Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 16
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Mun hann ekki bara að lesa upp stutta tilbúna
tilkynningu um ósigur Íslands?“ var á meðal
spurninga fjölmiðlamanna í fundarherbergi ut-
anríkisráðuneytis upp úr klukkan tíu í gær-
morgun þegar beðið var úrslita í Icesave-málinu
og viðbragða Össurar Skarphéðinssonar utan-
ríkisráðherra. Annað kom á daginn og Össur
nánast valhoppaði inn í herbergið kampakátur
með málflutningsmann Íslands í eftirdragi og
spurði í dyragættinni: „Ætlið þið ekki að óska
mér til hamingju?“
„Þetta eru glæsileg úrslit sem fengust nú rétt
áðan og maður er varla búinn að jafna sig,“
sagði Össur og bætti við að niðurstaðan hefði
ekki komið fullkomlega á óvart. Eftir því sem
liðið hefði á málareksturinn hefði hann fengið
meiri vissu um sigur Íslands í málinu. „Það sem
kemur kannski verulega á óvart í þessari nið-
urstöðu er sú staðreynd, fyrir utan það að Ís-
land er algjörlega sýknað, þá þurfum við meira
að segja ekki að greiða þessum herramanni því
dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að allur
kostnaður Íslands verður greiddur af ESA.“
Herramaðurinn sem Össur átti við var að
sjálfsögðu Tim Ward, málflutningsmaður í Ice-
save-málinu, og svo gott sem þjóðhetja eftir
gærdaginn. „Við fengum besta málflutnings-
manninn í Bretlandi. […] Vel tókst honum upp
og ég held að það megi líkja því við meist-
araverk hvernig honum tókst að sýna fram á að
ef svo færi að við gætum unnið sigur í fyrra
ákæruatriðinu þá væri ómögulegt að sakfella
fyrir það síðara.“
Eigum að gleðjast saman
Eftir að Össur og Tim Ward yfirgáfu fund-
arherbergið tók við hálfgert tómarúm hjá fjöl-
miðlum. Þeir stöldruðu lengur við en boðað var
og svöruðu spurningum. Það áttu þeir hins veg-
ar að gera á hádegisfundi með fjölmiðlamönn-
um. Kvisaðist þá út að Jóhanna og Steingrímur
væru í húsinu. Fyrir uppkvaðningu var gefið út
að þau myndu fara yfir dóminn með lögfræð-
ingum og hugsanlega tjá sig eftir hádegið. Nið-
urstaða málsins breytti hins vegar greinilega
ýmsu því þau ætluðu að veita viðbrögð og svara
spurningum þá þegar. Og áður en hægt var að
láta fréttastjóra vita var Steingrímur J. Sigfús-
son, atvinnuvegamálaráðherra og formaður
Vinstri grænna, mættur.
Steingrímur sagði niðurstöðu EFTA-
dómstólsins mun hreinni og afdráttarlausari en
gert hefði verið ráð fyrir. Um fullnaðarsigur
væri að ræða fyrir Ísland og fagnaði hann nið-
urstöðunni. „Við hljótum að gera það öll saman
sem þjóð. Og vonandi er þessu ólánsmáli lokið.“
Spurningum rigndi yfir Steingrím um hvort
þetta væri ekki pólitískur ósigur fyrir hann og
ríkisstjórnina. „Öðru nær, þetta er stórkostleg-
ur sigur fyrir okkur öll. […] Ef við hefðum tap-
að málinu í dag, eða tapað því illa, ættum við þá
að snúa þessu við og ráðast á einhverja aðra út
af því? Við eigum að gleðjast saman yfir því að
niðurstaðan er komin. Það hljóta allir að vera
nógu stórir til þess, að gera það. Gleðjast fyrir
hönd landsins að við erum komin með botn í
þetta mál. Við skulum láta eftir okkur að vera í
góðu skapi í alla vega einn, tvo daga. Mér finnst
að við eigum ekki að láta neinn skugga falla á
þennan sigur.“
Færir kraft í endurreisnina
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
kom síðust til fundar við fjölmiðlafólk. Hún
sagðist eins og aðrir fagna niðurstöðunni og
skilaði þakklæti til málsvarnarteymisins. „Ég
vil segja það, að á öllum stigum hafa allir lagt
sig mjög fram um að tryggja sem best hags-
muni Íslands. Ég var sjálf mjög trúuð á málstað
Íslands.“
Þegar hún var beðin um álit sitt á ósamstöðu
ríkisstjórnar og forseta í málinu sagði Jóhanna:
„Ég er mjög ánægð með það að þetta álit skuli
vera bindandi, miðað við það sem forsetinn var
nú að segja í gær. Það er gott að það er komin
niðurstaða og það hljóta allir að fagna því mjög.
[…] Ég held að það eigi allir að fagna á þessari
stundu en ekki leita að sökudólgum.“
Hvað áhrifin af niðurstöðunni varðar sagðist
Jóhanna sannfærð um að þau yrðu jákvæð.
„Það er alveg ljóst að þetta mun setja kraft í
endurreisnina, hugsanlega munu lánshæf-
ismatsfyrirtækin endurskoða sína niðurstöðu,
þetta hefur jákvæð áhrif á afnám gjaldeyr-
ishafta, þannig að þetta er jákvætt í alla staði og
Ísland getur fagnað mjög á þessari stundu.“
Eftir að fundinum lauk var að leita viðbragða
formanna stærstu stjórnarandstöðuflokkanna.
Þeir voru báðir himinlifandi með niðurstöðuna í
málinu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokks, sagði að mikilvægt væri að íslensk
stjórnvöld tryggðu að þessi niðurstaða yrði
kunngerð öllum sem kæmu að málinu. „Það
skiptir miklu máli að koma réttum málflutningi
á framfæri því það hafa legið í loftinu miklar
ásakanir um að Íslendingar hafi gengið þannig
fram í alþjóðlegum samskiptum við Breta og
Hollendinga að það hafi varðað við brot á EES-
samningnum.“
Fyrst og fremst sigur þjóðarinnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, sagði að niðurstaðan
væri löðrungur fyrir ESA og Evrópusam-
bandið. „Evrópusambandið ákvað, í fyrsta
skipti, að troða sér inn í mál fyrir EFTA-
dómstólnum og taka þátt í málshöfðuninni gegn
Íslandi með svonefndri meðalgöngu. Og þegar
verið var að flytja málið beitti fulltrúi Evrópu-
sambandsins sér mjög hart og lýsti því þannig
yfir að ef Íslendingar ynnu málið fæli það í sér
miklar hamfarir. Miðað við hvað það var langt
seilst hjá þeim í þessum málaferlum dylst eng-
um að niðurstaðan er mikið áfall fyrir sam-
bandið.“
Þá sagði Sigmundur að þótt margir hefðu
komið að baráttu fyrir þessari niðurstöðu og
bæri að þakka væri þetta fyrst og fremst sigur
þjóðarinnar, sem hafnað hefði tveimur samn-
ingum ríkisstjórnarinnar í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kampakátir Össur Skarphéðinsson og Tim Ward eftir að niðurstaðan í Icesave-málinu var ljós.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jákvæð Jóhanna Sigurðardóttir telur að úrslitin í Icesave-málinu verði mjög jákvæð fyrir Ísland.
Málflutningurinn meistaraverk
Utanríkisráðherra sagði úrslitin í Icesave-málinu glæsileg og þakkaði málflutningsmanni Íslands
Forsætisráðherra telur niðurstöðuna hafa jákvæð áhrif á afnám gjaldeyrishafta og lánshæfismat
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013
FYRIR
ALVÖRU
KARLMENN
Fæst á
hársnyrtistofum
Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA) mun
ekki taka frekari
skref í Icesave-
málinu, að sögn
Trygve Mellvang-
Berg, fjölmiðla-
fulltrúa stofnunar-
innar. „Við höfum ekki mikið meira
að segja að svo stöddu. Í augnablik-
inu erum við að rýna í dóminn,“ seg-
ir Mellvang-Berg í svari sínu við fyr-
irspurn Morgunblaðsins og bætir
við: „Það eru engin frekari skref
sem við getum tekið í þessu máli,
enda hefur dómstóllinn lokaorðið.“
Morgunblaðið óskaði eftir við-
brögðum fjármálaráðuneyta Hol-
lands og Bretlands í kjölfar dómsins.
„Fjármálaráðuneytið harmar dóm-
inn og mun skoða nánar afleiðingar
hans,“ segir í svari hollenska fjár-
málaráðuneytisins við fyrirspurn
Morgunblaðsins um viðbrögð við
niðurstöðu EFTA-dómstólsins í Ice-
save-málinu. Engin viðbrögð feng-
ust hinsvegar frá breska fjár-
málaráðuneytinu. skulih@mbl.is
ESA tekur ekki frek-
ari skref í málinu