Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 19
hjá mér. Þeir höfðu nú ekki mikið erindi sem erfiði blessaðir.“ Það er
greinilega ákveðið menningarsjokk að koma til landsins. „Það er bara ein
Kúba,“ segir Bragi.
Af sumu öðru áreiti er minna. „Þegar þú gengur um götur Havana
rekstu hvergi á auglýsingaskilti frá vestrænum stórfyrirtækjum,“ segir
Siggi og bætir við að það sé hvíld í því. „Við sáum eina auglýsingu þarna
og hún var fyrir Maggi-súpur og var utan á bíl,“ segir Bragi.
Siggi segir að það sé líka viss hvíld í því að vera laus við McDonald’s og
Subway og þess háttar keðjur. „Þetta sést ekkert þarna. Í öllum ósóm-
anum er það ákveðin ró sem fylgir því,“ segir hann.
Hugurinn reikar greinilega til fortíðar í Havana og glæstari tíma. „Þú
ert með fortíðina fyrir augum og stanslaust minntur á hana,“ segir Bragi
en bílarnir á götunum eru þeir sömu og fyrir áratugum. Þeir segja báðir
að hljóðverið hafi verið mjög gott og vel hannað, þótt það hafi verið farið
að láta á sjá.
Þeim tókst að versla eitthvað í ferðinni og voru skyrtur þar efstar á
blaði en hljómsveitin þurfti að hrista af sér íslenska blæinn á þessum suð-
rænu slóðum. „Við þurftum að koma okkur í hljómsveitarbúning,“ segir
Siggi. „Við vorum ekki nógu litríkir þegar við mættum,“ bætir Bragi við.
Þeir sem vilja fá smá litríka og suðræna sveiflu með jólaívafi í líf sitt ættu
að skella sér með Memfismafíunni í Hof föstudaginn 24. nóvember eða í Há-
skólabíó 30. nóvember til að hressa sig við í skammdeginu, ekki veitir af.
Gítarleikarinn glæsilegi Cesar Hechavarria spilar á
plötunni en hann þykir mjög góður.
Bílafloti borgarinnar er gamall en fólk
hefur ýmsar leiðir til að ferðast um.
Í Havana er tónlistin alls staðar og hljómsveitir spila jafnt á
krám og á hótelum og líka úti á götu eins og hér.
Mörg hús í borg-
inni eru í mikilli
niðurníðslu.
Ljósmyndir/Memfismafían
18.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
89.000
VERÐ: 129.000
COBRA 3 sæta sófi. B:220 D:87 H:80 cm.
Grátt slitsterkt áklæði.
HELGAR
TILBOÐ!
NÚNA
40.000
KR. AFSLÁTTUR
55.990
FULLT VERÐ: 69.990
SLINKY
legubekkur
krómlappir,
litur svartur.
20%AFSLÁTTUR
LEGUBEKKUR
KOMINN
AFTUR
SLINKY