Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 7. D E S E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 287. tölublað 100. árgangur
KRISTÍN HELGA
FÓR UNG
Í HUNDANA
KATRÍNU
LÍÐUR MUN
BETUR
Í HUGANUM HEIM
SÓLÓBREIÐSKÍFA
MEÐ MAGNA
ÚTSKRIFUÐ 25 HUGARÁSTAND 46GRÍMSÆVINTÝRI 44
Einstaklingur greiðir sérstakt gjald ef hann greiðir
með korti annars banka í útibúum Landsbankans eða
Arion banka. Gjaldið er 200 kr. í tilfelli Landsbankans
en 110 kr. í tilfelli Arion banka. Gjald sem þetta er ekki
tekið hjá Íslandsbanka.
Í svari frá Landsbankanum kemur fram að um nýtt
gjald sé að ræða sem ekki hafi verið innheimt fyrr en
nú. Jafnframt segir að þetta sé liður í að innheimta fyr-
ir hluta af þeirri þjónustu sem veitt er. Kostnaður sé
við bankaþjónustu eins og aðra þjónustu, hinsvegar
hafi bankinn ekki rukkað fyrir þennan þátt fyrr en nú.
Slík gjaldtaka tíðkist víða erlendis. Svipuð svör gefur
Arion banki Morgunblaðinu, kostnaður fylgi ýmsum
þáttum þjónustunnar sem veitt er.
Fyrir skemmstu hófu allir bankarnir sambærilega
gjaldtöku fyrir þjónustu hraðbanka, þ.e. greiddar eru
95-150 kr. aukalega (mismunandi eftir bönkum) ef við-
skiptavinur notar kort frá öðr-
um banka en rekur viðkom-
andi hraðbanka.
Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna,
hafði ekki heyrt af hinni nýju
gjaldtöku þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann. Hann
segir að í starfi sínu leggi sam-
tökin áherslu á upplýsingagjöf
til neytenda, þeir séu upplýstir
og meðvitaðir um allan auka-
kostnað í viðskiptum sínum. Hann segir samtökin
leggja áherslu á að gjaldtaka, t.d. fjármálafyrirtækja,
sé í samræmi við þann kostnað sem verði til vegna
þjónustu. Ekki megi ná inn peningum umfram eðlileg-
an kostnað. »4
Leggja á nýtt kortagjald
Tveir bankar rukka fyrir notkun debetkorta
Ekki vantar ákveðnina hjá fótboltastelpunum í 7. flokki hjá Fjölni í Grafarvogi og meðan þær gefa ekkert
eftir á æfingum þarf ekki að kvíða framtíðinni hjá „stelpunum okkar“ á þessum vettvangi.
Morgunblaðið/Kristinn
Snemma beygist krókurinn
Fjör í Egilshöll hjá stelpunum í 7. flokki Fjölnis
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Því er ekki að neita að til mín hafa leitað
menn sem bjóða kvóta smærri útgerða til
sölu. Að baki liggur að menn eru að leita að
útleið úr rekstrinum vegna gjörbreyttrar
rekstrarstöðu.
Útgerðin borgar
sig ekki lengur.
Veiðigjöldin eru
meginástæðan,
samfara lækk-
andi afurðaverði,
og við það bætist
óvissa vegna
nýja kvótafrum-
varpsins sem er
eftir að af-
greiða,“ segir Jón Eðvald Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri FISK Seafood á Sauðárkróki.
„Með stóraukinni skattlagningu er
rekstrargrundvöllurinn miklu veikari en áð-
ur var. Það er ljóst að farið er að þrengja
verulega að útgerðum sem eru eingöngu í
veiðum,“ segir Jón Eðvald og tekur fram að
hann hafi ekki tekið neinu kauptilboðanna.
Gjöldin velja hvaða fyrirtæki lifa
„Ég held að það sé skoðun talsvert margra
að það sé best að hætta útgerð. Veiðigjöldin
miðast við meðaltal. Fyrirtækin eru ólík og
því er viðbúið að þær grisjist eitthvað útgerð-
irnar. Rekstrargrundvöllurinn er að veikjast
svo mikið að það mun setja þrýsting á að
veikja gengi krónunnar og þar með rýra kjör
almennings,“ segir Jón Eðvald.
Rætt er við nokkra útgerðarmenn á Snæ-
fellsnesi í Morgunblaðinu í dag. Meðal þeirra
er Guðmundur Smári Guðmundsson í
Grundarfirði en hann segir mörg fjölskyldu-
fyrirtæki nú verðlaus vegna gjaldanna.
Vilja
hætta
útgerð
Litlar útgerðir
reyna að selja kvóta
Auknar birgðir
» Vegna sölu-
tregðu á mörkuðum
safnast birgðir upp
og greiðslufrestur
hefur lengst.
M Rekstur útgerða í uppnámi » 6
Forsvarsmenn Icelandair hafa skrif-
að undir viljayfirlýsingu um pöntun
á tólf nýjum flugvélum frá Boeing
með kauprétti á tólf til viðbótar.
Kaupverðið er sagt trúnaðarmál en
heildarverðmæti flugvélanna tólf
samkvæmt listaverði Boeing er um
1,2 milljarðar bandaríkjadala, eða
um 150 milljarðar króna.
„Við erum ekki í þessum fjárfest-
ingum af því að við þurftum að end-
urnýja flugflotann, heldur horfum
við á þetta sem sóknarfæri,“ segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group. »18
Sóknar-
hugur hjá
Icelandair
Boeing Icelandair bætir í flotann.
Tólf Boeing-vélar
metnar á 150 ma.kr.
„Það er ekkert sem bendir til þess fyr-
irfram að nýr Landspítali sem er á teikni-
borðinu fari ekki fram úr kostnaðar-
áætlun,“ segir Þórður Víkingur Friðgeirs-
son, lektor við tækni- og verkfræðideild
Háskólans í Reykjavík. Hann hefur unnið
að rannsóknum á opinberum framkvæmd-
um. Hann er í hópi þeirra fræðimanna sem
hafa gagnrýnt vinnubrögðin við nýja Land-
spítalann. Hann segir vinnubrögðin líkust
þeim sem tíðkuðust fyrir 50 árum. »12
Landspítalinn Munu áætlanir standast?
Líkur á framúr-
keyrslu spítalans
Girnilegar uppskriftir
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
17
365 miðlar ehf. undirrituðu ný-
verið samning um kaup á midi.is af
Straumi fjárfestingabanka hf. „Það
var gengið frá þessu alveg nýlega,
með fyrirvara um samþykki Sam-
keppniseftirlitsins, og málinu kom-
ið þangað,“ segir Ari Edwald, for-
stjóri 365. Hann vildi ekki gefa upp
kaupverðið en sagði að ekki væri
um háar upphæðir að ræða.
Ari segir engar breytingar fyr-
irhugaðar á starfsemi midi.is en
kaupin geri 365, sem auglýs-
ingasala, kleift að auka þjónustu
sína og breikka vöruframboðið.
365 miðlar ehf.
festa kaup á midi.is