Morgunblaðið - 07.12.2012, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.12.2012, Qupperneq 4
BAKSVIÐ Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Ef einstaklingur gengur inn í Landsbankann eða Arion banka og greiðir þar inn á reikning með korti frá öðrum en bankanum sem hann er staddur í er viðkomandi rukkaður aukalega. Gjaldið er 200 kr. hjá Landsbankanum en 110 kr. hjá Arion banka. Gjaldið er fast þ.e. gjaldtakan er óháð upphæð- inni sem greidd er með kortinu. Hjá Landsbankanum fengust þær upplýsingar að um nýtt gjald væri að ræða. Í svari Landsbank- ans segir að þetta sé liður í að inn- heimta fyrir hluta af þeirri þjón- ustu sem veitt er. Í svari frá Arion banka kemur fram að gjaldið sé óháð því hvort greitt sé með korti frá Arion eða öðrum banka. Rök fyrir slíkri gjaldtöku eru þau sömu og hjá Landsbankanum, kostnaður fylgi hinum ýmsu þáttum þjónustunnar. Í svari frá Arion banka kom fram að hægt væri að framkvæma milli- færslu milli banka endurgjalds- laust væri um „þekkta viðtakendur að ræða.“ Fyrir skemmstu greindi Morg- unblaðið frá sambærilegri gjald- töku er varðar hraðbanka, þ.e. greiddar eru 95-150 kr. aukalega (mismunandi eftir bönkum) ef við- skiptavinur notar kort frá öðrum banka en rekur viðkomandi hrað- banka. Allir stóru bankarnir þrír rukka aukalega fyrir slíka þjón- ustu. Hjá Landsbankanum fengust þær upplýsingar að í samanburð- arlöndunum væri sambærileg gjaldtaka vegna þjónustu hrað- banka 350-700 kr. Tíðkast erlendis Í svari Landsbankans segir að eðlilegt sé að þjónusta innan bank- anna kosti meira þegar manns- höndin komi nærri en þegar hrað- bankar annist þjónustuna. Banki sé þjónustufyrirtæki og öll þjón- usta kosti þó að ekki hafi tíðkast hérlendis að rukka fyrir hana. „Við höfum tekið upp mjög vægt gjald sem ætlað er að standa undir litlum hluta af kostnaði við slíka þjónustu þegar hún er veitt við- skiptavinum annarra banka, rétt eins og tíðkast um allan heim. Til þessa hefur þjónustan í raun verið niðurgreidd af viðskiptavinum Landsbankans,“ segir í svari frá Landsbankanum. Þá segir að kostnaður liggi í því t.d. að vera með starfsfólk, reka húsnæði og liggja með seðlasjóð. Kostnaður fylgi því einnig að halda uppi hrað- bönkum með tilheyrandi viðhaldi, endurnýjun og seðlaflutningum. Ekki tilfellið hjá Íslandsbanka Hjá Íslandsbanka fengust þær upplýsingar að sérstakt gjald væri ekki innheimt þó að greitt væri með korti annars banka í útibúum Íslandsbanka. Til samanburðar má nefna að miðað við verðskrár bankanna greiða viðskiptavinir bankanna 13- 15 kr. fyrir hverja færslu þegar þeir nota debetkort sín í versl- unum landsins. Aukagjald ef greitt er með korti frá öðrum banka  Landsbankinn og Arion banki rukka fyrir gjaldið en ekki Íslandsbanki Morgunblaðið/Kristinn Gjald Landsbankinn segir gjaldið sem hann innheimtir af viðskiptavinum annarra banka tíðkast víða erlendis. Banki Hér má sjá kvittun frá Landsbank- anum fyrir greiðslu, 200 kr. álag. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtak- anna, hafði ekki heyrt af þessari nýju gjaldtöku Lands- bankans. „Það sem við leggjum áherslu á er upplýs- ingagjöf, svo fólk geti tekið ákvörðun um að hætta við eða halda áfram. Í hraðbönkunum er viðskiptavinur t.d. upplýstur um gjaldtöku og fær kost á að hætta við,“ segir Jóhannes. „Stundum liggja skýringar fyrir, en í mörgum tilvikum leitum við skýringa. Við áskiljum okk- ur rétt til að leita eftir rökum fyrir gjaldtöku og leita skýringa. Einnig áskiljum við okkur rétt til að gagnrýna ef upplýsingagjöf er ekki í lagi,“ segir Jóhannes og tek- ur fram að samtökin muni kanna hina nýju gjaldtöku. Jóhannes telur að ekkert sé við því að segja þegar nýtt gjald er tekið upp vegna þjónustu, að því gefnu að um sé að ræða gjaldtöku fyrir kostn- aði sem viðkomandi fjármálafyrirtæki verður sannarlega fyrir. „Hins- vegar gjöldum við varhug við því ef verið er að ná inn peningum umfram eðlilegan kostnað sem bankinn verður fyrir. Við segjum einfaldlega að ef einhver er að fá þjónustu hvort sem það er hjá fjáramálafyrirtæki eða öðrum þá sé það eðlilegt að viðkomandi greiði fyrir þá þjónustu eðlilegt afgjald, í stað þess að kostnaðurinn leggist á alla,“ segir Jóhannes. „Það verður þá að vera eðlileg upphæð sem rukkað er fyrir og í samræmi við þann kostnað sem verður til vegna þjónustunnar.“ Gjaldtaka bankanna endur- spegli kostnað vegna viðskipta NEYTENDASAMTÖKIN ÁVALLT Á VERÐI Jóhannes Gunnarsson Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is Miele þvottavélar og þurrkarar Fjárframlag ríkisins til Fornleifa- sjóðs fyrir árið 2013 er 700 þúsund krónum lægra en fyrir árið 2012, jafnvel þótt í nýjum lögum um menn- ingarminjar sé sjóðnum ætlað mun stærra hlutverk en áður. Þetta kemur fram í sameiginlegri ályktun fagfélaga fornleifafræðinga en þar segir m.a. að Fornleifasjóður hafi á undanförnum árum verið helsti styrktarsjóður fornleifarann- sókna á Íslandi. Félögin segja það grundvallaratriði að stjórnvöld auki fjármagn í sjóðinn til samræmis við nýtt og aukið hlutverk hans. Ármann Guðmundsson, formaður Fornleifafræðingafélags Íslands, segir fornleifafræðinga svartsýna á horfurnar í faginu á næstu árum og bendir á að raunar sé ástandið enn verra en tölur um minnkandi fram- lög hins opinbera bendi til, þar sem stærsti hluti þeirra fjármuna sem eitt sinn runnu til geirans hafi verið vegna stórra þjónusturannsókna í kringum stórframkvæmdir, sem nú séu nánast engar. „Langtum best væri að taka öll verkefni sem eru á fjárlögum og setja inn í sterkan Fornleifasjóð, því það er fagnefnd sem veitir úr honum. En þá gefur augaleið að Fornleifa- sjóður þarf að vera mun sterkari,“ segir Ármann. Lægri fjárframlög til fornleifafræði muni óhjákvæmilega leiða til verri minjavörslu í landinu. Fornleifafræðingar svart- sýnir á horfurnar í faginu  Vilja öll verkefni og hærri fjárframlög til Fornleifasjóðs Niðurskurður í forn- leifarannsóknum heildarframlög 2007-2013 í milljónum kr. ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13 10 9, 50 12 2, 20 87 ,6 0 49 ,4 5 49 ,1 0 45 ,9 0 32 ,2 0 Hæstiréttur sýknaði í gær Sigurþór Arnarsson af ákæru í svonefndu Vegasmáli. Sigurþór var sýknaður í héraðsdómi árið 1998 en sakfelldur í Hæstarétti árið eftir. Hæstiréttur féllst á beiðni Sigurþórs um endur- upptöku málsins í sumar en í dóm- inum segir m.a. að Sigurþór hafi staðfastlega neitað sök og ákæru- valdinu ekki tekist að setja fram sönnunargögn til stuðnings sakfell- ingu. Að sögn lögmanns Sigurþórs er verið að skoða hvort skaðabóta- mál verði höfðað á hendur ríkinu. Málið var höfðað í júlí 1997 á hendur Sigurþóri og öðrum manni. Þeim var gefið að sök að hafa spark- að í höfuð manns þar sem hann lá á gólfi veitingahússins Vegas, í kjölfar þess að Sigurþór greiddi manninum höfuðhögg með þeim afleiðingum að hann féll í gólfið. Maðurinn lést af völdum heilablæðingar sólarhring eftir atvikið. Héraðsdómur sýknaði þá Sigur- þór af ákærunni en Hæstiréttur sak- felldi hann og dæmdi í tveggja ára og þriggja mánaða fangelsi. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sýknað í Vegasmáli  Íhugar skaðabóta- mál á hendur ríkinu Dómnefnd, sem metið hefur um- sækjendur um embætti setts hæsta- réttardómara sem auglýst var 2. október sl., hefur lokið störfum og skilað innanríkisráðuneytinu nið- urstöðu sinni. Fimm sóttu um emb- ættið og er það niðurstaða dóm- nefndar að þrír séu hæfastir umsækjenda til að hljóta setningu í embættið, þ.e. Ása Ólafsdóttir, lekt- or við lagadeild HÍ, Ingveldur Ein- arsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, og Þorgeir Ingi Njáls- son, dómstjóri Héraðsdóms Reykja- ness. Aðrir umsækjendur voru dr. Aðalheiður Jóhannsdóttir, prófessor við lagadeild HÍ, og Arnfríður Ein- arsdóttir, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur. Dómnefndina skipuðu Eiríkur Tómasson, Allan V. Magn- ússon, Guðrún Agnarsdóttir, Guð- rún Björk Bjarnadóttir og Skarp- héðinn Þórisson. Þrír taldir hæfastir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.