Morgunblaðið - 07.12.2012, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Viðhaldsfríar
hurðir
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Brautarholti 10-14 / 105 Reykjavík / 575 2700 / pixel@pixel.is / www.pixel.is
Við prentum alla regnbogans liti.
Við bjóðum upp á alla almenna prentun,
ráðgjöf, skönnun, umbrot, bókband
og umsjón með prentgripum.
Pixel er alhliða prentþjónusta með
starfsstöðvar í Reykjavík og á Ísafirði.
Pixel þýðir myndeining - sem er minnsta eining úr mynd.
Orðið pixel er byggt á samblöndu úr orðunum
pix (pictures) og el (element)
Nafnspjöld, bréfsefni
og umslög!
Eins og við mátti búast er forseti Bandaríkjanna í efsta
sæti á nýjum lista tímaritsins Forbes yfir valdamestu
menn heims og á eftir honum koma þekktir menn á borð
við kanslara Þýskalands og páfa kaþólsku kirkjunnar.
Á listanum eru þó einnig óvænt nöfn. Þeirra á meðal
er Joaquin Guzman Loera, öðru nafni „El Chapo, auð-
kýfingur í Mexíkó og leiðtogi glæpasamtaka sem Forbes
segir að skipuleggi umfangsmikið fíkniefnasmygl til
Bandaríkjanna. Hann er í 63. sæti á listanum.
Við valið hafði Forbes fjögur viðmið í huga: fjölda
þeirra sem völd viðkomandi manna ná til, fjármunina
sem þeir ráða yfir, hvort þeir hafi áhrif á mörgum svið-
um og hvort þeir beiti völdum sínum.
Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, er í 16.
sæti á listanum vegna þess að hann stjórnar stórri borg,
sem er mjög mikilvæg í fjármálalífinu, er sjálfur auðkýf-
ingur, fjölmiðlajöfur og hefur lagt mikið af mörkum til
mannúðarmála og góðgerðarstarfsemi.
Á listanum er 71 nafn, það er eitt á hverjar 100 millj-
ónir íbúa jarðar. Þetta er annað árið í röð sem Barack
Obama Bandaríkjaforseti trónir efstur á listanum. Á
meðal þeirra sem féllu af listanum er Hu Jintao, forseti
Kína, sem var í öðru sæti á síðasta ári en er ekki á listan-
um nú vegna þess að hann lætur af embætti á næsta ári.
Forbes segir að Angela Merkel, kanslari Þýskalands,
sé í öðru sæti vegna þess að hún sé valdamest í Evrópu-
sambandinu og geti haft úrslitaáhrif á örlög evrunnar.
bogi@mbl.is
Heimild: Forbes
3
5
15 13
14
92
1 Barack Obama
forseti Bandaríkjanna
2AngelaMerkel
kanslari Þýskalands
3Vladímír Pútín
forseti Rússlands
4 Bill Gates
stjórnarformaður, Bill &
Melinda Gates stofnunin
5 Benedikt XVI
páfi kaþólsku
kirkjunnar
6 Ben Bernanke
seðlabankastjóri
Bandaríkjanna
7Abdullah bin Abdul
Aziz al Saud
konungur Sádi-Arabíu
8Mario Draghi
bankastjóri
Seðlabanka Evrópu
9 Xi Jinping
aðalritari kínverska
kommúnistaflokksins
10David Cameron
forsætisráðherra Bretlands
11Carlos SlimHelu & fjölskylda
heiðursformaður
AmericaMovil
12 Sonia Gandhi
forseti indverska
þjóðþingsins
13 Li Keqiang
aðstoðarforsætisráðherra Kína
14 Francois Hollande
forseti Frakklands
15Warren Buffett
forstjóri
Berkshire Hathaway
Valdamestumenn heimsins
Listi bandaríska tímaritsins Forbes fyrir árið 2012
16Michael Bloomberg
borgarstjóri NewYork
17Michael Duke
forstjóri Wal-Mart
18Dilma Rousseff
forseti Brasilíu
19Manmohan Singh
forsætisráðherra Indlands
20 Sergey Brin
meðstofnandi Google
Larry Page
forstjóri ogmeðstofnandi
Google
4 81016
18
20
19
12
7
1
611
17
Stjórnmál
Fjármál/viðskipti
Trúmál
Mannúðarmál
Glæpaforingi meðal valdamestu manna
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa eytt
sem svarar 168 milljörðum króna í
hönnun og smíði langdrægra eld-
flauga í ár og 5,2 milljörðum króna
til viðbótar í risastórar styttur og
myndir af leiðtogum landsins. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu ríkis-
stjórnar Suður-Kóreu.
Jafnvirði 1,2 milljarða króna var
eytt í nýjar styttur á sex stöðum af
Kim Il-Sung, fyrsta leiðtoga komm-
únistaríkisins, og arftaka hans, Kim
Jong-Il. Um fjórum milljörðum var
eytt í stór veggmálverk af leiðtog-
unum tveimur á um það bil 400 stöð-
um í landinu.
Tæp milljón manna hefur dáið úr
hungri í Norður-Kóreu frá síðasta
áratug aldarinnar sem leið og millj-
ónir manna þjást enn af vannæringu
vegna viðvarandi matvælaskorts í
landinu. bogi@mbl.is
AFP
Fjáraustur Norður-Kóreumenn á flugeldasýningu í Pjongjang í tilefni af
því að nýjar styttur af Kim Il-Sung og Kim Jong-Il voru afhjúpaðar.
Eyddu milljörðum í styttur
og myndir af leiðtogunum