Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 4

Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Fólk á förnum vegi um úrskurð EFTA-dómstólsins Hvað finnst þér um niðurstöðuna um Icesave?    „Þetta er gleðiefni, þetta er gleðidagur. Og maður bjóst alltaf við þessu.“ Áttirðu von á því að niðurstaðan yrði þessi? „Já, ég neitaði að borga og var einn af þeim sem kusu nei við samn- ingnum sem hann ætlaði að fela fyrir okkur, hann Steingrímur. Hann ætlaði ekki að birta þennan samning í þinginu. Hann var bara neyddur til þess. Þetta er mjög alvarlegt mál. En nú er hann boru- brattur.“ Hvað finnst þér að ætti að gerast í framhaldinu? „Þeir ættu að segja af sér þeir þingmenn sem vildu borga þetta, mér finnst það.“ Baldur Einarsson eftirlaunaþegi    „Ég er afskaplega lukkulegur.“ Áttirðu von á þessari niðurstöðu? „Nei, eigin- lega ekki. Þetta var dálítið óklárt fannst mér. Nei, ég gerði mér ekki grein fyrir því en ég vonaði það besta.“ Hvað finnst þér að eigi að gerast í framhald- inu, finnst þér að einhver eigi að axla pólitíska ábyrgð? „Nei, í sjálfu sér ekki. Mér finnst bara að nú eigi menn að standa uppréttir, bæði stjórn og stjórn- arandstaða, ekki vera með neinar ádeil- ur. Og helst náttúrlega að fá þá til að biðjast afsökunar á þessum orðum sín- um úti, Hollendinga og Breta.“ Sævar Stefánsson fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður    „Þetta er frábært. Mér finnst þetta æð- islegt hvernig þau fá þetta í hausinn núna, Jóhanna og Steingrímur, að vera á móti þessu.“ Greiddir þú atkvæði á móti Icesave-samningnum? „Já. Og þetta er bara þannig að nú eru þau með skottið á milli lappanna og eiga að hundskast í burtu. Þetta er í raun bara högg í andlitið. Mér finnst að þau sem vildu að við greiddum þetta eigi bara að koma sér í burtu. Ég held að þetta sé bara svar við því hvað þau eiga að gera, ef þau hafa eitthvað verið að velta því fyrir sér.“ Atli Ólafsson ráðgjafi    „Ég er ánægð með niðurstöðuna og vil alla þingmennina út.“ Áttirðu von á því að málið myndi fara svona? „Já. Og ég er mjög hrifin af forsetanum. Og þetta eru sömu mennirnir sem þjóðin treystir ekki. Við treystum ekki þinginu og samt er það að grufla í stjórnarskránni. Þetta fólk er alveg bú- ið að fara með sig. Við erum með snarvitlaust fólk á þingi og yfirleitt í ábyrgðarstöðum.“ Greiddir þú at- kvæði á móti Icesave-samningnum? „Já, elskan mín! Datt ekki annað í hug.“ Kristín Helgadóttir fyrrverandi íþróttakennari    „Ég frétti þetta hjá þér núna fyrst og ég er bara mjög ánægð með það vegna þess að ég hef verið nervus um að þetta yrði okkur erfitt, að borga.“ Greiddir þú atkvæði með eða á móti Icesave-samningnum? „Ég greiddi á móti.“ Finnst þér að einhver eigi að axla pólitíska ábyrgð á því að hafa vilj- að fara samningaleiðina? „Ég er bara svo frámunalega friðsöm að mér finnst bara ekkert slíkt koma til greina. Við eigum bara að gleðjast öll yfir því ef þetta fer vel. Þetta leit dálítið illa út á tímabili.“ Kristín Guðbjartsdóttir fyrrverandi bókavörður BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Fylkingar mynduðust vegna Ice- save-deilunnar og skiptust þær í tvo hópa. Annars vegar þá sem töldu að samningarnir væru óviðunandi fyrir Ísland og hins vegar þá sem litu svo á að rétt væri að ganga að samn- ingum og greiða umsamdar kröfur. Í fyrri hópnum voru samtökin Indefence, sem urðu til skömmu eft- ir bankahrunið í október 2008, og Advice, hreyfing sem stofnuð var til að safna undirskrifta í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu númer tvö. Ýmsar aðrar hreyfingar litu dags- ins ljós sem léðu sama málstað lið og má þar nefna Samstöðu þjóðar gegn Icesave. Rætt er við nokkra fulltrúa Indefence og Advice á blaðsíðu 15 í Morgunblaðinu í dag. Í síðari hópnum var Áfram hóp- urinn hvað atkvæðamestur en á vef- síðu hópsins, sem hefur verið lokað, sagði að þar færu „grasrótarsamtök einstaklinga sem telja að best sé að ljúka Icesave- málinu með sam- þykkt fyrirliggj- andi samnings í þjóðaratkvæða- greiðslunni 9. apríl [2011]“. Framarlega í þessum hópi voru Guðmundur Gunnarsson, fv. formaður Rafiðn- aðarsambands- ins, Benedikt Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Talnakönnunar, Dóra Sif Tynes lögmaður og Margrét Kristmannsdóttir, formaður Sam- taka verslunar og þjónustu. Andstaðan mikil í fyrra skiptið Töldu þau rétt að samþykkja samninginn í síðari þjóðaratkvæða- greiðslunni 9. apríl 2011. Engin slík samtök spruttu upp vegna þjóðar- atkvæðagreiðslunnar 6. mars 2010, enda var andstaðan afgerandi. Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar lýstu yfir stuðningi við sjónarmið Áfram-hópsins og má þar nefna Hjálmar Sveinsson, varamann í borgarráði fyrir Samfylkingu, Jó- hann Hauksson, upplýsingafulltrúa Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis- ráðherra, og Guðmund Steingríms- son, formann Bjartrar framtíðar. Þá mætti nefna Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, samfylkingarþing- mennina Oddnýju Harðardóttur og Skúla Helgason og Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Hákarl stefndi á fjölskyldu Áfram-hópurinn birti umdeilda auglýsingu í dagblöðum 1. apríl 2011 þar sem fimm manna fjölskylda var sýnd umkomulaus á árabót, konan veifandi íslenska fánanum, óafvit- andi um risavaxinn hákarl sem stefndi rakleiðis til þeirra úr djúp- unum. Fyrirsögnin var: Óleyst deila er áhætta – og ógn við framtíð okk- ar. Er auglýsingin sýnd á litlu myndinni hér til vinstri. Ungir jafnaðarmenn færðu einnig rök fyrir því að samþykkja bæri samninginn á vefsíðu sinni, politik- .is. Á vef þeirra var skuldaklukka sem sýndi áætlaðan fórnarkostnað af því að samþykkja ekki samning- inn 2011. Til að setja töluna í sam- hengi er verg þjóðarframleiðsla á Íslandi 2011 áætluð rúmir 1.626 milljarðar, eða 1.626.335.000.000 kr. Er talan á skuldaklukkunni um 70% hærri. Já-hópar lokuðu vefsíðum sínum  Áfram-hópurinn vildi samþykkja Icesave-samning í síðari þjóðaratkvæðagreiðslunni  Fjöldi þjóð- þekktra einstaklinga studdi hópinn  Ungir jafnaðarmenn voru sama sinnis  Settu upp skuldaklukku Lokun Skjámynd af vefsetri ungra jafnaðarmanna um Icesave-deiluna, poli- tik.is/icesave, sem var lokað í gær. Slóðin vísaði eftir lokun sjálfkrafa á við- tal við Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á vef Ríkisútvarpsins. Icesave-hákarl Áfram-hópsins. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturj@mbl.is Einkum kom á óvart í niðurstöðu EFTA-dómstólsins í Icesave- málinu hversu afdráttarlaus dóm- urinn er. Þetta kom fram í máli fulltrúa í málsvarnarteymi Íslands vegna málsins á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Tim Ward, aðalmálflutnings- maður Íslands, vakti þannig at- hygli á því að dómstóllinn hefði samþykkt nær allan málflutning teymisins fyrir hönd Íslands. Hins vegar hefði ekki verið tekið mikið mið af málflutningi Eftirlitsstofn- unar EFTA eða breskra og hol- lenskra stjórnvalda. Undir þetta tóku hæstaréttarlögmennirnir Reimar Pétursson og Jóhannes Karl Sveinsson sem einnig voru í teyminu. Spurður um áhrifin innan Evrópska efna- hagssvæðisins (EES), sem í eru ríki Evrópusam- bandsins auk EFTA-ríkjanna Íslands, Noregs og Liechtenstein, sagði Ward ljóst að niðurstaða EFTA-dómstólsins hefði heilmikla þýðingu í því sambandi og að ekki væri hægt að horfa framhjá niður- stöðu hans þegar mál af þessum toga væru skoðuð. Hann benti í því sambandi á að ekkert í tilskipun Evrópusambandsins um innistæðu- tryggingar segði til um það hvað tæki við ef innistæðutrygg- ingasjóðir gætu ekki staðið við skuldbindingar sínar. Um það hefði málið fyrir EFTA-dómstólnum ekki síst snúist og þetta væri eitt- hvað sem sambandið yrði vænt- anlega að taka til skoðunar í kjöl- far niðurstöðu dómstólsins. Endanleg lagaleg niðurstaða Ward var einnig spurður að því hvort Hollendingar og Bretar gætu á einhvern hátt haldið málinu áfram ef þeir vildu það. Hann svar- aði því til að lagalega væri um end- anlega niðurstöðu að ræða. Hins vegar væri annað mál hvernig þeir myndu nálgast málið pólitískt. En það væri ekkert í dómi EFTA- dómstólsins sem annaðhvort hvetti til slíks eða drægi úr því. Féllst á málflutning Íslands  Tilskipun ESB svarar því ekki hvað taki við geti tryggingasjóðir ekki staðið við skuldbindingar sínar  Hefur áhrif á allt EES Tim Ward

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.