Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Tvöfalt kjördæmisþing framsókn- armanna í Suðvesturkjördæmi verð- ur haldið á morgun, laugardaginn 8. desember, kl. 10.00 í Flensborg- arskólanum í Hafnarfirði. Á þinginu velja framsóknarmenn í Kópavogi, Hafn- arfirði, Mos- fellsbæ, Seltjarn- arnesi, Garðabæ og Álftanesi 7 efstu á framboðs- lista þann sem boðinn verður fram við næstu alþingiskosningar 27. apríl 2013. Í Suðvesturkjördæmi velja flokksmenn nýja forystu, sem við þurfum að bera traust til. Við þurf- um að auka fylgi okkar um allt land og við viljum og ætlum okkur að komast í ríkisstjórn Íslands. Fram- sóknarmenn vilja berjast fyrir auk- inni velferð og bættum hag fjöl- skyldna og fyrirtækja um land allt. Framsóknarflokkurinn hefur sýnt það og sannað í gegnum árin að liðs- menn hans sitja ekki auðum hönd- um heldur láta verkin tala. Hér væri hægt að nefna fjölmörg mál sem flokkurinn hefur barist fyrir eins og t.d. þegar 12.000 ný störf sett voru á oddinn, en urðu alls 14.000! Þá hafa framsóknarmenn tekið mikilvægar ákvarðanir til þess að landið haldist í byggð, fólk hafi þar atvinnu og flykkist ekki allt á suðvesturhornið. Hér má t.d. nefna verkefni sem staðsett hafa verið á landsbyggðinni, eins og fæðing- arorlofssjóð á Hvammstanga, Greiðslustofu atvinnuleysistrygg- inga á Skagaströnd, Landmælingar Íslands á Akranesi, starfsemi Byggðastofnunar og Íbúðalánasjóðs á Sauðárkróki, Landbúnaðarstofnun á Selfossi og fleira. Brýnasta verkefnið sem við stöndum nú frammi fyrir og þolir enga bið er skuldavandi heimila og fyrirtækja í landinu. Framsókn- armenn kusu sér nýja öfluga for- ystu 2009 og á yfirstandandi kjör- tímabili hafa framsóknarmenn ítrekað lagt til aðgerðir til hjálpar heimilum og fjölskyldum í landinu. Stjórnarflokkarnir og stuðnings- flokkar þeirra hafa hafnað þeim öll- um fram að þessu. Við getum ekki lengur setið með hendur í skauti og beðið eftir því að staða fjölskyldna versni enn meira. Þess vegna þurfa framsóknarmenn og allir stuðnings- menn flokksins að taka höndum saman og stilla upp góðri forystu í Suðvesturkjördæmi. Forystu sem auka mun fylgi flokksins og gefa honum styrk til góðra verka. Ég býð mig fram til þess að geta tekið þátt í að skapa grundvöll að bættri velferð alls almennings, með áherslu á skuldaúrvinnslu og at- vinnu fyrir alla og fjölbreyttari menntun á sviði á iðn- og tækni- greina og þarfir atvinnulífsins í huga. Einnig til að stuðla að enn öfl- ugari heilbrigðisþjónustu m.a. með bættum aðbúnaði á nýju hátækni- sjúkrahúsi. Ég óska eftir stuðningi í efstu sæti Framsóknarflokksins í Suð- vesturkjördæmi, 1. eða 2 sæti listans, og er tilbúin að takast á við þau verkefni sem bíða okkar. Ég hvet kjörmenn til að mæta tím- anlega á þingið, sem hefst kl. 10.00 árdegis í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Framsókn til áhrifa 27. apríl 2013. UNA MARÍA ÓSKARSDÓTTIR frambjóðandi í 1.-2. sæti. Uppeldis- og menntunarfræðingur og lýðheilsufræðingur frá HÍ. Framsókn til lausnar skuldavanda heimila og fyrirtækja Frá Unu Maríu Óskarsdóttur Una María Óskarsdóttir Fyrir gráti hafa fæstir komið upp orði né heilli hugsun eftir að upplýst var að Guðbergur Bergsson hefði orðið áttræður á dögunum. Voðaverk hans á sviði bókmennta eru slík að vöxtum að veldur morg- unógleði og svima. Það var að von- um að fjölmiðlar færu af stað til að kanna þetta mál og á tiltölulega skömmum tíma var Guðbergur kallaður inn á teppið hjá helstu fréttastofum hérlendis og þó- nokkuð mörgum á Spáni og í Þýska- landi. Fæstir höfðu gleymt honum að hafa ekki gefið Íslendingum flugvöll- inn í borginni Á-alla-kanta á Spáni til bjargar vonlausu, bjargarlausu og gjaldþrota föðurlandi sínu. En þeir fengu skjótt um annað að hugsa þar sem var áttræðisafmælið. Og til að bæta gráu ofan á svart kom út ný skáldsaga eftir hann eins og til að toppa og dauðrota hið fyrr- nefnda: Hin eilífa þrá. Það var ábúðarmikill og grafalvar- legur spyrill í Kastljósi sem minnti Guðberg á hið augljósa að ekki næðu allir svo háum aldri og opnaði þar á það sem hefði átt að vera Guðbergi kærkomið tækifæri til að sýna sanna iðran sem svo sjálfsögð hefði verið og biðja íslenska þjóð afsökunar á því að hafa náð svo háum aldri. Nei, því var ekki að heilsa og mátti kenna í svip forherðingu fremur en nokkuð annað og nú hefur þessi mað- ur enn frjálsar hendur til að sá ill- gresi sínu í formi þessara hræðilegu bókmennta sinna um ókomin ár. Vinahópur undirritaðs saman- stendur af sveitalubbum, einfeldn- ingum og opinberum vitleysingum. Flestir hafa þeir keypt sér þessa voðalegu bók Hin eilífa þrá og sést best á því hversu bókmenntasmekk- ur þessa fólks er gjörsamlega úti á túni. Þetta sannaðist ennfrekar þegar Kiljan fjallaði um bók þessa þar sem gagnrýnendur voru sammála um að Guðbergur væri veruleikafirrtur og virtist stjórnandi þáttarins afar þakk- látur álitsgjöfum fyrir þá niðurstöðu. Þar fauk jólalesningin og fjárfest- ingin! Auðvitað var það skensið eitt að Grindavíkurbær hefði heiðrað Guð- berg þegar ljóst er að hann sem allir aðrir á hans aldri ættu að sæta sekt- um sem nemur milljón fyrir hvert ár umfram þessi áttatíu. Þetta er skattstofn sem gæti nýst óljúgfróðum og óvitlausum sveit- arstjórnum vel á komandi árum og sjálfsagt að sexfalda hann við fyrsta tækifæri. GUÐNI BJÖRGÓLFSSON, kennari. Guðbergur á óræðum aldri Frá Guðna Björgólfssyni Guðni Björgólfsson Snörp orðaskipti urðu í Kastljósinu þann 3. desember milli Ólínu Þorvarðardóttur þing- konu og Svans Svans- sonar læknis. Ástæðan var að fjórar þingkon- ur hafa lagt fram þingsályktunartillögu um niðurfellingu á virðisaukaskatti og greiðslum til græðara. Fróðlegt var að heyra hve lækn- irinn var mikið á móti þingsályktun- artillögunni, þótt Ólína útskýrði að í henni fælist að heilbrigðisráðherra yrði falið að stofna þverfaglega nefnd til að kanna réttmæti nið- urfellingar gjalda hjá græðurum. Svanur fór mörgum neikvæðum orð- um um störf græðara almennt. Með aukinni menntun og vitn- eskju almennings um afdrifaríkar af- leiðingar aukaverkana lyfja, hafa æ fleiri aðilar hafnað hefðbundnum vestrænum lækningum og kosið óhefðbundnari leiðir. Fólk breytir mataræði, tekur inn vítamín og fæðubótarefni, nýtir sér áhrifaríkar meðferðir eins og t.d. hómópatíu, kí- rópraktík, osteópatíu, höfuð-beina- og spjaldhryggjarmeðferð, svæða- meðferð, bowen-tækni, lífljóseinda- meðferð. Einnig hugrækt, jóga og heilun. Allt eru þetta aðferðir sem byggja upp og bæta heilsu án niðurbrjótandi auka- verkana sem oftar en ekki fylgja í kjölfar inn- töku lyfja. Nýir tímar Í þessum stutta Kastljóssþætti kom greinilega fram hræðsla læknisins við nýjar leiðir í heilbrigð- isþjónustu og greinilegt áhugaleysi virtist vera fyrir að kynna sér kosti nýrra meðferða. En tillit þarf að taka til fjölda Íslendinga sem óska þess að læknar og meðferðaraðilar vinni saman án fordóma. Þá getur hver einstaklingur valið þá meðferð sem hann kýs. F.h. stjórnar Heilsuhringsins. Hvað hræðast læknar? Eftir Ingibjörgu Sigfúsdóttur Ingibjörg Sigfúsdóttir »En tillit þarf að taka til fjölda Íslendinga sem óska þess að læknar og meðferðaraðilar vinni saman án fordóma. Höfundur er formaður Heilsuhringsins.is Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna (UNI- CEF) heldur Dag rauða nefsins í fimmta skiptið á Íslandi í dag með skemmti- og söfn- unarþætti sem sýndur verður í opinni dag- skrá á Stöð 2 í kvöld. Hugmyndin að baki deginum er einföld: Að nota grín og gleði til að koma mikilvægum skilaboðum um dauðans alvöru á framfæri. Aðalmarkmið Dags rauða nefsins er að hvetja landsmenn til að ganga til liðs við UNICEF og gerast heimsforeldrar. Að vera foreldri er líklega eitt gleðilegasta og mest gef- andi hlutverk sem okkur hlotnast í lífinu. Því fylgir einnig mikil ábyrgð; að elska og vernda barn sem er varnarlaust, að leiðbeina og hafa áhrif til góðs; styðja í blíðu og stríðu á vegferðinni um veröld sem stund- um er viðsjárverð. Heimsforeldrar hafa þessu sama hlutverki að gegna – en á heimsvísu. Með mánaðarlegum stuðningi sínum vinna mörg þúsund heimsforeldrar á Ís- landi í samstarfi við UNICEF að því að styðja milljónir varn- arlausra barna víða um heiminn. Slík gjöf er mikill gleðigjafi, bæði þeim sem þiggur og þeim sem gefur. Það er afar dýrmætt að geta sagt góðar fréttir af starfi sem snýst um réttindi, vel- ferð og aukinn jöfnuð meðal barna heimsins. UNICEF hefur náð umtalsverðum árangri á liðnum árum. Verkefnin eru þó áfram ærin; fjármálakreppa heimsins með hækkandi mat- vælaverði bitnar mest á fátækustu börnunum sem fjölgar ört, samhliða þeim miklu þjóðflutningum sem víða eiga sér stað úr sveit í sívaxandi fá- tækrahverfi stórborganna. Lofts- lagsbreytingar hafa einnig mest áhrif á þá sem eru varnarlausastir, því þær leiða til uppskerubrests, flóða og uppflosnunar, sem oft reyn- ast undanfari neyðarástands auk þess að grafa undan lífsmöguleikum fólks til lengri tíma. Næsti milljarður nýrra jarðarbúa verður enn á barnsaldri árið 2025 þegar mannkynið verður að lík- indum 8 milljarðar. Nærri 90% þess- ara nýju heimsborgara verða börn sem búa í þeim hlutum heimsins sem skilgreindir eru sem þróunarlönd. Verkefnið sem UNICEF mun beita sér fyrir er að styðja áfram aukinn jöfnuð og sjálfbæra þróun á öllum sviðum svo börn hvarvetna megi nýta rétt sinn til farsæls lífs. Með Degi rauða nefsins er UNI- CEF að benda á þá gleði sem felst í því að gefa og hvað samtakamáttur einstaklinga getur lyft miklu grett- istaki til góðs. Við vonum því að þú látir ekki þitt eftir liggja og að þú ákveðir í dag að ganga til liðs við breiðfylkingu íslenskra heimsfor- eldra. Grín og gleði í dauðans alvöru Eftir Svanhildi Konráðsdóttur Svanhildur Konráðsdóttir » Aðalmarkmið Dags rauða nefsins er að hvetja landsmenn til að ganga til liðs við UNICEF og gerast heimsforeldrar. Höfundur er formaður stjórnar UNICEF á Íslandi. Bréf til blaðsins þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335 caruso.is · caruso@caruso.is við Erum líka á facebook Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi veitingastaðurinn caruso kynnir kósýkvöld með eyfa 4. árið í röð bjóðum við nú upp á hin geysivin- sælu „Kósýkvöld með Eyfa“, þar sem hinn ástsæli tónlistarmaður Eyjólfur Kristjánsson leikur og syngur íslenskar og erlendar dægurperlur, meðan matargestir njóta þriggja rétta ljúffengrar máltíðar á hinni rómantísku og notalegu 3. hæð okkar. Fimmtudagskvöldin 8., 15., 22. og 29. nóvember Fimmtudagskvöldin 6., 13. og 20. desember

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.