Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Ertu að taka til … … á vinnustaðnum Komdu spilliefnunum og raftækjunum á söfnunarstöðina næst þér … … við sjáum um framhaldið! Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is… í bíls umkúrn ’ Við erum að ákveða að við ætlum ekki að borga erlendar skuldir óreiðu- manna … við ætlum ekki að borga annarra manna skuldir. Við ætlum ekki að borga skuldir bankanna sem hafa farið dá- lítið gáleysislega … áður trúðu menn því að íslenska kerfið, íslenska ríkið, íslenskir skattborgarar myndu reyna að borga allar skuldir fyrir íslensku bankana … þá vær- um við að setja slíka skuldaklafa fyrir börnin okkar og barnabörnin að það væri þrældómur fyrir annarra sök.“ Davíð Oddsson seðlabankastjóri í viðtali við Kastljós 7. október 2008. ’ Íslenska ríkið er ekki gjaldþrota. Það eru bankarnir sem eru í vandræðum, ekki íslenska ríkið í rauninni … Við ætlum ekki að láta almenning sökkva með bönk- unum.“ Davíð Oddsson í viðtali við Kastljós 7. október 2008. ’ Enn er hægt að afstýra slysi fyrir íslenska þjóð. Taki Tryggingarsjóðurinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkis- stjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn.“ Steingrímur J. Sigfússon í grein um Icesave-málið sem irtist í Morgunblaðinu 24. janúar 2009. ’ Ég treysti Svavari Gestssyni. Ég veit að hann er að gera góða hluti og ég lofa þér því að það er í sjónmáli að hann landi – og hans fólk – glæsilegri niðurstöðu fyrir okkur.“ Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra í Zet- unni, umræðuþætti á Mbl.is, í mars 2009, spurður um stöðuna í Icesave-viðræðum við Breta og Hollendinga. ’ Ég held að ég geti fullvissað hv. þingmann um að það standi ekki til að ganga frá einhverju samkomulagi á morgun eða einhverja næstu daga og áður en til slíks kæmi yrði að sjálfsögðu haft samráð við utanrík- ismálanefnd og aðra þá aðila sem þingið hefur haft til að fylgjast með framvindu þessara mála.“ Steingrímur J. Sigfússon svarar Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni 3. júní 2009 eða tveimur dögum áður en Icesave-samningar voru undirritaðir. ’ „Allt tal um að hér séu að takast góðir samningar er auðvitað út í bláinn.“ Bjarni Benediktsson 5. júní 2009 í fréttum RÚV. ’ „Það varð að fá botn í þetta mál og út- kljá það, að þá hafi tekist að landa hér um það bil eins hagstæðu samkomulagi í þessu annars mjög erfiða máli og þungbæra máli fyrir okkur sem þjóð eins og von var á.“ Steingrímur J. Sigfússon 6. júní 2009 í fréttum RÚV. ’ „Ég held að þó við hefðum beðið þá hefðum við ekki fengið betri nið- urstöðu í þetta mál.“ Jóhanna Sigurðardóttir 9. júní 2009 í fréttum RÚV. ’ Eftir að hafa farið vandlega yfir málið með samninganefnd íslenska ríkisins sannfærðist ríkisstjórnin um að ekki væri hægt að ná betri samn- ingum án þess að taka enn frekari áhættu með framhald endurreisnarstarfsins sem nú stendur yfir. Lengra yrði ekki komist án harkalegra árekstra við alþjóða- samfélagið eða mikilla tafa á endurreisnarstarfinu.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í grein í Morgunblaðinu 9. júní 2009. ’ „Raunveruleg hætta var á því að Ísland einangraðist á alþjóðavettvangi, markaðir myndu lokast og lána- möguleikar yrðu að engu.“ Jóhanna Sigurðardóttir í ræðu á Austurvelli 17. júní 2009. ’ „Hann er alls ekki óljós. Hann er þvert á móti afar vandaður og mjög skýr.“ Svavar Gestsson í fréttum RÚV 19. júní 2009. ’ Ég get ekki neitað því að ég er undrandi á því hvernig um- ræðan bæði í þinginu og í fjölmiðlum hefur að mestu farið frá aðalatriðum og leiðst út í lítilsverðan sparðatíning, upphrópanir og órökstuddar fullyrðingar.“ Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, í viðtali við Morg- unblaðið 25. júlí 2009 um Icesave. ’ „Þá væri bara einfaldlega allt í uppnámi, öll samskipti okkar við erlend ríki, áætlun AGS, lánasamningarnir frá Norð- urlöndum og raunar líka hversdagslegir hlutir eins og alþjóðleg bankaviðskipti ... Við værum eiginlega búin að einangra okkur frá umheiminum, komin aftur á einhverskonar Kúbustig. Við yrðum svona Kúba norðursins.“ Gylfi Magnússon í fréttum Stöðvar 2, 26. júní 2009, um það ef fyrstu Icesave- samningarnir yrðu felldir. ’ „Við erum búin að fá ítrekun á greiðslur eins og á Icesave og við sinnum þeim ekki og þá gerist það náttúrlega að lánveit- endur okkar vilja ekki láta meira fé af hendi rakna ... og þá hrynur krónan. Hún fer niður fyrir allt sem við höfum nokkurn tíma þekkt. Og lífskjör hrynja gjörsamlega. Atvinnuleysi eykst. Þannig að við erum að horfa upp á hrikalega sviðsmynd. Og ég bara vona að slíkar sviðsmyndir ekki rætist.“ Þórólfur Matthíasson prófessor í fréttum Stöðvar 2, 31. júlí 2009. ’ Þetta hefur því miður strandað á Icesave-málinu. Það er bara rétt að segja það eins og það er, þannig að þeir sem um það véla ættu að hugsa sig um tvisvar, þrisvar, fjórum sinnum, þegar þeir taka ákvörðun um framhald þess máls.“ Már Guðmundsson seðlabankastjóri á blaðamannafundi 24. september 2009, þegar hann var spurður um tafir á afgreiðslu láns frá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum. ’ „Og við sitjum hér uppi með verstu samningsmistök Íslands- sögunnar.“ Guðlaugur Þór Þórðarson í umræðum við atkvæðagreiðslu um Icesave 30. desember 2009. ’ „Ég segi já og þó fyrr hefði verið.“ Helgi Hjörvar í sömu umræðum. ’ „Ég trúi því að sagan muni sýna að við séum hér að gera rétt.“ Steingrímur J. Sigfússon í sömu umræðum. „Við yrðum Kúba norðursins“ Í aðdraganda svokallaðra Svavarssamninga um Icesave sem felldir voru í þjóðaratkvæðagreiðslu féllu ýmis ummæli sem vert er að rifja upp. Þjóðfélagið logaði í deilum í aðdraganda fyrri Icesave-samningsins sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslu eftir einhverjar lengstu þingumræður Íslandssögunnar. Hér er stiklað á stóru í ummælum stjórnmálamanna og fræðimanna, meðal annars um þörfina fyrir samninga um Icesave og afleiðingarnar ef Íslendingar tæki slaginn við alþjóðasamfélagið, en þar skipti mjög í tvö horn. til endaallt 2006 október Landsbankinn byrjar að taka við innlánum undir merkjum Icesave í Bretlandi. 2008maí Landsbankinn ýtir Icesave úr vör í Hollandi. 2008 október Alþingi samþykkir neyðarlög og skilanefnd skipuð af FME tekur yfir stjórn Landsbankans. Icesave- reikningum í Bretlandi og Hollandi er lokað. Hollensk og bresk stjórnvöld þrýsta á um að lágmarkstrygginga- vernd reikninga verði tryggð. Bresk stjórnvöld beita hryðjuverkalögum á Landsbankann og kyrrsetja allar eignir hans í Bretlandi, ásamt tengdum eignum íslenska ríkisins. 2008 5. desember Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að leiða til lykta samninga við viðeigandi stjórnvöld vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES. 2009 febrúar Fjármálaráðherra skipar samninganefnd um Icesave undir formennsku Svavars Gestssonar sendiherra. 2009 júní Fjármálaráðherra undirritar ríkisábyrgð vegna Icesave- skuldbindinga skv. fyrsta Icesave- samningnum. Bretar taka Landsbankann af hryðjuverkalista og frystingu eigna er aflétt, en það var liður í samningnum um Icesave I. 2009 30. júní Frumvarp til laga um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að semja um Icesave-skuldbindingarnar vegna Icesave I lagt fram á þingi af stjórnar- flokkunum. Snemma kemur í ljós að ekki er meirihluti á þingi fyrir frumvarpinu. 2009 28. september Lög um ríkisábyrgð á Icesave samþykkt á Alþingi, en þó með fyrirvörum sem eru þess eðlis að leita þarf samþykkis Breta og Hollendinga að nýju og gera drög að nýjum samningi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.