tryggt okkur ný-
legar Airbus-þotur. Sú fyrsta er þegar
komin í gagnið, sú næsta kemur í mars og
síðan tvær til viðbótar í vor. Við verðum með