Morgunblaðið - 29.01.2013, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.01.2013, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 ✝ Tómas ÆvarSigurðsson fæddist á Akranesi 23. desember 1939. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 20. jan- úar sl. Foreldrar hans voru Sigurður Kristinn Þorvalds- son og Svafa Sím- onardóttir, bæði lát- in. Systkini Tómasar eru: Þórir, f. 1937; Sigurður Andri, f. 1941, látinn; Viktor Grímar, f. 1944; Sigríður Selma, f. 1947; Sigrún, f. 1950; Bryndís, f. 1951, látin. Þann 23. desember 1961 kvæntist Tómas eftirlifandi eig- inkonu sinni, Kristjönu Ragn- arsdóttur f. 13. mars 1941. Þau eignuðust tvær dætur: 1) Kristín Svafa f. 17. desember 1960, gift Ólafi Rúnari Björns- syni. Börn þeirra eru: Eyrún Sif, í sambúð með Guð- mundi Óttari Sig- urjónssyni, dóttir þeirra er Helena Sif; Tómas Ævar og Silvía Sif. 2) Dísa Lind, f. 18. sept- ember 1969. Henn- ar sonur er Tómas Þórisson. Tómas Ævar hóf sjómennsku 15 ára gamall og var það hans aðalstarf. Lengst starfaði hann hjá útgerðarfyrirtækinu Haraldi Böðvarssyni & Co. Fyrir tæpum 14 árum veiktist hann og var óvinnufær frá þeim tíma. Útför Tómasar fer fram frá Akraneskirkju í dag, þriðjudag- inn 29. janúar 2013 og hefst at- höfnin kl. 14. Elsku besti afi. Það er svo margt sem minnir okkur á þig og það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar við hugsum um þig. En þær minningar um þig sem eru í hvað mestu uppáhaldi hjá okkur eru minningarnar úr veiðiferð- unum okkar saman. Þær voru svo skemmtilegar og þar varst þú í essinu þínu enda þaul- reyndur sjómaður. Þú sást um að græja stangirnar, setja beitu á önglana, prófaðir alls konar tegundir af beitu og það sem gafst best hjá okkur var maís- inn. Þú kenndir okkur að kasta út og hjálpaðir okkur að fylgjast með flotholtunum okkar. Svo þegar lítið gafst strunsaðir þú áfram með þína stöng og próf- aðir að kasta hér og þar í vatn- inu. Svo færðum við okkur þar sem þú varðst var við einhverja fiska. Þú gekkst svo frá þeim fiskum sem veiddust. Þegar nóg var komið af veiði fórstu svo með okkur að skoða fuglana og varpið, við fengum að sjá fullt af ungum sem voru nýskriðnir úr eggjunum. Foreldrar unganna voru ýmist með leiktilburði til að fæla okkur í burtu eða reyndu að gagga í hausinn á okkur. Við munum vel eftir því þegar krían náði að gagga í höf- uðið á þér og þú fékkst sár eftir hana. Eftir það fór nafni þinn með hjálm í fuglaleiðangrana. Við munum eftir því að við krakkarnir fundum aldrei nein hreiður eða unga en þú virtist sjá þetta úti um allt líkt og þú værir með þá á ratsjá. Við krakkarnir vorum svo mikið að reyna að leita en fundum aldrei neitt. Í eitt skiptið þegar við vorum að skoða fuglana og ung- ana lokuðumst við inni í hólm- anum þar sem varpið var af því það hafði komið flóð á meðan. Þegar við ætluðum til baka sett- ir þú okkur á hestbak eitt í einu og barst okkur yfir vatnið. Við munum eftir því að þú þurftir að vaða vatnið upp í mitti. Þessir veiðitúrar voru svo skemmtileg- ir og eru okkur mjög eftirminni- legir. Þarna varstu líka svo líkur sjálfum þér og virtist njóta þess að vera þarna úti í náttúrunni. Við munum geyma þessar og miklu fleiri minningar um þig í hugum okkar og hjörtum. Okkur langar til að enda þessa minningu okkar um þig á bæn sem hún amma Kiddý fór svo ógleymanlega með á sjúkra- húsinu eftir að við höfðum kvatt þig hinsta sinni. Þetta var svo falleg stund sem við áttum sam- an og bænin var svo viðeigandi. Að heyra ömmu fara með bæn- ina yfir þér er minning sem á sérstakan stað í okkar hjörtum. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Með mikilli ást og miklum söknuði, Eyrún Sif og Tómas Ævar. Jæja, þá ertu farinn blessað- ur afi minn. Ég hef ekki enn náð að tengja þetta laugardagskvöld við raun- veruleikann, fyrir mér er þetta ennþá eins og draumur eða at- riði úr kvikmynd. Þegar fjöl- skyldan lítur yfir farinn veg og minnist þín þá vex stolt í hjarta mér. Það eru ekki margir sem eiga jafn ævintýragjarnan afa sem ferðaðist um heiminn á tog- urum og skrölti um þjóðveginn, malaðan, á bílskrjóðnum sínum með forvitnina í fararbroddi. Ég man sérstaklega eftir því þegar þú spurðir mig um þær borgir sem ég stefndi á að heimsækja á ferðalagi mínu um Evrópu að þá hafðir þú nánast komið til þeirra allra og gast sagt mér örlítið frá hverri. Oft kom það fyrir í ferðalögum mínum að ég staldr- aði við og hugsaði eitthvað á þessa leið: „Ætli afi hafi gengið þessa götu fyrir nokkrum árum, séð þetta torg, komið þarna í höfn?“ Þrátt fyrir góðmennsku þína og velvild kenndir þú mér einn- ig verðmæta lexíu um harðan gang lífsins. Ég man sérstak- lega vel, þrátt fyrir ungan aldur, eftir að hafa landað fiski í einni af vinsælu veiðiferðunum okkar að þá var komið að því vanda- sama en harkalega verki að rota fiskinn. Þú réttir mér nokkuð stóran steinhnullung í hönd og sagðir mér að slá fiskinn á höf- uðið með honum. Það leist mér illa á í fyrstu en lét þó verða af því. Á þessu augnabliki gerði ég mér ekki fyllilega grein fyrir því hvað ég hafði gert, þetta var kannski svolítið harkalegur at- burður fyrir minn litla og sak- lausa huga að skilja. En með tíð og tíma skildi ég betur og betur af hverju þetta var gert og gerði mér betur grein fyrir því hvern- ig kjötið endaði á diskum okkar. Það er ein minning sem ég mun einnig varðveita til langs tíma og það er armæðan sem þú ollir mér stundum á jólunum. Þannig er mál með vexti að pakkaspenningurinn fór alveg með mig stundum og biðin var oft erfið þegar verið var að borða. Þú hjálpaðir mér stund- um að svala þorstanum með því að laumast til að lesa á nokkur kort og spá og spekúlera hvað væri í hvaða pakka, jafnvel hrista þá aðeins til. Hins vegar áttirðu það til að leggja þig í ör- litla stund eftir matinn og móðir mín brýndi það fyrir mér að ekki skyldu pakkarnir opnaðir fyrr en þú vaknaðir. Ég hrein- lega skildi ekki hvernig nokkur manneskja gat sofnað svona rétt áður en pakkarnir voru opnaðir. En í dag skil ég þig fullkomlega og þakka sjálfum mér fyrir að hafa aldrei vakið þig. Hver væri ekki til í að leggja aftur augun í smástund og stimpla sig út úr öllu stress- inu sem fylgir aðfangadags- kvöldi, í dag hef ég sko ekkert á móti því og ef ég verð einhvern tímann afi skal ég reyna að feta í þessi spor þín. Þín verður sárt saknað og ég mun ávallt muna þig. Þinn nafni, Tómas Ævar. Elsku besti afi. Ég sakna allra góðu stundanna okkar. Við vorum svo oft saman og vorum svo góðir og nánir vinir. Ég sakna þess að geta horft með þér á golf eða fótbolta. Þær eru í svo miklu uppáhaldi hjá mér stundirnar sem við áttum saman yfir golfmótum í sjónvarpinu. Við settum golfhúfurnar okkar upp og horfðum saman á golfið. Við giskuðum á og þvörguðum um hver væri bestur og hver myndi hitta ofan í og hver ekki. Svo var þvílík spenna að fylgjast með hvor okkar hafði rétt fyrir sér. Það var mikið stuð og mjög mikið hlegið. Það var oft svo mikil spenna í loftinu að ég hoppaði um í sófanum í stofunni og þú fylgdist spenntur með úr stólnum þínum. Ég sakna þess líka að fylgjast með fótboltanum með þér. Þú varst nú ekki mikið fyrir fót- bolta hér áður, en þegar ég fór að æfa fótbolta og hafa áhuga á honum fórst þú að horfa á enska og spænska boltann með mér. Þú settir þig líka inn í allt sem var í gangi í boltaheiminum og fylgdist vel með öllu fréttnæmu þaðan. Svo sagðir þú mér frá öllu sem var að gerast þegar ég kom til þín, hvaða leikmenn var verið að kaupa eða selja, hverjir voru í leikbanni og svo fram- vegis. Þú minntir mig líka alltaf á hvenær ÍA-leikur væri. Svo fannst mér líka svo gaman að því hvað þú varst áhugasamur að fylgjast með mér þegar ég var sjálfur að keppa í fótbolt- anum. Þú spurðir mig alltaf hvernig leikirnir fóru og hvern- ig gekk. Þú hélst nú alltaf með mínu liði, sama hvert það var, þó að það hafi ekki verið ÍA. Þú hafðir líka mjög gaman af því að djóka í mér þegar ég var í Fram eða Víkingi og ÍA gekk betur en þeim. En svo varst þú náttúr- lega mjög sáttur þegar ég flutt- ist á Skagann og byrjaði að spila með ÍA, liðinu þínu. Ég sakna þess að geta spjall- að við þig. Við gátum spjallað um allt milli himins og jarðar. Ég leitaði oft til þín til þess að fá upplýsingar varðandi verk- efni sem ég var að vinna í skól- anum. Þegar ég var til dæmis í þema um hvali fyrir áramót þá gast þú sagt mér allt um þá eins og hvar þá væri að finna og hverjir væru stærri en aðrir. Þú vissir allt um þetta, enda var allt sem tengdist sjónum áhuga- mál og náttúrlega líka vinnan þín í mörg ár. Við fórum oft út saman, þú á stólnum þínum og ég á hjólinu. Við fórum meðfram Langasandinum og ræddum málin á meðan. Á sumrin fórum við líka stundum í sjoppuna saman og keyptum ís. Mér fannst það mjög gaman. Stund- um fórstu líka einn og komst svo með ís til okkar ömmu. Ég er svo heppinn að eiga svona góðar minningar um stundirnar okkar saman. Takk fyrir þær allar. Ég vil ljúka þessu með orðum sem þú hefur oft heyrt mig segja við þig: Ég elska þig afi. Láttu þér líða vel í hjartanu. Guð geymi þig. Ég vil að þér líði vel. Þinn vinur og afastrákur, Tómas. Nú er kallið komið og við kveðjum hinstu kveðju mann sem gefið hefur okkur svo margt í gegnum áralanga vináttu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem.) Við hugsum til allra stund- anna sem við áttum saman, það eru dýrmætar minningar sem við munum aldrei gleyma. Við vitum að þú ert kominn á góðan stað. Við vitum að þér líður núna vel. Við kveðjum þig með sökn- uði og takk fyrir allt. Hvíl í friði, elsku vinur. Magnea og Pétur. Tómas Ævar Sigurðsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRA BIRGIT BERNÓDUSDÓTTIR, Brimhólabraut 17, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmanna- eyjum laugardaginn 26. janúar. Útför hennar fer fram frá Landakirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Líkn. Sveinn Halldórsson, Ágústa Berg Sveinsdóttir, Gunnar Árni Vigfússon, Bernódus Sveinsson, Kristín Björg Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar bróður okkar og mágs, GUÐMUNDAR REYNIS JÓHANNSSONAR. Einnig viljum við þakka starfsfólki líknardeildar Landspítalans, Kópavogi, og starfsfólki á deild 11E, Landspítalanum við Hring- braut, fyrir góða umönnun og hlýju. Hildur Ósk Jóhannsdóttir, Jón Bjarni Jóhannsson, Anna Ingibjörg Benediktsdóttir, Lóa Björg Jóhannsdóttir, Bergsteinn Karlsson. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORVALDUR JÓNSSON, fyrrverandi umdæmisfulltrúi Pósts og síma á Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn 24. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. febrúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir eða björgunarsveitir Landsbjargar. Rósa María Sigurðardóttir, Guðbjörg Þorvaldsdóttir, Hallgrímur Jónasson, Hildur Björk Sigbjörnsdóttir, Stefán Geir Árnason, Guðrún Ýr Sigbjörnsdóttir, Magnús Jónsson, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Katrín Jónsdóttir, Rósa María Sigbjörnsdóttir og langafabörnin. ✝ Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, KARÓLÍNA FRIÐRIKA HALLGRÍMSDÓTTIR, Laugarvegi 33, Siglufirði, sem andaðist miðvikudaginn 23. janúar, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlega bent á Björgunarsveitina Stráka, bankareikn. 1102-26-2717, kt. 551079-1209. Ólöf Þórey Haraldsdóttir, Ásgeir Sigurðsson, Helga Haraldsdóttir, Erlingur Björnsson, Ragnheiður Haraldsdóttir, Árni Haraldsson, Ragnheiður Árnadóttir, Eyþór Haraldsson, Árni Þór Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, bróðir og mágur, GUNNAR KRISTINSSON, Hásteinsvegi 6, Vestmannaeyjum, varð bráðkvaddur föstudaginn 11. janúar. Útför hans fór fram í kyrrþey frá Landakirkju laugardaginn 26. janúar. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Valgerður Andersen, Helga Kristinsdóttir, Ríkharð Laxdal. ✝ Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma, langamma og langalangamma, HREFNA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Fögrubrekku 29, Kópavogi, andaðist laugardaginn 12. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Ólafur Emilsson, Sigrún Ragna Jónsdóttir, Jón Emilsson, Magga Hrönn Árnadóttir, Dóróthea I. Emilsdóttir, Jón Gröndal, Dagný Emilsdóttir, Geir Waage, Valgeir Jón Emilsson, Unnur Kristinsdóttir, Björn Emilsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.