Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 19
* Ford Ka Trend Plus 3 dyra 1,2i bensín, 69 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 115 g/km. Miðað er við grænan óverð- tryggðan bílasamning til 7 ára og uppítökubíl / útborgun að verðmæti 950.000 kr. Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Hlutfallstala kostnaðar 10,78%. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu. Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 6 Sími 515 7000 ford.is Nýr FORD KA á frábæru verði frá 1.890.000 kr. Skiptu í ferskan, fiman, ferlega skynsaman Ford Ka á frábæru verði. Veldu sparneytinn borgarbíl og lækkaðu rekstrarkostnaðinn. Ford Ka er líka þekktur fyrir afburða aksturseiginleika, gott notagildi og litríkan persónuleika. Komdu bara og prófaðu! FRÁ FORD KA 15.866 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16 kr./mán.* 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Pétur Blöndal pebl@mbl.is „Þetta fólk kann ekki að skammast sín,“ sagði Sigurður Kári Krist- jánsson lögfræðingur klukkutíma eftir að dómur féll en þá hafði hann heyrt fyrstu viðbrögð ráðherra ríkisstjórnarinnar. Sigurður Kári var einn þeirra þingmanna sem hvað harðast gengu fram í andstöðu við Icesave-samningana – alla með tölu. Hann er þeirrar skoðunar að odd- vitar ríkisstjórnarinnar eigi ekki að biðjast afsökunar heldur lausnar. „Það var allt gert af hálfu ríkis- stjórnarinnar til að keyra þessa samninga í gegn,“ segir hann. „Og við sem töluðum fyrir því að íslenska ríkið léti reyna á lagalegan rétt sinn vorum úthrópaðir sem úrtölumenn sem værum reiðubúnir að stofna hagsmunum íslenska ríkisins í stór- kostlega hættu. Þó blasti alltaf við að það er rétta niðurstaðan þegar kemur upp ágreiningur að fá hlut- lausa aðila til að skera úr um hann.“ Hann segir niðurstöðuna glæsi- legan fullnaðarsigur fyrir íslenska ríkið og sjónarmið þeirra sem vildu fara dómstólaleiðina og láta reyna á rétt íslenska ríkisins gagnvart Bret- um og Hollendingum. „Þetta snerist um að taka slaginn með Íslandi gegn þessum kröfum og ótrúlegum hand- rukkunum og níðingsverkum Breta.“ Sigurður Kári var flutnings- maður tillögu sem allur þing- flokkur Sjálfstæðisflokksins stóð á bak við um rannsókn á framgöngu íslenskra stjórnvalda í Icesave- málinu, en hún var lögð fram árin 2009 og 2010. Hann vill að dustað sé rykið af þessari tillögu. „Mér finnst vera fullt tilefni til að skipa rannsóknarnefnd sem yrði falið það verkefni að rannsaka embættis- færslur og ákvarðanir íslenskra stjórnvalda í Icesave-málinu frá upphafi til enda. Það verður að ger- ast, einfaldlega vegna þess að það munaði hársbreidd að þeim hefði tekist að valda íslenska ríkinu og íslenskum skattgreiðendum stór- kostlegu tjóni. Það voru stjórnar- andstöðuþingmenn, nokkrir þing- menn úr stjórnarliðinu, frjáls félagasamtök og forseti Íslands sem komu í veg fyrir það.“ Tilefni til að Alþingi skipi rannsóknarnefnd um Icesave  Sigurður Kári Kristjánsson vill að oddvitar ríkisstjórnarinnar biðjist lausnar en ekki afsökunar Morgunblaðið/Ómar Oddvitar víki Sigurður Kári Kristjánsson vill rannsókn á Icesave-málinu. 2009 30. desember Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave II samþykkt með 33 atkvæðum gegn 30. Tillaga um að málinu verði vísað til þjóðarinnar felld. 2010 5. janúar Forseti Íslands synjar staðfest- ingar lögum um Icesave II eftir að hafa fengið afhentar undirskriftir með áskorun þess efnis frá tæplega 60 þúsund Íslendingum. 2010 6. mars Lög um ríkisábyrgð á Icesave II felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. 134.397 sögðu nei, sem er 98,1% gildra atkvæða en 2.599 sögðu já, sem er 1,9% gildra atkv. Kjörsókn var 62,7%. 2010 8. desember Þriðju Icesave-samningarnir áritaðir í London. 2011 16. febrúar Alþingi samþykkir lög nr. 13/2011, sem veita fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, heimild til að staðfesta Icesave III. 2011 20. febrúar Forseti Íslands synjar lögum um Icesave III staðfestingar eftir að hafa fengið afhentar tæplega 50 þúsund undirskriftir. 2011 9. apríl Lög um þriðju Icesave-samningana felld í þjóðaratkvæða- greiðslu. Já sögðu 69.462 eða 40,23% af gildum atkvæðum, en nei sögðu 103.207 eða 59,77%. Kjörsókn var 75,34%. 2011 14. desember Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákveður að stefna íslenska ríkinu fyrir EFTA-dómstólnum vegna Icesave. 2013 28. janúar EFTA-dómstóllinn í Lúxem- borg sýknar Ísland af öllum kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA í Icesave-málinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.