Morgunblaðið - 07.12.2012, Síða 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Draghálsi 14 - 16
110 Reykjavík
Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hin kunna leikkona Ólafía Hrönn Jónsdóttir er fimmtug í dag,fædd 7. desember árið 1962. Hún stendur í ströngu þessadagana enda mikið að gera í leikhúsinu. Hún fer með hlut-
verk í jólasýningu Þjóðleikhússins, Macbeth, sem verður frumsýnd
annan í jólum. Æfingar á verkinu standa nú yfir. Þá leikur Ólafía
Hrönn í Dýrunum í Hálsaskógi og verkunum Tveggja þjónn og Ástin.
Þrátt fyrir annir nær Ólafía Hrönn að halda upp á afmælið með
stæl. „Ég er svo heppin að ég er í fríi þetta kvöld, það er engin sýn-
ing, svo ég ætla að halda veislu. Ég býð fólkinu sem ég er alltaf að
vinna með og vinum og ættingjum. Vinkona mín hún Eyja er rekstr-
arstjóri afmælisins,“ segir Ólafía Hrönn. Hún ætlaði ekki að halda
upp á afmælið sitt en var svo gert tilboð sem hún gat ekki hafnað.
„Tinna og Ari sem vinna í Þjóðleikhúsinu komu með tilboð sem ég
gat ekki hafnað. Þau voru mjög góð við mig en ég má ekki segja
hvað tilboðið er. Svo eru tveir menn líka sem komu sterkir inn, þeir
Örn Árna og Baldur Trausti en þeir mönuðu mig til að halda upp á
afmælið mitt.“
Ólafía Hrönn hefur yfirleitt haldið upp á tuga-afmælin sín en lítið
gert þess á milli. Hún er ánægð með að eiga afmæli í desember.
„Þetta er allavega betra en að eiga afmæli á sumrin, þá kemst fólk
ekki í veislur. Svona snemma í desembermánuði er fólk í miklum
veislugír.“ ingveldur@mbl.is
Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona er 50 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmælisstuð Ólafía Hrönn Jónsdóttir fékk oft jólaskraut í afmæl-
isgjöf þegar hún var yngri en ekki lengur og er hún fegin því.
Mönuð til að halda
upp á afmælið
G
uðmundur fæddist í
Reykjavík og ólst upp í
Laugarneshverfinu.
Hann lauk prófi frá Far-
mannadeild Stýri-
mannaskólans í Reykjavík 1966 og
sótti námskeið í verkstjórn og vinnu-
hagræðingu.
Guðmundur var háseti á fiskiskip-
um, flutningaskipum, varðskipum og
um nokkurra ára skeið stýrimaður á
vitaskipinu Árvakri. Hann var starfs-
maður Sjómannafélags Reykjavíkur
1972-91, sat í stjórn þess frá 1972, var
formaður félagsins 1978-94, sat í
stjórn Sjómannasambands Íslands
1976-92 og í miðstjórn ASÍ 1984-92.
Guðmundur hefur setið í fjölda
nefnda um hagsmuna- og velferð-
armál sjómanna. Hann er stjórn-
arformaður Sjómannadagsráðs
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og
Hrafnistuheimilanna.
Guðmundur var varaborgarfulltrúi
1982-94, formaður hafnarstjórnar
Guðmundur Hallvarðsson, fyrrv. alþingismaður – 70 ára
Barnabörn Frá skírnarveislu Péturs Hrafns nú í haust. Frá vinstri: Sandra Rós og fyrir framan hana er Katrín Lind,
þá Hólmfríður María (amma Mæja) sem heldur á Pétri Hrafni, Karen Ósk og fyrir framan hana er Sóley María.
Lítur sáttur um öxl
Nýstúdent Guðmundur og Hólmfríður með elsta barnabarninu, Guðmundi
Ágústi Kristjánssyni, sem er nemi í Bandaríkjunum og efnilegur golfleikari.
90 ára Hulda Guðjónsdóttir frá Þórshöfn, nú á Eir í Reykjavík, er níræð í dag.
Eiginmaður Huldu var Daníel Gunnlaugsson frá Eiði á Langanesi. Börn þeirra
eru, talið f.v., Þorbjörg, látin, Guðrún (Minný), látin, Völundur og Ísabella.
Myndin er tekin uppúr 1950. Hulda dvelur á Eir á afmælisdaginn.
Árnað heilla
Akureyri Sigrún fæddist 22. mars kl
18.14. Hún vó 4.400 g og var 57 cm
löng. Foreldrar hennar eru Halldís
Gríma Halldórsdóttir og Björgvin Óli
Árnason.
Nýir borgarar
Reykjavík Herdís Helga fæddist 14.
mars. Hún vó 4.168 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Arnar Heið-
arsson og Herborg Hulda Sím-
onardóttir.