Morgunblaðið - 14.12.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Þönglabakka 1 (inní Nettó búðinni) » 109 Reykjavík » Sími 587 4900
Allt fyrir farsíma, smartsíma og fistölvur
Allar GSM rafhlöður
2.990.-
SanDisk minniskort og minnislyklar í miklu úrvali -
Micro-SD - SDHC - Compact Flash - Memory Stick
Gerið verðsamanburð!
iPad borðstandur - Festing fyrir
sætisbak fylgir 5.990.-
Landsins mesta úrval af GSM aukahlutum!
Nettir en öflugir ferðahátalarar fyrir iPod/iPhone/iPad
og aðra spilara eða síma.
Innbyggð rafhlaða. 4.990
Allt fyrir IPod og Ipad
Ipad bílhleðslutæki
1.490.-
Öll GSM bílhleðslutæki
990.-
12V tvídeilir 1490.-
Flott úrval 12V fjöltengja
í bílinn, húsbílinn eða fellihýsið.
12V þrídeilir með Micro-USB
útgangi og viðvörunarljósi ef raf-
geymirinn í bílnum er að tæmast
2.990.-
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
CASALL
MAGAHJÓL
3.790 kr.
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTAUKAHLUTA.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Við erum alfarið á móti þessum
breytingum,“ sagði Grétar H. Guð-
mundsson, formaður Landssam-
bands vörubifreiðaeigenda og öku-
kennari, um ákvæði frumvarps til
nýrra umferðarlaga varðandi aukin
ökuréttindi. Verði þau að lögum
munu atvinnubílstjórar stórra vöru-
og fólksflutningabíla þurfa að fara á
35 stunda endurmenntunarnám-
skeið á fimm ára fresti til að við-
halda réttindum sínum.
Eiga ekki við hér á landi
Grétar sagði að sér þættu auknar
kröfur sem á að innleiða samkvæmt
Evróputilskipun ekki eiga alfarið
við hér. Hann benti á að fjöldi ís-
lenskra ökumanna væri með aukin
ökuréttindi af einhverju tagi. Verði
frumvarpið að lögum væri í raun
verið að taka atvinnuréttindi af
fjölda ökumanna.
„Samkvæmt 75 grein stjórnar-
skrárinnar má ekki setja atvinnu-
frelsi skorður nema almannahags-
munir krefjist þess,“ sagði Grétar.
„Ég get ekki séð hvaða almennings-
hagsmunir knýja á um þessa breyt-
ingu.“
Grétar sagði að úti í Evrópu færi
endurmenntun atvinnubílstjóra
mikið fram á lokuðum æfingasvæð-
um. Þannig svæði eru ekki til hér á
landi.
„Í bóklega náminu þarna úti er
verið að kenna atvinnubílstjórum
hvernig á að fylla út pappíra þegar
farið er yfir landamæri. Það kemur
aldrei til með að skipta máli hér.
Þeir læra líka um viðskiptaumhverf-
ið og um samkeppni við vöruflutn-
inga með járnbrautarlestum og ann-
að slíkt. Það á lítið við hér. Það er
bara lítill hópur atvinnubílstjóra
sem fer héðan á hverju ári til Evr-
ópu vegna vinnu. Hvers vegna þurfa
þá allir aðrir atvinnubílstjórar á Ís-
landi að fara í 35 tíma endurmennt-
un til þess að þessir menn hafi rétt-
indi úti í Evrópu,“ spurði Grétar.
Hann kvaðst ekki hafa séð námskrá
fyrirhugaðra námskeiða hér en geta
nokkuð áttað sig á námsefninu með
því að lesa Evróputilskipunina.
Fáum fyrst evrópska vegi
„Þar er til dæmis fjallað um stað-
setningu bílsins á vegi og hvernig
við nýtum vegina í akstrinum. Sam-
kvæmt Evrópureglum eiga vegir að
uppfylla ákveðin skilyrði en þeir
gera það ekki á Íslandi. Íslenskir at-
vinnubílstjórar verða að fullnýta
vegina, sérstaklega þegar tveir
vörubílar mætast. Nú þarf að taka
upp reglur um ökuréttindi sam-
kvæmt tilskipun en það er ekki
hægt að skaffa okkur vegi sam-
kvæmt Evrópureglum! Eigum við
ekki bara að fá fyrst vegi sam-
kvæmt Evrópustöðlum og fara svo í
námskeiðin,“ spurði Grétar. Hann
kvaðst sjálfur hafa verið ökukennari
árum saman og ekki hafa neitt á
móti endurmenntun. „Manni finnst
þetta vera fullstórt skref varðandi
endurmenntunarkröfuna. Ég held
að við þurfum ekkert að kokgleypa
þessar Evrópureglur.“
Í Landssambandi vörubifreiða-
eigenda eru um 100 félagsmenn og
eru margir þeirra einyrkjar sem
gera út sína eigin vörubíla. Grétar
sagði að það mundi hafa gríðarlegan
kostnað í för með sér yrði frumvarp
til umferðarlaga samþykkt eins og
það liggur fyrir þingi.
„Menn eru að tala um að endur-
menntunarnámskeiðið muni kosta
um 150 þúsund krónur. Það þýðir
15 milljónir á fimm ára fresti fyrir
okkur í landssambandinu. Þetta er
ein vinnuvika í hvert skipti fyrir
hvern atvinnubílstjóra og því fara
tvö heilsársstörf í námskeiðssetu
bara í félaginu okkar. Námskeiðin
verða væntanlega haldin á þéttbýl-
ustu stöðunum. Þá eiga menn sem
ekki eiga þar heima eftir að koma
sér þangað og halda sér uppi í viku.
Allur sá kostnaður bætist við. Þetta
verður gríðarlega aukinn kostnaður
sem fer út í verðlagið.“
Vörubílstjórar ósáttir
við hertar kröfur
Morgunblaðið/Júlíus
Atvinnubílstjórar Krafist verður endurmenntunar á fimm ára fresti.
Spyr eftir veg-
um samkvæmt
Evrópustöðlum
Atvinnuréttindi bílstjóra
» Samkvæmt frumvarpi til
umferðarlaga verður sett í lög
að ökumenn sem stjórna öku-
tækjum í C1-, C-, D1- og D-
flokki til farþega- og farmflutn-
inga í atvinnuskyni, skuli gang-
ast undir endurmenntun á
fimm ára fresti.
Robert T. Kristjanson, fiskimaður á
Gimli, Tammy Axelsson, fram-
kvæmdastjóri Safns íslenskrar
menningarfleifðar á Nýja Íslandi,
og Tanis Grimolfson, fyrrverandi
sveitarstjórnarkona í Riverton,
voru sæmd afmælisorðu Elísabetar
II. Englandsdrottningar við hátíð-
lega athöfn á safninu á Gimli í Kan-
ada um helgina.
Í ár eru 60 ár síðan Elísabet II.
komst til valda. Tímamótanna hef-
ur verið minnst með ýmsum hætti
og í Kanada hafa 60.000 manns ver-
ið sæmdir sérstakri orðu drottning-
arinnar, sem var útbúin af þessu til-
efni, The Queen Elizabeth II
Diamond Jubilee Medal.
20.000 manns í kanadíska hern-
um hafa verið heiðraðir með þess-
um hætti, 20.000 manns í öryggis-
og björgunarstörfum eins og
slökkviliðsmenn og lögreglumenn
og 20.000 venjulegir borgarar, sem
hafa lagt sitt af mörkum í samfélag-
inu. steinthor@mbl.is
Ljósmynd/Bill Buckels
Orðuhafar Tammy Axelsson, Tanis Grimolfson, Dinah Ceplis og Robert T.
Kristjanson. Öll nema Dinah Ceplis eru af íslenskum ættum.
Fengu drottningar-
orðuna í Kanada
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt íslenska ríkið til að greiða Ein-
ari Marteinssyni, fyrrverandi leið-
toga Vítisengla, 150.000 kr. í skaða-
bætur vegna miska sem hann varð
fyrir vegna símahlustunar fyrir
þremur árum.
Einar hélt því fram fyrir dómstól-
um að símahlustunin hefði verið
ólögleg og að of langur tími hefði lið-
ið frá því hann var handtekinn eða
fékk réttarstöðu sakbornings þar til
hann fékk vitneskju um að hann nyti
ekki lengur slíkrar réttarstöðu.
Hann krafðist einnar milljónar
króna í bætur. Tekið skal fram að
hann var aldrei handtekinn í
tengslum við málið.
Síminn hleraður í mánuð
Fram kemur í dómi héraðsdóms,
að gögn málsins beri með sér að sími
Einars hafi verið hleraður frá 27.
febrúar 2009 til og með 26. mars
2009.
Samkvæmt kröfugerð lögreglu
fyrir héraðsdómi vegna símahlust-
unar voru auk fleiri brota til rann-
sóknar ætluð brot gegn almennum
hegningarlögum, stórfelldur inn-
flutningur á fíkniefnum, en sam-
kvæmt ákvæðinu varðar brot gegn
því allt að 12 ára
fangelsi.
Í dómnum
kemur fram að
Einar hafi aldrei
verið handtekinn
vegna málsins og
hann hafi fyrst
fengið vitneskju
um símahlustun,
og þar með að
hann hefði haft
réttarstöðu sakbornings, í maí 2011.
Honum var svo í október sama ár til-
kynnt um niðurfellingu málsins.
Símahlustuninni var hætt þann 20.
mars 2009, þrátt fyrir að heimild
héraðsdóms væri ekki útrunnin þar
sem talið var að hlustunin hefði ekki
varpað skýrara ljósi á ætlaða brota-
starfsemi stefnanda eða styrkt grun
um aðild hans að innflutningi fíkni-
efna.
Dómarinn mat það sem svo að
símahlustunin hefði valdið Einari
miska. Einnig bæri að líta til þess að
hann var sakaður um alvarleg afbrot
og að ekki hefðu verið rök til að
draga tilkynningu til Einars um að
símahlustun væri hætt.
Gjafsóknarkostnaður Einars,
910.191 kr., greiðist úr ríkissjóði.
Dæmdar bætur
fyrir símhlerun
Síminn hleraður í mánuð árið 2009
Einar
Marteinsson