Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 33
Morgunblaðið/Kristinn
*Mér finnstþetta þægileg-ur matarboðsréttur
því þetta er ekki
mikið stúss og öll-
um finnst þetta al-
veg ofsalega gott.
18.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Gjafir sem
henta öllum
Undir 3.000,-
Undir 5.000,-
Undir 10.000,-
Í vefversluninni okkar, kokka.is, getur þú
skoðað og keypt gjafir fyrir alla – hvort sem þeir
eru nýbyrjaðir að búa eða eiga allt. Gjafirnar eru
flokkaðar eftir þema og verði og einnig er hægt
að kaupa gjafabréf. Ef þú átt góðan sófa er upplagt
að nota hann til að kaupa jólagjafirnar!
www.kokka.is
2.450,-
3.890,-
9.800,-
2 bakkar af sveppum
50 g smjör
2 hvítlauksrif
100 ml sérrí
Setjið smjör á stóra pönnu og bræðið við háan
hita, bætið þá sveppunum saman við og steikið
með hvítlauknum í dágóðan tíma eða þar til vökv-
inn hefur gufað upp og sveppirnir eru vel steiktir
og brúnaðir. Hellið þá sérríinu saman við og leyfið
að gufa alveg upp. Gott með öllu kjöti.
Sérrísteiktir sveppir
Hátíðarlegir
steiktir sveppir.
Smjörið er brætt og þegar það sýður er hveitinu
bætt saman við og hrært vel. Þetta er svo hrært þar
til smjörið og hveitið er orðið eins og bolla. Þegar
kjötið er tilbúið er það tekið úr pottinum og sett í
skál eða pottlokið og álpappír sett yfir. Vökvinn úr
pottinum er sigtaður í annan pott og suðan látin
koma upp. Grænmetinu úr pottinum er hent því
það hefur þjónað sínum tilgangi og allt bragð er farið
úr. Þegar sýður er smávegis af hveitibollunni bætt
saman við og látið sjóða þar til þykknar og svo alltaf
bætt meira og meira í af bollunni þar til sósan er
nægilega þykk, fer eftir smekk. Þá er hún bragðbætt
með salti og pipar og jafnvel smá rifsberjageli. Með
þessu er gott að hafa „rustic grænmeti“. Þá er restin
af grænmetinu sett í eldfast mót, olíu hellt yfir, saltað
og piprað og sett í ofninn í 45 mínútur með kjötinu.
Sérstök kartöflumús
1 kg kartöflur
500 g sellerírót (má sleppa eða nota stein-
seljurót)
140-200 g smjör
fullt af sjávarsalti og nýmalaður pipar
Kartöflurnar afhýddar og rótin einnig. Allt sam-
an soðið í söltu vatni - 1 msk. af salti á móti 1 lítra
af vatni - þar til allt er orðið meyrt. Þá er vatnið
sigtað frá og allt maukað í pottinum aftur. Smjörinu
bætt saman við og salti og hrært þar til réttu
bragði er náð, fer eftir smekk hvers og eins.
Sérstaka kartöflumúsin
er afar bragðgóð og
passar vel með kjötinu.