Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 10

Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er á fullu núna aðbæta tíu kílómetra tím-ann minn. Ég ætla aðhlaupa hálft maraþon í vor á betri tíma en ég gerði síðast. Ég hef engan sérstakan áhuga á að hlaupa heilt maraþon, ég vil frekar hlaupa hraðar heldur en að hlaupa lengri vegalengd,“ segir Diljá Ru- dolfsdóttir en hún er í hlaupaklúbbi úti í Edinborg þar sem hún hefur búið undanfarin tæp fjögur ár. Hún er á lokaári í The University of Ed- inburgh, þar sem hún leggur stund á gervigreind og tekur sálfræði sem hliðarfag. Diljá segist hafa farið strax í hlaupaklúbb þegar hún byrj- aði í skólanum en fyrstu tvö árin hljóp hún aðeins með þeim einu sinni til tvisvar í viku, rétt til að halda sér í formi. „Á þriðja ári var ég beðin um að taka að mér verkefni innan klúbbsins sem fólst í því að fara með hóp einu sinni í viku og hlaupa. Þá fór mér að finnast meira gaman og frábært að kynnast öllu þessu fólki með mikinn hlaupa- áhuga. Þetta smitast.“ Hlaupið í drullu og skógi Fyrir rúmu ári fór hún að æfa fyrir fyrsta hálfmaraþonið sitt „Þá hljóp ég fimm sinnum í viku og ég hef haldið því áfram síðan þá. Ég hljóp hálft maraþon síðastliðið vor í Edinborg og ég hljóp annað hálft maraþon í Amsterdam síðastliðið haust,“ segir Diljá sem er líka ritari í stjórn hlaupaklúbbsins en því fylgir heilmikil vinna. „Við fjögur sem erum í stjórninni sjáum í raun um allt sem tengist klúbbnum. Til dæmis tökum við alltaf þátt í Scott- ish Universities Cross Country Championships, sem er víðavangs- hlaup þar sem hlaupið er utan vega, í drullu og gegnum skóg. Allir skoskir háskólar taka þátt og hlaupaklúbburinn minn hefur staðið uppi sem sigurvegari undanfarin sex Ég vil frekar hlaupa hratt en langt Hún þurfti að velja á milli þess að vera rosalega fyndin og í slæmu líkamlegu formi, eða vera í rosa góðu hlaupaformi og ekki alveg jafn fyndin. Hún valdi að hætta í uppistandi en einbeita sér að hlaupi. Hún býr í Edinborg þar sem hún leggur stund á nám í gervigreind og sálfræði og hefur fengið vinnu við fagið. Uppistandari Diljá tók m.a. fyrir þorskastríðið í uppistandi sínu. Fagnar Diljá með þjóðfána sinn að nýloknu hálfmaraþoni í Edinborg í vor. Vefsíðan blisstree.com er lífs- stílstengd vefsíða um ýmislegt er tengist almennri heilsu og vellíðan. Hér má lesa greinar um bæði lík- amlega og andlega heilsu, fréttir af fræga fólkinu og nýjasta heilsuæði þess og margt fleira. Á vefsíðunni getur þú t.d. sótt þér góð ráð til að sofna auðveldar og sofa betur eða lesa athyglisverðar fréttir úr heimi matvælaframleiðslu. Stundum er gott að sækja inn- blástur og afþreyingu að einhverju leyti á svona síður. Það getur nefni- lega líka hjálpað manni með góðum ráðum um hvernig megi berjast við flensuna eða koma sér af stað út að ganga eða hlaupa. Nú eða bara læra að slaka almennilega á, jafnvel með góðum ilmkjarnaolíum eða einföldum æfingum.Víkkaðu sjóndeildarhring- inn og kíktu á vefsíðuna blisstree- .com til afþreyingar og fræðslu. Vefsíðan www.blisstree.com Afslöppun Nauðsynlegt er öðru hverju að skipta um umhverfi og kúpla sig út. Fróðleikur og afþreying í bland Göngu-Hrólfur og Vita sport halda kynningarfund þriðjudaginn næst- komandi, 7. febrúar kl. 18.00, á Hótel Hilton. Á fundinum verða kynntar gönguferðir á Gran Can- aria, í Andalúsíu, á Madeira, tvær gönguferðir í Toscana, jurta- og sælkeraferð og gönguferð. Einnig verður kynnt pílagrímaganga í fót- spor Nikulásar Bergssonar þar sem sagnaþulurinn Magnús Jónsson leiðir gönguna og fræðir göngu- menn um sögu liðinna alda. Göngu- Hrólfur hefur skipulagt og séð um gönguferðir síðan 1998. Fyrst á eigin vegum, síðan í sam- vinnu við íþróttadeild Úrvals/ Útsýnar og nú með Vita sport. Vert er að heimsækja vefsíðuna www.gonguhrolfur.is til að leita sér nánari upplýsinga um ýmsar ferðir. Endilega… …kynnið ykkur gönguleiðir Toskana Fallegt svæði til göngu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Hugmyndir og tillögur: Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður Sinnum Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður Kolbeinn Kolbeinsson, forstjóri Ístaks Eva María Þórarinsdóttir Lange, eigandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland Halldór Árnason, hagfræðingur hjá SA Innskot úr íslensku atvinnulífi – í tærum og ferskum litum. Fundarstjóri: Vilmundur Jósefsson, formaður SA Samantekt: Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA Þátttakendur fá nýtt tímarit SA sem kemur út sama dag. Boðið verður upp á kraftmikla morgunhressingu frá kl. 8. FLEIRI STÖRF – BETRI STÖRF! Opinn fundur SA í Hörpu - Silfurbergi - fimmtudaginn 31. janúar kl. 8.30-10. SKRÁNING Á WWW.SA.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.