Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.11. 2012
vel í hendi miðað við stærð hans, rúnnaðir kantar gera að verkum að
hann virðist minni. Bakið á honum er ekki eins stamt og á gömlu gerð-
inni. Einna best er að lýsa símanum sem stækkaðri útgáfu af Samsung
Galaxy S III hvað útlitið varðar, en hornin eru þó ekki eins rúnnuð.
Eitt af því sem vakti hvað mest umtal á sínum tíma var að með sím-
anum fylgir eins konar penni sem ætlaður er til að skrifa á skjáinn,
teikna á hann eða nota eins og mús. Penninn í Note II er heldur stærri
en á gömlu týpunni og mun betra að halda á honum. Nú er svo búið
um hnútana að viðeigandi forrit hrökkva í gang þegar penninn er
tekinn úr slíðrinu og mun betra að nota hann að öllu leyti,
enda skynjar hann nú 1.024 snertipunkta, en ekki 256
eins og í eldri gerðinni, og er að auki næmari á
þrýsting. Þeir sem eiga fyrstu Note-gerðina og
nota pennann mikið fá því mikið út úr því
að fá sér nýjan síma. Ýmsar þægilegar
skipanir bætast líka við og sitthvað
endurbætt í forritum sem styða
hann.
Samsung Note II er fyrir-
tak fyrir þá sem eru með stóra
vasa, eða í leit að einhverju sem brúar
bilið á milli spjaldtölvu og farsíma; ekki of stór
fyrir símtöl og nógu stór fyrir flest annað.
Ekki er hægt að frýja Samsung-stjórum dirfsku, eins og sannaðist áSamsung Galaxy Note-símanum sem kom á markað fyrir rétt rúmuári. Sá sími skar sig nefnilega úr fyrir það hvað hann var stór,
skjárinn 5,3" og síminn allur 14,6 x 8,3 x 0,9 sm að stærð og 178 g að
þyngd. Til samanburðar var Samsung Galaxy S II, sem þá var söluhæsti
sími Samsung, 12,5 x 6,6 x 0,8 sm að stærð.
Fjölmargir kunnu þó að meta svo stóran
síma sem sannast best á sölutölum:
Ríflega tíu milljón
eintök hafa
selst af Sam-
sung Galaxy
Note. Flest bend-
ir svo til þess að ný
gerð símans, Samsung
Galaxy Note II, muni selj-
ast ámóta vel ef ekki betur
en þess má geta að frá því hann kom á markað í lok sept-
ember hafa selst af honum þrjár milljónir eintaka.
Nýi Note-inn er hærri en fyrirrennarinn, 15,1 sm,
aðeins mjórri og aðeins þynnri og fimm grömm-
um þyngri. Ég er kannski ekki ýkja hand-
nettur, en mér finnst síminn fara merkilega
STÆRÐIN SKIPTIR MÁLI
NÝR FARSÍMI FRÁ SAMSUNG, GALAXY NOTE II, ER STÆRRI UM SIG EN GENGUR OG GERIST. ÞAÐ EYKUR EÐLILEGA
NOTAGILDIÐ OG KEMUR EKKI Á ÓVART AÐ HONUM HEFUR VERIÐ EINKAR VEL TEKIÐ.
Græja
vikunnar
* Skjárinn á nýja Note-inumer 5,55" HD Super AMOLED
með upplausnina 720 x 1280 díla.
Myndavélarnar eru tvær, sú á bak-
inu 8 MP með sjálfvirkum og
snertifókus, LED-flassi og hristi-
vörn. Á framhliðinni er hún 1,9
MP. Hægt er að taka HD-mynd-
skeið og ljósmyndir samtímis.
* Það er varla að þurfi aðtaka það fram að síminn styður
allar gerðir GSM-kerfa og líka 3G
og 4G, 800, 900, 1800 og 2600
MHz. (Nova hefur verið með til-
raunaleyfi fyrir 4G á 1800 MHz,
en Póst- og fjarskiptastofnun mun
bjóða út 800 MHz og 1800 MHz
tíðnisvið á næstunni.)
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Síminn er verulega spræk-ur, enda með 1,6 GHz fjögurra
kjarna örgjörva. Hann er með
innbyggt útvarp, GPS og tilheyr-
andi. Hann spilar öll helstu víd-
eósnið og er með sjónvarps-
útgang um sérstakt HDMI--
millistykki, sem fylgir ekki.
Rafhlaðan dugir allt að 35 tíma í
tali og 980 í bið.
„líkað“ við síðu fyrirtækisins á Fa-
cebook. Á sama tíma var breytt
algóritma sem stjórnar því hvernig
stöðufærslur fyrirtækja birtast.
Margir eru ósáttir við þessa nýju
gjaldheimtu Facebook. Fyrirtæki
sem hafa lagt í talsverðan kostnað
við að kynna Facebook-síðu sína og
safna þar vinum, telja að verið sé að
koma aftan að þeim með því að
leggja nú gjald á að koma skila-
boðum til þessa hóps. Einn þeirra
F
acebook mun alltaf verða
frítt“ var staðhæft í stöðu-
færslu á Facebook-síðu fyr-
irtækisins í fyrra til að
kveða niður þrálátan orðróm um að
það hygðist byrja að rukka not-
endur fyrir afnot af vefnum. En
vegurinn til heljar er varðaður góð-
um áformum. Í haust hóf Facebook
að taka gjald fyrir að tryggja að
stöðufærslur fyrirtækja sæjust á
síðum sem flestra þeirra sem höfðu
sem hafa gagnrýnt Facebook harð-
lega fyrir þessa breytingu er net-
frömuðurinn vellauðugi, Mark Cub-
an sem meðal annars á liðið Dallas
Mavericks í NBA-deildinni. Cuban
sagði á Twitter að Facebook væri
„að klúðra þessu“ og að hann myndi
leggja mun meiri áherslu á notkun
annarra samfélagsmiðla í markaðs-
setningu Dallas Mavericks, líkt og
Twitter og nýja útgáfu MySpace.
Facebook hefur aftur á móti haldið
því fram að þessum breytingum sé
fyrst og fremst ætlað að bæta
reynslu notenda og minnka magn
„ruslpósts“ frá fyrirtækjum og gera
gæðaefni hærra undir höfði. Fa-
cebook hefur átt í erfiðleikum með
að réttlæta þær væntingar sem
gerðar voru til fyrirtækisins þegar
það var skráð á markað fyrr á
árinu. Cuban og fleiri gagnrýnendur
telja að Facebook sé fyrst og
fremst að reyna að auka tekju-
Facebook til frambúðar?
FACEBOOK SÆTIR GAGNRÝNI FYRIR EINHÆFT TEKJUMÓDEL, EN GOOGLE+ VIRÐIST AFTUR Á MÓTI VERA AÐ SÆKJA Í SIG VEÐRIÐ.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
*Það er hætt viðað ef Facebookreynir að auka vægi
auglýsinga í upp-
lifun notenda snúi
þeir fljótt baki við
vefnum.
Græjur og tækni