Morgunblaðið - 07.12.2012, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2012
Hugmyndavefurinn Betri Reykja-vík er samráðsvettvangur á net-
inu þar sem íbúar borgarinnar geta
sett fram hugmyndir sínar um mál-
efni í sambandi við þjónustu og
rekstur Reykjavíkurborgar.
x x x
Samkvæmt frétt á vef borgarinnartaka íbúar virkan þátt í eftirliti
með götulýsingu í Reykjavík. Fram
kemur að í ár hafi verið unnið á
nokkrum stöðum í framhaldi af ósk-
um um endurbætur sem íbúar settu
á hugmyndavefinn Betri Reykjavík.
Í því sambandi er bent á að götu-
lýsing hafi verið bætt á göngu- og
hjólastíg í Elliðaárvogi, á göngu- og
hjólastíg bak við Korpuskóla, á
göngu- og hjólastíg við Rimaskóla, á
göngu- og hjólastíg í Grundarhverfi,
á gönguleiðum yfir Langholtsveg og
Sundlaugaveg og á göngu- og hjóla-
stíg norðvestan við Skautahöllina í
Laugardal.
x x x
Víkverji er ánægður með þessarframkvæmdir. Hann gerir sér
grein fyrir því að víða þarf að taka til
hendi en vonar að ákveðin hverfi
verði ekki útundan vegna þess að
íbúarnir veki ekki athygli á stöðu
mála.
x x x
Við Rauðavatn býr enginn en þarer vinsælt útivistarsvæði.
Helsta vandamálið er að borgin sinn-
ir göngustígunum ekki neitt. Þar er
engin lýsing og undanfarna daga
hefur verið stórhættulegt að ganga á
hálum göngustígunum sem hafa
aldrei séð sand eða salt frá borginni.
Jafnvel mannbroddar hafa ekki dug-
að göngufólkinu, sem vill helst ekki
missa dag úr úti í náttúrunni.
Það er kannski ekki beint for-
gangsverkefni að setja upp lýsingu á
þessu svæði en ekki er til of mikils
mælst að óska eftir því að göngustíg-
arnir séu ruddir, þegar á þarf að
halda og sand- eða saltbornir, þegar
staða þeirra er eins og hún er nú.
Í hinum enda bæjarins er einnig
vinsælt útivistarsvæði og Víkverji
spyr sem fyrr: Hvenær á að setja
upp lýsingu á göngu- og hjólastíg-
unum við Ægisíðu? víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd
börn eftir hinni andlegu, ósviknu
mjólk, til þess að þér af henni getið
dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.)
eftir Jim Unger
„ÞVÍ MIÐUR ER MYND AF ÞÉR VIÐ
SKÓGAFOSS EKKI ÞAÐ SAMA OG
SKILRÍKI MEÐ MYND.“
HermannÍ klípu
„ÞEIR ÆTTU AÐ KOMA
AFTUR FLJÓTLEGA.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að líða illa yfir
að þurfa að fara
án hennar.
Brottfarir
VIÐBÚINN AÐ
SKJÓTA AF-
GÖNGUNUM!
ÞAÐ ER MIKILVÆGT
AÐ ENDURVINNA.
HLAUPASKÓR
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að hrista af þér slenið,
bretta upp ermarnar og taka þinn þátt í því
sem gera þarf. Sigurinn er alltaf sætari ef
þú þarft að hafa fyrir honum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú kannt að freistast til að kaupa ein-
hverja munaðarvöru fyrir heimilið. Gefðu þér
tíma til að treysta fjölskylduböndin. Þú forð-
ast í lengstu lög að taka ákvörðun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er margt sem gengur þér í
haginn þessa dagana. Bara að þú hefðir
nægan tíma til þess að einbeita þér að einu
verkefni í einu. Sá dagur kemur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert þekkt/ur fyrir frábæra kímni-
gáfu. Vangaveltur um hvar þú sért staddur/
stödd í lífinu gefur þér drifkraft. Fram-
kvæmdu allt sem virðist skemmtilegt og
ánægjulegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Stöðugt mat þitt á því hvað þú getir
fengið út úr hlutunum kemur í veg fyrir að
þú tengist fólki. Tíminn mun leiða í ljós hvað
stenst og hvað ekki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt auðvelt með að laða fram það
besta í öðrum sem og að miðla málum þeg-
ar menn eru ekki á eitt sáttir. Taktu vítam-
ínin þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ættir að gera sparnaðaráætlun til að
tryggja framtíð þína. Notaðu orðið ómögu-
legt eins lítið og þú getur, eða helst alls
ekki.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Aðrir hafa áhuga á þér og gera
þig að miðdepli í samræðum með spurn-
ingum og almennri athygli. Ævisögur hafa
alltaf heillað þig, þú ættir að lesa eitthvað í
jólafríinu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er ákaflega gefandi að eiga
sálufélaga sem skilur þig og þekkir allar þín-
ar þarfir. Þú lætur undan relli krakkanna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Til þín kann að verða leitað um
forustu fyrir ákveðnum hópi. Sinntu vinum
þínum og gefðu þér tíma til að hlusta á þá.
Hreyfingin hefur setið á hakanum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Börn gætu orðið til þess að auka
mjög á skyldur þínar. Vanræktu ekki þinn
innri mann, heldur gefðu þér tíma til að
sinna andlegum þörfum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnst erfitt að sætta þig við þær
væntingar, sem þér finnst fólk gera til þín.
Sýndu göfuglyndi, þú munt ekki iðrast þess
síðar.
Móti hækkandi sól nefnist ritsem Árelía Eydís Guðmunds-
dóttir skrifaði og endurútgefið er á
þessu ári. En undirtitillinn er:
„Lærðu að virkja kraft vonar og
heppni í lífi þínu.“ Á upphafssíðu er
að finna bónorðsbréf í bundnu máli
sem Kristján Guðmundsson skrifar
til Árelíu Jóhannesdóttur árið 1945,
en það ber sömu yfirskrift og bókin
og hefur greinilega borið tilætl-
aðan árangur:
Móti hækkandi sól, móti himinsins
vídd,
vil ég halda með þér, ástin mín.
Þegar grundirnar anga í góðviðrisblæ,
þegar glóey á tindana skín.
Þá ótrauður held ég á ævinnar braut,
um ókunnar slóðir með þér.
Ég vil gefa þér alla mína gleði og sorg,
ég vil gráta og hlæja með þér.
Ég vil ganga með þér þó að gatan sé
þröng,
yfir grýtta og órudda slóð.
Þú ert gæfa mín öll, þú ert geisli sem
skín,
þú ert gleðinnar indæla fljóð.
Ég vil helga þér allt sem er háleitt og
blítt,
hverja hugsun, þá besta er ég á.
Ég vil syngja til þín öll mín sólfögru ljóð,
hverja saklausa ást hverja þrá.
Í augum þér sé ég hið sólbjarta vor,
er sál mín er alltaf að þrá.
Í örmum þér hníg ég í algleymis blund,
við yndisleg brjóstin þín smá.
Er fjarlægðin skilur mig frá þér um
stund,
getur framtíðin helst úr því bætt.
Ég orna mér best við þá eldheitu glóð
sem ástin til þín getur glætt.
Ármann Þorgrímsson er á allt
öðrum nótum er hann yrkir limru í
léttum dúr en með alvarlegum und-
irtóni:
Þó öllu til andskotans töpum
við yfir þeim sannleika göpum
að allt sé hér best
og auðlegðin mest,
við erum svo náskyldir öpum.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af hækkandi sól, öpum og
bónorðsbréfi