Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 14

Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Iðnaðarvélar fyrir fagmenn Síðumúla 11, 108 Reykjavík, sími 568 6899, vfs@vfs.is www.vfs.is Sjálfdekkjandi hjálmur Styrkleiki: 9-10 Din Verð kr. 16.900.- Telwin Telmig 180 turbo 1 fasa MIG/MAG Þráðsuðuvél Einföld og sterkbyggð, jarðkapall og Mig byssa fylgir. Verð kr. 125.000.- Gold G3 er koparhúðaður gegn- heill alhliða (SG2)G3 MIG/ MAG suðuvír fyrir suðu í lág og óblönduðu stáli með togþol allt að 550N/ mm 2 15 kg rúlla 0,8 – 1,0 – 1,2 kr. 6.900.- 5 kg rúlla kr. 3.900.- 1 kg rúlla kr. 1.200.- Sjálfstæðisflokkurinn birti röð þeirra sem lentu í fimm efstu sæt- um prófkjörsins í Suðurkjördæmi. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins varð röð næstu fram- bjóðenda þar á eftir sú að dr. Odd- geir Ágúst Ottesen hagfræðingur lenti í 6. sæti, Árni Johnsen alþingismaður í 7. sæti, Kjartan Ólafsson, fyrrverandi alþingis- maður, í 8. sæti, Magnús B. Jóhann- esson framkvæmdastjóri í 9. sæti, Halldór Gunnarsson, fyrrverandi sóknarprestur, í 10. sæti og Hulda Rós Sigurðardóttir, MPA-nemi, í 11. sæti. Sæti 6 til 11 í Suðurkjördæmi Guðni Einarsson Jón Pétur Jónsson Kristján Þór Júlíusson, alþingis- maður, mun leiða lista Sjálfstæðis- flokksins í Norðausturkjördæmi við næstu alþingiskosningar. Hann vann afgerandi sigur í prófkjörinu á laugardaginn var og fékk 84,3% gildra atkvæða í 1. sæti listans. Valgerður Gunnarsdóttir, skóla- meistari Framhaldsskólans á Laug- um í Þingeyjarsveit og formaður Skólameistarafélags Íslands, varð í öðru sæti. Ásta Kristín Sigurjóns- dóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð, varð í þriðja sæti. Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri og formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, varð í fjórða sæti. Erla Sigríður Ragnars- dóttir framhaldsskólakennari varð í fimmta sæti og Bergur Þorri Benja- mínsson, formaður Varðar á Akur- eyri og viðskiptafræðingur, fékk sjötta sæti í prófkjörinu. Bindandi kosning í sex sæti „Ég er hvort tveggja mjög ánægður og gríðarlega þakklátur fyrir þessa traustsyfirlýsingu sem felst í svo afgerandi niðurstöðu í þessu prófkjöri,“ sagði Kristján Þór Júlíusson um úrslit prófkjörs Sjálf- stæðisflokksins í Norðaustur- kjördæmi. „Ég er þakklátur öllu því fólki sem veitir mér þetta umboð og ekki síður hinum – mörg hundruð einstaklingum – sem lögðu mér lið við það að ná þessari niðurstöðu fram.“ Aðspurður taldi Kristján Þór listann vera mjög frambærilegan og að menn muni ganga samhentir til verka í þingkosningunum í vor. „Ég vek athygli á því, að sam- kvæmt reglum flokksins er um að ræða bindandi kosningu í öll þessi sex sæti fyrir kjörnefndina,“ sagði Kristján. „Ég tel að þessi úrslit sýni vel og staðfesti í rauninni með af- gerandi hætti einnig, að það er best að trúa og treysta einstaklingum til þess að velja hæfustu einstaklinga til þessara hluta hverju sinni. Án þess að það þurfi að leggja fólki ein- hverjar reglur um kyn eða búsetu, sem því er ætlað að fara eftir.“ Góður árangur kvenna „Ég er afskaplega þakklát öllum þeim sem sýna mér það traust að kjósa mig í annað sæti, bæði kjós- endum öllum, fólkinu sem lagði vinnu í prófkjörið og þeim sem voru meðframbjóðendur mínir,“ sagði Valgerður Gunnarsdóttir, skóla- meistari. Hún kvaðst vera stolt yfir góðum árangri kvenna í prófkjörinu. „Það sýnir að kjósendur Sjálfstæðis- flokksins eru jafnréttissinnaðir. Það eru þrjár konur í sex efstu sætum og þar af erum við tvær í öðru og þriðja sæti.“ Valgerður sagði að gríðarlega góð þátttaka hefði verið í prófkjörinu þrátt fyrir slæmt veður og ófærð. Hún sagði mikilvægt að fá þannig traust umboð kjósenda. „Ég hlakka til að takast á við nýtt verkefni og mun leggja mig fram í því eins og öðru sem ég hef tekið að mér hingað til,“ sagði Valgerður. Hliðarsporinu er lokið Tryggvi Þór Herbertsson, al- þingismaður, sem bauð sig fram í 1. sæti, hlaut ekki brautargengi í eitt af sex efstu sætunum. Ekki náðist í Tryggva í gær. Hann skrifaði á Facebook-síðu sína þegar niður- stöður lágu fyrir að hann hefði sýnt keppinautum sínum drengskap og heiðarleika í baráttunni, en það sé það mikilvægasta í sínum huga. Hann bætti svo við: „En nú er þessu hliðarspori mínu í pólitík lokið og ég sný mér aftur að því sem ég kann best – hagfræði og viðskiptum. Það verður óneitanlega munur að losna við hælbítana og illt umtal sem þeim fylgir. Nú er verk- efnið að snúa bökum saman og vinna sem einn maður að sigri Sjálfstæðis- flokksins í kosningunum í vor!“ Sem kunnugt er var talningu at- kvæða í prófkjörinu frestað vegna óveðurs og ófærðar í kjördæminu. Kjörstöðum var lokað klukkan 18.00 á laugardag og gekk hægt að koma kjörgögnum frá Austurlandi til Akureyrar þar sem talið var. Úrslit voru ekki tilkynnt fyrr en eftir mið- nætti aðfaranótt mánudags. Á kjörskrá var 4.401 í lok kjör- fundar, alls greiddu 2.714 atkvæði og var kjörsókn 61,7%. Auðir og ógildir seðlar voru 78 talsins. Níu frambjóðendur tóku þátt í prófkjör- inu en kosið var um sex sæti. Niður- staðan er bindandi fyrir þá sem fengu helming greiddra atkvæða eða meira. Kristján Þór vann afgerandi sigur í Norðausturkjördæmi  Þrír karlar og þrjár konur í sex efstu sætum Sjálfstæðisflokks í NA-kjördæmi Prófkjör í Norðausturkjördæmi Atkv. í Samt. Atkv. í Samt. í Atkv. í Samt. Atkv. í Samt. Atkv. í Samt. Atkv. í Samt. Nafn 1. sæti í 1. 2. sæti 1. og 2. 3. sæti í 1.-3. 4. sæti í 1.-4. 5. sæti í 1.-5. 6. sæti í 1.-6. 1. Kristján Þór Júlíusson 2.223 2.223 151 2.374 46 2.420 28 2.448 23 2.471 37 2.508 2. Valgerður Gunnarsdóttir 29 29 1.262 1.291 324 1.615 223 1.838 258 2.096 206 2.302 3. Ásta Kristín Sigurjónsd. 11 11 236 247 911 1.158 446 1.604 307 1.911 304 2.215 4. Jens Garðar Helgason 16 16 105 121 261 382 896 1.278 337 1.615 338 1.953 5. Erla S. Ragnarsdóttir 18 18 357 375 430 805 354 1.159 370 1.529 396 1.925 6. Bergur Þorri Benjamínss. 8 8 82 90 186 276 256 532 778 1.310 442 1.752 Kristján Þór Júlíusson Valgerður Gunnarsdóttir Ásta Kristín Sigurjónsdóttir Erla Sigríður Ragnarsdóttir Bergur Þorri Benjamínsson Jens Garðar Helgason Nemendur tíunda bekkjar Patreks- skóla á Patreksfirði smíðuðu sjálfir taflmenn í útitafl sem komið hefur verið upp við skólann. Nemendurnir og Henrik Danielsen stórmeistari vígðu taflið við athöfn sem fram fór í tilefni af Skákdegi Íslands. Nanna Sjöfn Pétursdóttir skóla- stjóri sagði við þetta tækifæri að hún vonaðist til að þetta framtak yrði til að efla áhuga nemenda á skáklistinni. Íþróttamiðstöðin Brattahlíð á Pat- reksfirði hefur nú bæst í hóp þeirra sundlauga sem bjóða upp á sundskák. Henrik og Áróra Hrönn Skúladóttir afhentu sundskáksett að gjöf frá Skákakademíunni. Geir Gestsson, forstöðumaður Brattahlíðar, þakkaði gjöfina og kvaðst vonast til að stór- meistarinn Henrik mætti alla morgna til að kenna gestum íþróttamiðstöðv- arinnar skák. Útitafl Henrik Danielsen í hópi nemenda við afhendingu útitaflmannanna. Nemendur smíðuðu sjálfir útitaflmenn „Það hefur verið stórkostlegt að vera þátttakandi í stjórnmálum svona lengi – á þriðja áratug. Ég get glaðst yfir því að hafa náð í gegn ótrúlega mörgum góðum málum, stórum og smáum, bæði fyrir mitt kjördæmi, Ísland, Græn- land og Færeyjar. Það hefur verið frábært að fá tækifæri til þess að eiga samfylgd og samstarf með mörgu góðu fólki í Suðurkjördæmi og víðar. Ég má una glaður við það. Nú liggur fyrir þessi lotan og ég bara þakka fyrir mig,“ sagði Árni Johnsen, alþingismaður, í samtali við Morgunblaðið í gær. Sem kunnugt er náði hann ekki þeim árangri sem hann stefndi að í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á laugardaginn var. „Ég er búinn að vera lengi í þess- um slag og hef öðlast mikla reynslu og vonandi verksvit,“ sagði Árni. „Þótt það sé gott að endurnýja í pólitík þá er reynslan oft drýgst á ögurstundum. Kannski hef ég verið hvattur til að halda áfram eftir þennan langa tíma vegna reynslu minnar. Ég vildi láta reyna á það, en það var ekki svigrúm fyrir það í púsluspilinu.“ gudni@mbl.is Ég hef náð í gegn mörgum góðum málum Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.