Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Náttúruperlur » Dettifoss er einn af eftir- sóknarverðustu ferða- mannastöðum landsins. » Dettifossvegur í heild er um 50 km langur. Sú stefna var mörkuð fyrir nokkrum árum að leggja hann vestan Jökulsár. » Búið er að leggja nýjan veg frá Hringveginum á Mývatns- öræfum að Dettifossi, alls rúmlega 20 km leið. » Verið er að undirbúa útboð á um 30 km vegi frá Dettifossi að Norðausturvegi í Keldu- hverfi. Honum fylgja nýir afleggjarnar að Hólmatungum og Hljóðaklettum. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Texti um lækkaðan hámarkshraða á nýjum Dettifossvegi var fjarlægður úr greinargerð með tillögu um deili- skipulag svæðisins til þess að bæj- arstjórn Norðurþings gæti kynnt breytingarnar. Stjórn Vatnajökuls- þjóðgarðs heldur þó stefnu sinni til streitu og hefur óskað eftir því við vegamálastjóra að hámarkshraðinn verði lækkaður. Til stendur að bjóða út seinni hluta Dettifossvegar, frá Dettifossi og að Norðausturvegi í Kelduhverfi. Verk- inu fylgja tengingar við Hólmatung- ur og Hljóðakletta. Þegar er búið að leggja nýjan veg frá Dettifossi að Hringveginum á Mývatnsöræfum. Vegurinn liggur um land sveitar- félaganna Norðurþings og Skútu- staðahrepps og fer meðal annars um land þjóðgarðsins. Við hönnun leiðarinnar á sínum tíma var reynt að færa veginn frá helstu náttúruperlum en gera góðar tengingar þangað. Þannig var veg- urinn sem búið er að leggja sunnan Dettifoss færður verulega til vest- urs. Sömuleiðis er vegurinn sem nú á að leggja færður aðeins til vesturs á syðsta hluta leiðarinnar. Hannað fyrir 90 km hraða Vegurinn er hannaður sem heils- ársvegur, 7,5 metra breiður, miðað við 90 km hámarkshraða á klukku- stund. Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur frá upphafi lagt áherslu á að leyfa ekki svo mikinn hraða innan marka garðsins og rataði ýmis um- fjöllun af því tagi inn í greinargerð með deiliskipulagstillögu sem Vega- gerðin og þjóðgarðurinn létu vinna vegna framkvæmdarinnar. Meiri- hluti skipulags- og byggingarnefnd- ar og bæjarstjórn Norðurþings fóru fram á að umfjöllun um lækkaðan hámarkshraða yrði fjarlægð úr greinargerðinni, áður en tillagan yrði auglýst. Jón Grímsson, formaður skipu- lags- og byggingarnefndar Norður- þings, segir að Dettifossvegur sé ekki aðeins ferðamannavegur heldur sé hann hugsaður sem tenging hér- aðsins við Hringveginn. Því sé óeðli- legt að lækka hámarkshraða á að- alveginum. Ef hins vegar komi upp þær aðstæður að þörf verði á að grípa í taumana á mestu álagstímum á sumrin megi ákveða að lækka há- markshraða á ákveðnum tímum. Eins geti komið til greina að lækka hámarkshraða á tengingum við nátt- úruperlurnar. Deiliskipulagið fer nú í lögboðið kynningarferli sem tekur nokkrar vikur. Stefnt er að útboði fram- kvæmdarinnar í mars og verklegar framkvæmdir ættu þá að geta hafist í sumar. Áætlaður framkvæmdatími er rúm þrjú ár. Að sögn Guðmundar Heiðrekssonar, deildarstjóra hjá Vegagerðinni á Akureyri, verður framkvæmdin áfangaskipt þannig að hluti vegarins kemst í notkun fyrr. Heildarkostnaður er áætlaður um 2 milljarðar króna og eru fjárveit- ingar á samgönguáætlun til að hefja verkið á þessu ári. Nýr Dettifossveg- ur verður mikil samgöngubót því hluti vegarins er niðurgrafinn og krókóttur malarvegur. Taka ekki undir kröfur um lækkaðan hámarkshraða  Deiliskipulag fyrir Dettifossveg kynnt  Stefnt að útboði í mars Morgunblaðið/RAX Ferðamenn Dettifoss er vinsæll áfangastaður ferðafólks. Dettifossvegur ������� � ���� ���� ������ �������� � � � � � � �� �������� � �� ������� � �� � Dettifossvegur Fyrirhuguð framkvæmd Mývatnsöræfi Möðrudalsöræfi Húsavík Kelduhverfi Mývatn Ný tenging að Hljóðaklettum Ný tenging að Hólmatungum Dettifoss Gamli vegur Nýi vegur Rúmlega 5.500 flokksfélagar í Samfylkingunni höfðu greitt at- kvæði í formannskjöri flokksins þegar rafrænni atkvæðagreiðslu lauk klukkan sex síðdegis í gær. Enn áttu þó einhver póstatkvæði eftir að berast. Þeir sem höfðu óskað eftir at- kvæðaseðli í pósti höfðu tíma til dagsins í gær til að póstleggja seðlana. Úrslit atkvæðagreiðslunnar liggja fyrir á laugardaginn 2. febrúar næstkomandi en kjöri nýs formanns flokksins verður lýst fyrir hádegi á landsfundi flokksins í Valsheimilinu á Hlíðarenda. Valið stendur á milli þeirra Guðbjarts Hannessonar velferðar- ráðherra og Árna Páls Árnasonar, þingmanns og fyrrverandi ráð- herra flokksins. Rafrænni formanns- kosningu Samfylk- ingarinnar lokið Árni Páll Árnason Guðbjartur Hannesson Formlegt leyfi fyrir nýtingu heits vatns Íslensk matorka hefur fengið nýt- ingarleyfi Orkustofnunar vegna jarðhita í landi Stóra-Klofa í Baðs- heiði í Rangárþingi ytra. Vatnið er notað til fiskeldis og hitaveitu. Stefanía K. Karlsdóttir, fram- kvæmdastjóri Íslenskrar matorku, sagði að fyrirtækið væri með tvær fiskeldisstöðvar í Landsveit, í Galtalæk og Fellsmúla. Hún sagði að stöðin í Fellsmúla hefði nýtt hitaveituholu í Baðsheiði í 27 ár. Auk þess hefur 52°C heitt vatnið úr holunni verið nýtt til hitaveitu. Stefanía sagði að nú krefðust lög þess að formleg leyfi væru veitt fyr- ir orkuöflun og orkunýtingu af þessum toga. Með leyfisveitingunni væri Orkustofnun að uppfylla skil- yrði laga. Íslensk matorka stundar að- allega eldi á bleikju til útflutnings. Einnig á fiskinum tilapia sem kall- aður er Hekluborri. gudni@mbl.is Fiskeldi Íslensk matorka elur tilapia og kallar hann Hekluborra og eins bleikju. „Sérstaklega verði horft til forvarn- araðgerða til að koma í veg fyrir spól og glannaskap á hringtorgi fyrir of- an Lund,“ stendur í ályktunartillögu Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjar- stjóra Kópavogs, í bæjarráði hinn 24. janúar sl. Bæjarráð samþykkti að Nýbýla- vegur yrði skoðaður sérstaklega með tilliti til umferðaröryggis. Gylfi Sigurðsson, aðalvarðstjóri á lög- reglustöðinni í Kópavogi, setti fram bókun þess efnis sem áheyrnar- fulltrúi í umhverfis- og samgöngu- nefnd. „Ég var beðinn um að endurorða ályktunartillöguna en ákvað að láta hana standa því mér þykir hún lýsa þessu vel. Ástæðan er sú að í sam- hengi við umræðu um umferðarör- yggi á þessu svæði hefur fólk leitað til mín og kvartað undan spóli á þessu tiltekna hingtorgi við Lund,“ segir Ármann. Að sögn Ármanns vildi fólkið meina að spólið og glannaskapurinn sem áður var við Ánanaust í Reykja- vík hefði færst að Lundi. „Lögreglan hefur farið í eftirlits- ferðir þangað og stillt sér upp með mælingar, fylgst með svæðinu og vaktað það,“ segir Gylfi. Einhverjir hafa verið gripnir fyrir of hraðan akstur en ekki í teljandi mæli, segir Gylfi. Lögreglan telur að bæta megi um- ferðaröryggi á Nýbýlaveginum til muna. Lögreglunni hefur borist fjöldi til- kynninga vegna lélegrar lýsingar, merkingum sé ábótavant auk há- vaðamengunar sem felst í því að ver- ið er að spyrna á veginum. „Meginatriðið við tillöguna er ekki vegna hávaða heldur er það að auka öryggi vegfarenda, gangandi og ak- andi,“ segir Gylfi. Vegurinn er ekki sérstaklega vel til þess fallinn að spóla, segir Gylfi. Hann bendir þó á að verið getur að ökumenn freisti þess að reyna að ná ljósum og aki því hratt en þess er ekki þörf því hægt er að ná ljósunum með því að aka á löglegum hraða. Að sögn Ármanns fer vinnan við að bæta umferðaröryggi við Nýbýla- veg fljótlega af stað. thorunn@mbl.is Sporna við spóli og glannaskap  Umferðaröryggi fyrir gangandi og akandi umferð verður bætt á Nýbýlaveginum  Lögreglunni hef- ur borist fjöldi ábendinga um hávaða vegna spóls á hringtorginu ofan við Lund og hefur vaktað svæðið Morgunblaðið/RAX Umferðaröryggi Til stendur að bæta umferðaröryggi á Nýbýlaveginum öllum með tilliti til lýsingar og merkinga jafnt fyrir gangandi sem akandi umferð. 13 O

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.