Morgunblaðið - 14.12.2012, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 2012
Jólasprell Þeir voru kátir krakkarnir í Krikaskóla í Mosfellsbæ sem fengu jólasvein í heimsókn í gær en hann kom akandi á strætisvagni. Strætisvagnar höfuðborgarsvæðisins hafa nú verið
skreyttir með jólateikningum frá leikskólabörnum. Dregið hefur verið úr hópi þeirra leikskóla sem sendu inn teikningar og mun einn leikskóli í hverju sveitarfélagi fá heimsókn frá sveinka.
RAX
Fyrrverandi fjár-
málaráðherra og nú-
verandi atvinnu- og
nýsköpunarráðherra
ritar reglulega grein-
ar um það sem hann
telur vera glæsilegan
árangur í ríkisfjár-
málum. Nýjasta
greinin í þessari röð
birtist í Fréttablaðinu
í fyrradag (12. des.
2012). Þar er sem fyrr miklast af ár-
angri liðinna ára og eina ferðina enn
boðuð „tímamót í glímunni við halla-
rekstur ríkissjóðs“.
Sem betur fer þurfa landsmenn
ekki að búa við túlkun Steingríms
Sigfússonar á hagtölum um ríkis-
reksturinn. Þessi gögn liggja fyrir í
greinargóðu formi í útgáfum og á
heimasíðu Hagstofu Íslands. Vænt-
anlega endurspegla þessi gögn þann
veruleika sem Steingrímur biður um
að í heiðri sé hafður í grein sinni.
Hins vegar bregður svo við að sú
saga sem þessi gögn segja er ekki í
góðu samræmi við túlkun Stein-
gríms.
Veruleikinn
Allan stjórnartíma núverandi
ríkisstjórnar, frá 2009 og fram á
þennan dag, hefur ríkissjóður verið
rekinn með mjög miklum halla.
Þessi ferill er rakinn í mynd 1 sem
er meðfylgjandi. Þar kemur fram að
fyrstu tvö stjórnarár ríkisstjórn-
arinnar, 2009 og 2010, var hallinn
langt yfir 100 milljörðum hvort ár
eða 8-9% af vergri landsframleiðslu
(sbr. mynd 2). Öfugt við það sem
Steingrímur gefur í skyn í línuritinu
í grein sinni er það ekki svo að hall-
inn hafi minnkað á árinu 2010, fyrsta
heila árinu í hans ráðherratíð. Þvert
á móti hækkaði hann um 20 millj-
arða kr. eða um meira en 1% af
vergri landsframleiðslu (VLF). Halli
ríkissjóðs sem hlutfall af VLF óx
sömuleiðis úr 8,3% í 9,4% (sbr. mynd
2).
Frá árinu 2011 hefur hallinn
vissulega farið lækkandi. Sú lækkun
hefur hins vegar verið fjarska hæg-
fara. Árið 2011 var hallinn á rekstri
ríkissjóðs t.d. yfir 90 milljarðar kr.
og næstum 6% af VLF (myndir 1 og
2). Jafnvel á yfirstandandi ári, fjórða
árinu frá hruni, mælist hallinn
fyrstu þrjá ársfjórðungana um 35
milljarðar kr. og stefnir í yfir 50
milljarða á árinu í heild eða um 3%
af VLF.
samkvæmt fyrrgreindum gögnum
Hagstofunnar er nánar lýst í mynd
3. Eins og sjá má hefur skulda-
staðan vaxið hröðum skrefum og
nam í árslok 2011 yfir 55% af VLF.
Vegna hallarekstrar ríkissjóðs á
árinu 2012 hafa þessar skuldir enn
aukist. Rétt er að taka það skýrt
fram að í þessum tölum vantar ýms-
ar þekktar skuldbindingar rík-
issjóðs, m.a. vegna lífeyrissjóðs
starfsmanna ríkisins og ábyrgða á
sjóðum og stofnunum, t.a.m. Íbúða-
lánasjóðs.
Þessi mikla hækkun í hreinni
skuldastöðu ríkissjóðs er mikið
áhyggjuefni af a.m.k. þremur ástæð-
um.
Í fyrsta lagi fylgir henni vaxta-
kostnaður upp á tugi milljarða sem
rýrir getu ríkissjóðs til að sinna mik-
ilvægum málefnum samfélagsins,
þar með töldum velferðarmálum í
framtíðinni.
Í öðru lagi bætast hinar auknu
ríkisskuldir ofan á mjög erfiða
skuldastöðu þjóðarinnar í heild. Þær
veikja lánstraust þjóðarinnar út á
við og hækka þar með vaxtakröfuna
á Ísland erlendis. Skuldasöfnun ís-
lenska ríkisins er að áliti sérfræð-
inga ein af helstu ástæðunum fyrir
því að alþjóðleg matsfyrirtæki hafa
ekki fengist til að hækka mat sitt á
lánshæfi Íslands og skuldatrygg-
ingarálagið á ríkissjóð erlendis hef-
ur sorglega lítið lækkað.
Í þriðja lagi er þessi mikla skulda-
söfnun ríkisins bein ógn við getu
þjóðarinnar til að komast með sæmi-
lega heilli há út úr þeirri fjárhags-
kreppu sem hún hefur verið í. Áætl-
un sú um endurreisn íslensks
efnahags sem Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn og ríkisstjórnin komu sér
saman um í nóvember 2008 byggðist
á tveimur meginstoðum; (i) mynd-
arlegum hagvexti og (ii) aðhaldi í
ríkisrekstri og hallalausum ríkis-
rekstri innan fárra ára. Þetta var í
áætluninni taldið forsenda fyrir því
að Ísland kæmist út úr skuldakrepp-
unni. Hagvöxtur hefur því miður
reynst mun hægari en að var stefnt í
þessari áætlun. Eins og rakið hefur
verið hefur einnig verulega skort á
að markmiðunum í ríkisfjármálum
hafi verið náð.
Lokaorð
Hinn mikli hallarekstur ríkissjóðs
undanfarin fjögur ár felur í sér
verulega ógn við efnahagslega vel-
ferð íslensku þjóðarinnar á komandi
árum. Framvinda frumvarps til fjár-
laga fyrir árið 2013 á Alþingi og
reynslan af fjárlögum undanfarandi
ár bendir því miður ekki til þess að
nú séu að verða þau tímamót í glím-
unni við hallarekstur ríkissjóðs sem
Steingrímur Sigfússon hefur kynnt.
Þvert á móti bendir allt til þess að
þessi síðustu fjárlög núverandi ríkis-
stjórnar muni skerða enn frekar það
svigrúm sem þjóðin hefur til að losa
sig úr skuldafjötrum og skapa hér
velferð á varanlegum grunni.
Öfugt við það sem
gefið er í skyn í grein
Steingríms eru þessar
hallatölur ríkissjóðs há-
ar í samanburði við það
sem tíðkast í öðrum
Evrópuríkjum. Að með-
altali frá árinu 2009 til
2011 (eða áætlunar
2012) eru þær talsvert
yfir meðallagi Evr-
ópuríkjanna (OECD,
Economic Outlook
2012). Það er heldur
ekki rétt sem fullyrt er í
grein Steingríms að „hvergi í okkar
heimshluta þar sem ríkissjóðir hafi
lent í vanda vegna efnahagskreppu
[hafi] náðst viðlíka árangur síðast-
liðið ár eins og á Íslandi“. Sam-
kvæmt hagtölum frá OECD (Econo-
mic Outlook 2012) mun t.d. afkoma
ríkissjóðs Írlands batna mun meira
frá 2011 til 2012 en ríkissjóðs Ís-
lands. Allmörg önnur lönd eru talin
munu ná „viðlíka“ árangri.
Leiktöld fjárlaga
Það er eftirtektarvert að frá árinu
2010 hafa fjárlög undantekning-
arlaust gert ráð fyrir miklu minni
halla á rekstri ríkissjóðs en í raun
hefur orðið. Þessu er lýst í mynd 1,
þar sem halli á rekstri ríkissjóðs
samkvæmt fjárlögunum er sýndur
við hliðina á rauntölunum. Eins og
sjá má er munurinn ærinn – hallinn
er oft meiri en tvöföld áætlun fjár-
laga – og skiptir tugum milljarða og
nokkrum hundraðshlutum af VLF.
Spurnin er hvað valdi. Nærtækt
er að túlka þetta sem aðhaldsleysi í
framkvæmd fjárlaga, sem er ekki í
samræmi við þá mynd sem Stein-
grímur vil fá okkur til að trúa. Það
er einnig hugsanlegt að þetta van-
mat á hallanum sé gert viljandi til að
blekkja löggjafann og almenna kjós-
endur. Hver sem ástæðan er má
ljóst vera að svona mikil frávik eru
stjórnarfarslega skaðleg og geta
seint talist til fyrirmyndar í ríkis-
rekstri.
Hættulegur hallarekstur
Það sem af er stjórnartíma núver-
andi ríkisstjórnar, þ.e. frá árinu
2009 og út þriðja ársfjórðung 2012,
nemur samanlagður halli á rekstri
ríkissjóðs mældur á verðlagi hvers
árs um 400 milljörðum króna (Hag-
stofan, Þjóðhagsreikningar 2012:3
og 2012:15). Þessi uppsafnaði halli
hefur eðli málsins samkvæmt bæst
við mjög alvarlega skuldastöðu
ríkissjóðs. Þróun hinnar hreinu
skuldastöðu sem hlutfalls af VLF
Eftir Ragnar
Árnason »Hinn mikli halla-
rekstur ríkissjóðs
undanfarin fjögur ár
felur í sér verulega ógn
við efnahagslega velferð
íslensku þjóðarinnar á
komandi árum.
Ragnar Árnason
Höfundur er prófessor í hagfræði
við Háskóla Íslands.
Sannleikurinn um ríkisfjármálin
Rekstrarhalli ríkissjóðs
Milljarðar króna, verðlag hvers árs. 2012 áætlað
180,0
160,0
140,0
120,0
100,0
80,0
60,0
40,0
20,0
0,0
2009 2010 2011 2012
Rekstrarhalli ríkissjóðs
Halli skv. fjárlögum
Halli á rekstri ríkissjóðs
Sem hundraðshluti af VLF (2012 áætlað)
10.0%
9,0%
8,0%
7.0%
6,0%
5,0%
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0,0%
2009 2010 2011 2012
Hreinar skuldir ríkissjóðs
Sem hundtaðshluti VLF
60,0%
50,0%
40,0%
30,0%
20,0%
10,0%
0,0%
-10,0%
2007 2008 2009 2010 2011
Tafla 1
Tafla 2
Tafla 3