Morgunblaðið - 14.12.2012, Qupperneq 1
Bjór frá Ölv-
isholti, er nefn-
ist Lava, hefur
slegið í gegn á
erlendum
mörkuðum og
hefur brugg-
húsið ekki und-
an að framleiða
og senda út.
Mest er eftir-
spurnin í
Bandaríkjunum
og Svíþjóð en
einnig í Kan-
ada, Danmörku og Noregi. Útflutn-
ingur á bjór er orðinn um þriðj-
ungur af heildarframleiðslu
Ölvisholts, en framleiðslugeta
brugghússins er um 300 tonn af
bjór á ári. Það jafnast á við um eina
milljón bjórflaskna. Eftirspurnin
eftir Lava jókst enn meir í sumar
eftir að bjórinn var í fagtímaritinu
Draft Magazine valinn í hóp 25
áhugaverðustu nýrra tegunda á
markaðnum í Bandaríkjunum í ár.
Stóð valið þar um átta þúsund teg-
undir. bjb@mbl.is »4
Bjórinn Lava selst
grimmt erlendis
Öl Lava er ramm-
sterkur og dökkur.
F Ö S T U D A G U R 1 4. D E S E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 294. tölublað 100. árgangur
HVER FLÍK
TÁKNAR
HEIMSÁLFU
MIKIÐ UM
AÐ VERA Í
JÓLASKÓGUM
EIN STÆRSTA
BJÖRGUN
ÍSLANDSSÖGUNNAR
FÓLK SÆKIR TRÉ Í SKÓGINN 18 BÓK OG DISKUR ÞORSTEINS J. 44RAKEL HANNAR 10
Endurskoðun samninga
» Endurskoðun kjarasamninga
ASÍ og SA þarf að ljúka fyrir 20.
janúar. Áætlað er að samninga-
nefndir hittist á mánudaginn.
» Launþegar fá 3,25% hækk-
un launa hinn 1. febrúar, ef
kjarasamningar verða fram-
lengdir.
Helgi Bjarnason
Baldur Arnarson
„Það er klárt mál frá okkar hendi að
það er ekkert til okkar að sækja. Fyr-
irtækin eru ekki í stakk búin til að
taka á sig meiri launahækkanir,“ seg-
ir Vilmundur Jósefsson, formaður
Samtaka atvinnulífsins. Formenn að-
ildarfélaga Alþýðusambands Íslands
ákváðu á fundi í gær að krefjast meiri
launahækkana við endurskoðun
kjarasamninga í upphafi næsta árs en
gert er ráð fyrir.
„Við lítum svo á að forsendur kjara-
samninga séu brostnar, þó að allar
líkur séu á að hin almenna kaupmátt-
arviðmiðun standist. Verðbólgu- og
gengisforsendur samninganna hafa
hins vegar brostið. Í því felst að fyr-
irtæki í landinu og sveitarfélög og rík-
ið hafa leyst úr sínum vanda með því
að hækka verð á vörum og þjónustu
umfram það sem við gerðum ráð fyr-
ir,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, um rökstuðning fyrir kröfum
ASÍ um launahækkanir umfram það
sem gert er ráð fyrir. Hann telur þá
hækkun ekki duga til að verja kaup-
mátt launþega. Vilmundur bendir á
að kaupmáttur launa hafi aukist um-
talsvert frá síðustu kjarasamningum.
Það skipti mestu máli.
Vilmundur telur eðlilegt að ASÍ
snúi sér til ríkisstjórnarinnar með
þau mál sem hún hafi svikið. „Það var
niðurstaða okkar á fundinum í dag að
við ættum ekkert vantalað við þessa
ríkisstjórn,“ segir Gylfi og bætir því
við að búið sé að reyna það til þrautar.
„Tími ríkisstjórnarinnar kom og fór.“
»14
Ekkert til okkar að sækja
ASÍ krefst meiri kauphækkana Segist ekkert eiga vantalað við ríkisstjórnina
Formaður SA segir fyrirtækin ekki geta tekið á sig meiri launahækkanir
Morgunblaðið/Golli
Sungið á fundi Fulltrúar stjórn-
lagaráðs koma saman í fyrsta sinn.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það er engin ástæða til þess að fara
af hjörunum ef menn telja að ályktun
Alþingis sé ekki umboð til handa
stjórnlagaráði til þess að vinna þá
vinnu sem ráðið vann og var falið. Í
öðru lagi tók forseti Alþingis við til-
lögum stjórnlagaráðs og lagði þær
fram hér á Alþingi sem skýrslu sem
vísað var til stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar í fyrrahaust,“ segir Álf-
heiður Ingadóttir, þingmaður VG.
Tilefnið er þau ummæli Gunnars
Helga Kristinssonar, prófessors í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, í Morgunblaðinu í gær, að
stjórnlagaráð hafi verið umboðs-
laust.
Indriði H. Indriðason, dósent í
stjórnmálafræði við University of
California, Riverside, er meðal
þeirra sem hafa gefið umsögn um
stjórnlagafrumvarpið en hann gagn-
rýnir að stjórnlagaráð skuli ekki
rökstyðja tillögur að breytingum
sínum á stjórnarskránni. »12
Fari ekki „af hjörunum“
Þingmaður VG segir stjórnlagaráð hafa fullt umboð
Nú þegar sólin er hvað lægst á lofti er eins gott
að perur í ljósastaurum sem vísa okkur veginn í
svartasta skammdeginu séu í lagi og skipt sé
strax um þær perur sem bila. Skammt er þess að
bíða að dag fari að lengja að nýju en nú þarf að
treysta á götulýsingu stóran hluta dagsins.
Tryggir lýsingu í svartasta skammdeginu
Morgunblaðið/Golli
Sirkushátíðin
VOL.CAN.O
verður haldin í
Vatnsmýrinni 4.-
14. júlí 2013 og
verður á henni
boðið upp á sýn-
ingar fyrir alla
fjölskylduna.
Norræna húsið
stendur að hátíð-
inni í samstarfi
við Cirkus Cirkör frá Svíþjóð og
Cirkus Xanti frá Noregi. Fjögur
sirkustjöld verða reist við Norræna
húsið og boðið verður upp á sýn-
ingar fyrir alla fjölskylduna. »48
Sirkusþorp mun
rísa í Vatnsmýrinni
„Hattakona“ í
Cirkus Cirkör.
Tónlistarsala
fyrir jólin er á
góðu róli að sögn
framkvæmda-
stjóra Skífunnar.
Tónlistarmaður-
inn Ásgeir
Trausti ber höf-
uð og herðar yfir
aðra en því er
spáð að sala á
plötu hans, Dýrð í dauðaþögn, muni
fara yfir 20 þúsund eintaka markið
fyrir áramót en ólíklegt þykir að
nokkur önnur plata nái 10 þúsund
eintaka markinu.
Bóksala fer vel af stað en aðal-
jólavertíðin er enn framundan. Ís-
lenskar skáldsögur og handbækur
eru eftirsóttastar í jólapakkan. »4
Tónlist og bækur
í jólapakkann
Ásgeir Trausti
Þvörusleikir
kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
dagar til jóla
10