Morgunblaðið - 07.12.2012, Page 41

Morgunblaðið - 07.12.2012, Page 41
ÍSLENDINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012 Bæjarlind 16 I 201 Kópavogur I sími 553 7100 I linan.is Supreme Deluxe svefnsófi Opið mánudaga til föstudaga 12 - 18 I laugardaga 11 - 16 Extra þykk og góð springdýna Svefnbreidd 140x200 Rúmfatageymsla í sökkli kr. 169.800 Reykjavíkurhafnar 1986-94, með- dómandi í siglingadómi 1984-1990, átti sæti í framkvæmdastjórn Sjálf- stæðisfiokksins, var formaður verka- lýðsráðs flokksins og sat í miðstjórn hans, alþingismaður Reykvíkinga 1991-2007, sat í nefnd til að endur- skoða lög um þjóðfána Íslendinga 1995, var formaður þingmanna- nefndar um tillögugerð að stefnu- markandi áætlun í öryggismálum sjó- manna 1997-98, var formaður nefndar um sveigjanleg starfslok 2001-2002, sat m.a. í sjávarútvegs- nefnd, heilbrigðis- og trygginganefnd og var formaður samgöngunefndar 1999-2007. Málsvari fánans og fjölskyldu Guðmundur og Hólmfríður eru fjölskyldufólk af guðs náð og njóta samveru við hana, m.a. í sumarhúsi sínu í Grímsnesinu. Sjötta barnabarnið bættist nýlega í hópinn, en fyrsta barnabarnið fædd- ist á brúðkaupsdag afa síns og ömmu. Frá þeim degi hefur afmælisbarn dagsins aldrei gleymt brúðkaupsdeg- inum: „Það er einstök upplifun eftir að hafa sofnað með bókina á bring- unni og gleraugun á nefinu, að vakna við það að litlar hendur fjarlægja bók og gleraugu svo afi sofi betur. Sam- heldni hverrar fjölskyldu ræður miklu um líf okkar.“ Þú saknar ekki Alþingis? „Nei. Maður saknar kannski góðra félaga úr öllum flokkum. Að öðru leyti hugsar maður helst um það hvort manni hafi tekist að koma góð- um málum til leiðar. Í þeim efnum verða sum mál eftirminnilegri en önnur. Ég minnist t.d. yfirdrifinna viðbragða sumra þingmanna og emb- ættismanna við tillögu minni um að þjóðfáninn yrði hafður í þingsalnum. En það hafðist loks í gegn og þykir nú meira en sjálfsagt.“ Fjölskylda Guðmundur kvæntist 8.10. 1966 Hólmfríði Maríu Óladóttur, f. 19.9. 1946, hárgreiðslumeistara. Hún er dóttir Óla B. Jónssonar, íþróttakenn- ara og eins okkar frægasta knatt- spyrnuþjálfara, fyrr og síðar, og Guð- nýjar Guðbergsdóttur húsfreyju. Börn Guðmundar og Hólmfríðar Maríu eru Óli Björgvin Guðmundsson, f. 14.8. 1964; Guðný María Guðmunds- dóttir, f. 24.12. 1969, hjúkrunarfræð- ingur, gift Kristjáni Ágústssyni mark- aðsfræðingi en börn þeirra eru Guðmundur Ágúst, Karen Ósk og Katrin Lind; Davíð Stefán Guðmunds- son, f. 18.9. 1975, forstöðumaður hjá Símanum, kvæntur Sigurrós Péturs- dóttur, vörustjóra hjá Toyota og Lex- us en börn þeirra eru Sandra Rós, Sól- ey María og Pétur Hrafn. Bræður Guðmundar: Agnar, f. 4.11. 1929, d. 6.10. 2011, vélstjóri og verktaki; Helgi, f. 12.6. 1931, d. 14.3. 2008, var skipherra hjá Landhelg- isgæslunni; Birgir, f. 20.3. 1934, fyrrv. skrifstofumaður; Hilmar, f. 3.7. 1935, d. 9.7. 2000, var vélvirkjameistari; Gylfi, f. 13.8. 1937, d. 12.11. 2002, var starfsmaður Reykjavíkurhafnar. Foreldrar Guðmundar voru Hall- varður Hans Rósinkarsson, f. á Breiðabólstað á Skógarströnd á Snæ- fellsnesi 14.5. 1904, d. 6.3.1975, vél- stjóri, m.a. á skipum Landhelgisgæsl- unnar, og k.h., Guðfinna Lýðsdóttir, f. í Stóra-Langadal á Skógarströnd á Snæfellsnesi 4.5. 1904, d. 9.5. 1991, húsfreyja. Úr frændgarði Guðmundar Hallvarðssonar Guðmundur Hallvarðsson Illugi Daðason b. á Kljá Guðfinna Jónsdóttir húsfr. á Kljá Lýður Illugason b. á Kársstöðum Kristín Hallvarðsdóttir húsfr. á Kársstöðum Guðfinna Lýðsdóttir húsfr. í Rvík Guðný Sveinsdóttir húsfr. á Bíldsey Hallvarður Hans Sigurðsson b. í Litla-Langadal á Skógarströnd Steinunn Sigurborg Hallvarðsdóttir húsfr. í Rvík Rósinkar Guðmundsson verkam. í Rvík Hallvarður Hans Rósinkarsson vélstjóri hjá Land- helgisgæslunni Helga Rósinkarsdóttir húsfr. í Þorgeirsstaðahlíð Guðmundur Magnússon b. í Þorgeirsstaðahlíð í Miðdölum Sigríður Illugad. húsfr. á Gríshóli Ingibjörg Illugad. húsfr. í Litla-Langadal Guðrún Hallsd. húsfr. á Saurum í Helgafellssveit Leifur Kr. Jóhanness. ráðunautur Daði Kristjánss. b. í Drápuhlíð Sigfús Daðason skáld Lára Lýðsdóttir húsfr. í Hundadal Guðmundur Hans Einarsson læknir í Svíþjóð Helgi Hallvarðss. skipherra hjá Landhelgis- gæslunni Agnar Hallvarðsson vélstj. hjá FAO hjá SÞ. Valgerður Hallvarðsdóttir húsfr. í Rvík Gunnar Stefánsson blaðamaður Árni Gunnarss. framkvæmda- stj. NLFÍ Afmælisbarnið Guðmundur með íslenska fánann í bakgrunni. Gísli Sveinsson, alþingismaðurog sýslumaður í Skaftafells-sýslu, fæddist í Sandfelli í Öræfum 7.12. 1880, Foreldrar hans voru Sveinn Eiríksson (f. 4. ágúst 1844, d. 19. júní 1907) prestur þar og alþingismaður og kona hans Guð- ríður Pálsdóttir (f. 4. sept. 1845, d. 5. des. 1920) húsfreyja, dóttir Páls Pálssonar í Hörgsdal á Síðu. K. (6. júní 1914) Guðrún Pálína Einars- dóttir (f. 9. sept. 1890, d. 10. mars 1981) húsfreyja. For.: Einar Jón Pálsson, bróðir Eggerts Pálssonar alþingismanns, og kona hans, Sigríð- ur Láretta Pétursdóttir. Börn Gísla og Guðrúnar voru Guðríður, f. 1916, d. 1978, Sigríður Stefanía, f. 1920, d. 2011, Sveinn, f. 1924, d. 1989 og Guð- laug, f. 1926, d. 1999. Gísli lauk stúdentsprófi 1903 og lögfræðiprófi frá Hafnarháskóla 1910. Eftir nám varð Gísli yfirdóms- lögmaður í Reykjavík og síðan lög- fræðingur Landsbankans. Hann varð svo sýslumaður í Skaftafells- sýslu frá 1918 til 1947, og sat í Vík í Mýrdal. Hann var síðan sendiherra í Noregi frá 1947 til 1951. Gísli var alþingismaður 1916-1921, sagði þá af sér þingmennsku vegna veikinda en varð svo aftur þingmað- ur 1933-1947, fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Hann var forseti sameinaðs Al- þingis síðustu ár sín á þingi. Gísli gekkst fyrir vörnum gegn spönsku veikinni 1918 og annaðist ráðstafanir til hjálpar vegna Kötlu- gossins sama ár. Hann var kirkju- ráðsmaður 1937-1947 og aftur 1953- 1959. Hann varð fyrsti formaður Félags héraðsdómara. Gísli bauð sig fram til forseta lýð- veldisins 1952 en fékk aðeins 6% at- kvæða í fyrstu forsetakosningunum á Íslandi. Ásgeir Ásgeirsson hlaut 46,7% atkvæða og Bjarni Jónsson 44,1%. Gísli skrifaði margar greinar um sjálfstæðismál Íslendinga og kirkju- mál og samdi bækling um Kötlu- gosið 1918 og afleiðingar þess. Hann beitti sér mjög gegn því að stærstu fossar landsins yrðu í eigu erlendra fyrirtækja. Hann lést 30.11. 1959. peturatli@mbl.is Merkir Íslendingar Gísli Sveinsson 95 ára Guðrún S. Kristjánsdóttir 90 ára Hólmfríður Björgvinsdóttir 85 ára Magnea Þórðardóttir Rannveig Guðjónsdóttir Sigríður I. Sigurðardóttir Sigurrós Grímsdóttir Valgerður Sigurðardóttir 80 ára Helgi Árnason Lúðvíg Alfreð Halldórsson 75 ára Bragi Bjarnason Friðrikka Emilsdóttir Hreinn Guðjónsson 70 ára Elísabet E. Guðmundsdóttir Jens Berg Guðmundsson Kristín Helgadóttir Magnús Emilsson Margrét Sverrisdóttir Ómar Friðriksson Pétur Pétursson Sjöfn Jónasdóttir Svanhildur Guðbjartsdóttir Tryggvi Þorbergsson 60 ára Ásdís Herrý Ásmundsdóttir Elísabet Hákonardóttir Geir Guðmundsson Gunnar Svan Ágústsson Jónatan Ásgeir Líndal Jón Tómas Erlendsson Kristín M. Sigurðardóttir Lárus S. Sæmundsson Magnea Þ.Ásmundsdóttir Ragnheiður Antonsdóttir Sigurbirna Oliversdóttir Viðar Gunnarsson 50 ára Andrés Þ. Sigurðsson Ásta V. Guðmundsdóttir Brynja Björk Halldórsdóttir Einar Jónsson Inga Guðrún Sveinsdóttir Júlíus Magnússon Ólafía Hrönn Jónsdóttir Reynir Valdimarsson Sigita Stankeviciene 40 ára Artur Sebastian Gonder Cecilía Magnúsdóttir Gyða Sigurlaugsdóttir Karenina Kristín Chiodo Sigursveinn Þórðarson Sonja Eggertsdóttir Telma Ríkharðsdóttir 30 ára Berglind Ósk Guðgeirsdóttir Dagný Edda Þórisdóttir Dorota Marianna Gawek Filipa Isabel P. Samarra Kolbrún Ida Harðardóttir Kristín Rut Kjartansdóttir Lena Dögg Dagbjartsdóttir Mahder Zewdu Kebede María H. Guðmundsdóttir Ragnhildur G. Sigurðardóttir Rósalind Kristjánsdóttir Sigurður Hallvarðsson Til hamingju með daginn 30 ára Ómar hefur tæknimannsréttindi frá Comtia Plus og er tæknimaður hjá Tölvu- listanum. Maki: Laura Orsini Franca, f. 1987, nemi. Foreldrar: Ellert Ólafs- son, f. 1948, sjómaður, búsettur í Reykjavík, og Arnfríður Anna Sig- urgeirsdóttir, f. 1952, starfsmaður við rann- sóknarstofu Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Ómar Ellertsson 60 ára Marinó er fram- kvæmdastjóri Miðstöðv- arinnar í Eyjum. Maki: Marý Ólöf Kol- beinsdóttir, f. 1955, versl- unarmaður. Börn: Heiða Björk, f. 1974; Bjarni Ólafur, f. 1976; Ingibjörg, f. 1983, d. 1987, og Ingibjörg Ósk, f. 1990, og Sigursteinn, f. 1992. Foreldrar: Sigursteinn Marinósson og Sigfríður Björnsdóttir sem er látin. Sigurvin Marinó Sigursteinsson 30 ára Anton er nú bú- settur á Akranesi og starfar hjá Norðuráli. Maki: Anna Lísa Ævars- dóttir, f. 1986, nemi í snyrtifræði. Stjúpsonur: Samúel Örn Ólafsson, f. 2009. Foreldrar: Hafdís Jóns- dóttir, f. 1956, starfs- maður við leikskóla, og Sigurður Þ. Árnason, f. 1952, starfsmaður við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Anton Kristvinsson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.