Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 2

Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR ÍSLENSKUR OSTUR 100% Í janúarkuldanum getur verið gott að ylja sér og leika í hlýrri innisundlaug eins og þessir krakk- ar voru að gera í Árbæjarlaug þegar ljósmynd- ara bar að garði. Verðskrá sundlauganna hækk- aði um áramótin en starfsfólk laugarinnar hefur ekki orðið vart við að það hafi áhrif á aðsóknina. Buslað og brugðið á leik í hlýrri lauginni Morgunblaðið/Ómar Aðsókn í sundlaugina ekki breyst við gjaldskrárhækkun um áramótin Kjartan Kjartansson Anna Lilja Þórisdóttir Sex sjúklingar voru fluttir af Land- spítalanum á heilbrigðisstofnanirnar á Selfossi, Akranesi og Suðurnesjum til að létta álagi af spítalanum. Óvissustigi var lýst yfir á nýjan leik þar í gær vegna skorts á sjúkrarým- um. Tveir sjúklingar voru fluttir á hverja þessara þriggja stofnana. „Þetta er tímabundin ráðstöfun á sjúklingum sem eru taldir þola vel flutning og þurfa ekki á sérhæfðri þjónustu að halda,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. Ekki hefur verið ráðist í það að takmarka eða jafnvel banna heim- sóknir á sjúkrahúsið en Björn segir að þeim tilmælum hafi verið beint til fólks undanfarnar þrjár vikur að halda heimsóknum í lágmarki. „Við sjáum þetta ekki sem vanda- mál eins og var á tímabili þegar heimsóknir voru óheftar. Nú hefur fólk dregið mjög úr heimsóknum en það er ekki búið að banna þær eða takmarka á annan hátt en að höfða til skynsemi heimsóknargesta og ættingja sjúklinga,“ segir hann. Gengur ekki til lengdar Að sögn Björns var hætt við tugi meðferða og aðgerða sem höfðu ver- ið fyrirhugaðar í gær og þannig hef- ur það verið undanfarna viku. „Þessi ráðstöfun dugar kannski í skamman tíma, en ekki til lengri tíma litið. Fólkið þarf auðvitað að komast í sínar aðgerðir og meðferð- ir,“ segir Björn. Alls eru 37 sjúklingar í einangrun þar og um það bil fjörutíu fleiri sjúk- lingar en mönnun gerir ráð fyrir að sögn Ólafs Baldurssonar, fram- kvæmdastjóra lækninga á Landspít- alanum. Því var ákveðið að virkja viðbragðsáætlun spítalans og hann settur á svokallað grænt óvissustig. Það er gert í samráði við Almanna- varnir og er staðan metin daglega. Hann segir starfsfólk spítalans vera undir miklu álagi en það standi sig gríðarlega vel. Þetta aukna álag geri það að verkum að kalla hefur þurft fólk á aukavaktir. Ólafur segir það hafa gengið vel, en ekki sé enda- laust hægt að leggja svona mikið á fólk. Í gær biðu alls 47 sjúklingar á Landspítala, sem þegar eru komnir með vistunarmat, eftir vistun á hjúkrunarheimilum. Að auki biðu 55 sjúklingar á spítalanum eftir sjö daga öldrunarendurhæfingu og hafa þeir aldrei verið fleiri. Meiri óvissa á spítalanum  Heilbrigðisstofnanir í nágrenni Reykjavíkur létta á álaginu á Landspítalanum með því að taka við sjúklingum  Óvissustigi lýst á ný vegna skorts á rýmum Morgunblaðið/Golli Óvissuástand Mikið álag er nú á starfsfólki Landspítalans. Vegir á norðanverðu landinu og Vestfjörðum lokuðust í gær í ofviðri sem átti ekki að byrja að ganga niður fyrr en nú í morgun. Öxnadalsheiði var lokað í gær en þar þurftu björgunarsveitarmenn að aðstoða nokkra ökumenn sem sátu fastir eða höfðu ekið út af veginum. Þá var ófært á Siglufjarðarvegi, utan Hofsóss, og um Víkurskarð. Á Vestfjörðum var ófært um Klettsháls og á Þrösk- uldum en auk þess var þæfingsfærð á Gemlufallsheiði og Steingrímsfjarðarheiði. Truflanir voru á rafmagni en við- gerðarflokkar þurftu frá að hverfa við viðgerðir á Breiða- dalslínu 1 vegna veðurs í gærkvöldi. Halda átti viðgerðunum áfram nú í morgun, ef veður leyfði. Þá voru truflanir á Hrafnseyrarlínu og þurfti af þeim sökum að skammta rafmagn fyrir Þingeyri og Dýrafjörð. Einnig þurfti að skammta rafmagn til íbúa á Ísafirði og í Bolungarvík í gærdag. Björgunarsveitir á Norðurlandi sinntu ýmsum útköllum vegna veðursins síðdegis og í gærkvöldi, þar á meðal vegna lausra þak- platna og ýmislegs lauslegs sem fauk. kjartan@mbl.is Rafmagnstruflanir og ófærð vegna veðursins Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Snjókoma Slæmt veður hefur gert ítrekað á norð- anverðu landinu í vetur. Myndin er úr safni.  Vonskuveður geisaði á norðanverðu landinu Viðræðum hjúkrunarfræðinga og stjórnenda Landspítalans um end- urnýjun stofnunarsamnings þeirra var frestað eftir fund þeirra í gær. Ekki hefur verið ákveðið hvenær fundað verður í kjaradeilunni á nýjan leik. Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, segist búast við að fundað verði aftur síðar í vikunni. Viðræðurnar hafi verið komnar ágætlega áleiðis. „Þetta er flókið mál og vænting- arnar miklar. Ég er alltaf nokkuð bjartsýnn. Það er ekki val um neitt annað en að ná samningum. Ég vona bara að það verði áfram samningavilji á ábyrgan hátt hjá hjúkrunarfræð- ingum,“ segir hann. Menn ráði í stöðuna „Við mátum stöðuna þannig að það væri rétt að gera hlé á viðræðunum. Næsti fundur hefur ekki verið ákveð- inn, menn verða svo bara að ráða í þá stöðu,“ segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga. Hún vildi ekkert tjá sig um stöðu viðræðnanna að öðru leyti. kjartan@mbl.is Hlé gert á samninga- viðræðum Elsa B. Friðfinnsdóttir  Býst við fundum síðar í vikunni Björn Zoëga Karlmaður á fertugsaldri fannst lát- inn utandyra á Kópaskeri á sunnu- dagsmorgun. Talið er að hann hafi orðið úti á leið heim af þorrablóti í bænum á laugardagskvöld. Aftakaveður gekk yfir Norðurland aðfaranótt sunnudags með slyddu- hríð og miklu roki. Að sögn lögregl- unnar á Húsavík er málið til rann- sóknar en ekkert hefur komið fram sem bendir til þess að andlát manns- ins hafi borið að með saknæmum hætti. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu. Varð úti á Kópaskeri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.