Morgunblaðið - 07.12.2012, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Félag íslenskra
hljómlistarmanna fagn-
ar í ár 80 ára afmæli
en félagið hefur verið
helsta vopn í hags-
munabaráttu hljómlist-
armanna frá upphafi.
Margs er að minnast
og fjölmargt hefur
gerst þessa áratugi
sem styrkt hefur stöðu
þeirra í því samfélagi
sem við lifum í í dag. Það byrjaði
smátt í upphafi þegar 14 ein-
staklingar söfnuðust saman á
Kirkjutorgi 4 og stofnuðu Félag ís-
lenzkra hljóðfæraleikara. Lög voru
skrifuð, samþykkt, stjórn kosin og
fyrsta tillaga félagsins leit dagsins
ljós en hún hljóðaði svona:
Vegna þess hvað útlendingar
hafa tekið mikla vinnu frá íslenzk-
um, bannar félagið hér með með-
limum sínum að spila á móti út-
lendingum nema fyrir fullt gjald
samkv. gjaldskrá félagsins. Fleira
var ekki gert og fundi slitið.
Síðan þetta var samþykkt hefur
mikið vatn runnið til sjávar og tón-
listarlíf þjóðarinnar tekið það stór-
stígum framförum að kalla mætti
stökkbreytingu. Því er fyrst fyrir
að þakka að við höfum borið gæfu
til, allt frá stofnun Tónlistarskól-
ans í Reykjavík 1930, að byggja
hér upp öflugt skólastarf á sviði
tónlistar. Nýir skólar bættust við í
kjölfarið. Í Reykjavík, á Ísafirði og
Akureyri voru stofn-
aðir skólar sem mót-
uðu umhverfi sitt
strax í upphafi. En
það varð fyrst með
löggjöf um fjárhags-
legan stuðning við
tónlistarskóla árið
1975 að byltingin
hófst og hefur staðið
yfir síðan. Í dag eru
84 tónlistarskólar í
landinu og fimmtán
þúsund nemendur
stunda þar nám.
Margir hæfir kennarar og hljóð-
færaleikarar eru þátttakendur í
þessu öfluga uppbyggingarstarfi.
Við höfum einnig notið þeirrar
gæfu að hingað til landsins hafa
komið góðir hljómlistarmenn alls
staðar að sem hafa miðlað til okk-
ar af þekkingu sinni og færni og
þannig auðgað tónlistarlíf þjóð-
arinnar. Í 80 ára sögu stétt-
arfélags hljómlistarmanna, FÍH,
hefur menntun hljómlistarmanna
ávallt verið í fyrsta sæti samhliða
kjarabaráttu. Með það í huga hef-
ur FÍH starfað í gegnum tíðina.
Félagið stofnaði Hljómlistarskóla
FÍH árið 1956 en hann starfaði því
miður ekki lengur en í eitt ár
vegna fjárskorts. 24 árum síðar
stofnaði félagið á ný tónlistarskóla
sem í dag er ein af öflugustu
menntastofnunum landsins. Með
stofnun Tónlistarskóla FÍH undir-
strikaði félagið sinn faglega metn-
að sem hefur einkennt starfsemi
þess fram til dagsins í dag.
Í 80 ára sögu Félags íslenskra
hljómlistarmanna hafa skipst á
skin og skúrir. Margir sigrar hafa
unnist og mörg helstu baráttu-
málin komist í höfn. Eitt helsta
baráttumál FÍH í gegnum tíðina
var bygging tónlistarhúss. Hinn
13. maí 2011 opnuðust dyrnar að
Hörpu, tónlistarhúsinu okkar, sem
við höfum barist fyrir í marga ára-
tugi. Með opnun Hörpu felst mikil
viðurkenning til handa hljómlist-
arfólki þessa lands. Harpa er ekki
venjulegt tónlistarhús. Harpa er
ævintýraheimur og þar gerast tón-
listarleg ævintýri á hverjum degi.
Alls hafa sótt tónleika 382.570
gestir og 1.650.000 gestir hafa lagt
leið sína niður á hafnarbakka til að
skoða húsið. Aldrei hafa jafn-
margir miðar verið seldir á tón-
leika hér á landi á einu ári og yf-
irleitt uppselt á alla tónleika.
Sinfóníuhljómsveit Íslands sem var
stofnuð 1950 þurfti að starfa í 60
ár við ófullnægjandi aðstæður en
hefur nú fengið drauminn upp-
fylltan. Hljómsveitin er einn helsti
máttarstólpi íslensks tónlistarlífs
og nýtur virðingar hérlendis sem
erlendis fyrir góðan flutning nýrr-
ar sem sígildrar tónlistar. Með
byggingu Hörpu fékk hljómsveitin
loksins starfsumhverfi sem henni
hentar og sæmir. En Harpa opn-
aði ekki eingöngu dyr sínar fyrir
Sinfóníuhljómsveit Íslands því
okkar frábæru hljómlistarmenn á
sviði hryntónlistar hafa stigið á
svið í þessu glæsilega húsi, troð-
fyllt salina og vakið aðdáun með
flutningi sínum. Þá hefur Stórsveit
Reykjavíkur fengið æfingar- og
tónleikaaðstöðu inni í Hörpu.
Harpa er tónlistarhús á heims-
mælikvarða sem hefur tekið tón-
listinni opnum örmum. Harpa kall-
ar nú á listamenn víðsvegar að úr
heiminum og nú síðast Berlínar
Fílaharmóníuna sem undirstrikaði
töfra hússins enn frekar með stór-
kostlegum tónleikum fyrir troð-
fullu húsi. Á þessu rúma eina og
hálfa ári frá opnun Hörpu hefur
tónlistarlíf þjóðarinnar færst skör-
inni hærra og um leið er sam-
félagið ríkara af verðmætum sem
telja ekki í krónum eða aurum
heldur lífsgæðum.
Harpa er ævintýraheimur og þar
gerast ævintýri á hverjum degi
Eftir Björn Theódór
Árnason » Í dag eru 84
tónlistarskólar
í landinu og fimmtán
þúsund nemendur
stunda þar nám.
Björn Th. Árnason
Höfundur er formaður Félags
íslenskra hljómlistarmanna.
Móttaka
aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfs-
fólk Morgunblaðsins alla virka
daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
einstakt
eitthvað alveg
S ó l o n í B a n k a s t r æ t i 7 e r s a m s t a r f s a ð i l i G a l l e r í L i s t . Þ a r s ý n i r Ú l f a r Ö r n o l í u m á l v e r k t i l l o k a d e s e m b e r .i r s s t r f s a i l i a l l e r í L i s t . Þ a r s ý n i r Ú l f a r Ö r n o l í u m á l v e r k t i l l o k a d e s e m b e r .
Úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn | Gallerí List Skipholt 50a | Sími 581 4020 | www.gallerilist.is