Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 20
20
rannsóknarseturs um kerfislæga
áhættu á fjármálamörkuðum við
London School of Economics (LSE),
segir í samtali við Morgunblaðið
mikilvægt að draga ekki of víðtækar
ályktanir um þau efnahagslegu áhrif
sem niðurstaða dómsins gæti haft
fyrir Ísland.
„Áhrifin eru vitaskuld jákvæð, en
vandamálin sem íslenska hagkerfið
glímir enn sem fyrr við eru fyrst og
fremst heimatilbúin og lúta að því að
stjórnvöld hafa ekki búið svo um
hnútana að Ísland sé áhugaverður
fjárfestingarkostur fyrir erlenda fjár-
festa. Þrátt fyrir að þessi dómur hafi
fallið Íslandi í hag þá mun sú niður-
staða ekki breyta miklu varðandi
þann óleysta vanda. Það þarf því
miklu meira að gerast til að bæta
stöðuna,“ segir Jón.
Á sama tíma og flestir íslenskir
álitsgjafar á sviði efnahagsmála töl-
uðu fyrir því að Ísland samþykkti
fyrsta Icesave-samninginn við Hol-
lendinga og Breta árið 2009 – Svav-
arssamninginn svonefnda – þá ritaði
Jón grein í Morgunblaðið strax í lok
júní sama ár þar sem hann sagði að
Alþingi yrði að fella þann samning.
„Það liggur fyrir að kostnaður vegna
þess samnings fyrir íslenska skatt-
greiðendur hefði verið yfir 200 millj-
arðar sem hefði þurft að greiða í
gjaldeyri,“ segir Jón.
Aðspurður segir Jón að ráðamenn
Evrópusambandsins hafi að öllum
líkindum í raun ekki viljað vinna mál-
ið gegn Íslandi. „Slík niðurstaða hefði
þýtt að búin hefði verið til bein skuld-
binding á ríkissjóði um að baktryggja
innstæðueigendur þvert yfir landa-
mæri. Stjórnvöld skilja hins vegar að
ef þau lenda í sömu aðstæðum og Ís-
land í framtíðinni þá vilja þau geta
gripið til sömu aðgerða og íslenska
ríkið gerði haustið 2008. Ég held því
að það hafi verið takmarkaður vilji
hjá evrópskum ráðamönnum að vinna
þetta mál.“
Liður í afnámi hafta
Sumir viðmælendur Morgunblaðsins
benda á að niðurstaða málsins ætti að
hafa jákvæð áhrif á mögulega erlenda
lánsfjármögnun íslenskra fyrirtækja
og gæti jafnframt verið skref í átt að
afnámi hafta. Á það er bent í mark-
aðspunktum Greiningardeildar Arion
banka að niðurstaða málsins muni
liðka enn frekar fyrir endur-
fjármögnun íslenska ríkisins á er-
lendum mörkuðum. Sömuleiðis
standi líkur til að lánskjör ríkissjóðs
verði betri en ella.
Greinendur Arion banka eru enn-
fremur þeirrar skoðunar að nú þegar
Icesave-málið er út af borðinu þá
megi ætla að úrbætur á erlendri
skuldastöðu þjóðarbúsins – sem veru-
leg óvissa hefur verið um síðustu
misseri – verði reistar á traustari
grunni. Þannig verði þátttaka ís-
lenskra og erlendra langtímafjárfesta
í íslensku atvinnulífi mun líklegri og
krefjist lægri ávöxtunarkröfu.
Óvissu aflétt í efnahagsmálum
Morgunblaðið/Kristinn
Þrætuepli Icesave-málinu var tvívegis hafnað í þjóðaratkvæðisgreiðslu.
Sigur Íslands í Icesave-málinu eyðir óvissu um skuldbindingar ríkissjóðs Væntingar um bætt
lánshæfismat ríkisins Jón Daníelsson telur ekki ólíklegt að ESB hafi í raun ekki viljað vinna málið
Már Guðmunds-
son seðla-
bankastjóri segir
niðurstöðu Ice-
save-málsins
mjög jákvæða og
að hún skapi
grundvöll fyrir
bætt lánshæf-
ismat íslenska
ríkisins. Að mati Más þá skemmdu
gjörðir Breta mögulega fyrir þeim í
málinu. „Mér finnst athyglisvert
að vísað sé til erfiðleika Íslands,
þótt Íslendingar hefðu viljað
greiða þessar innistæðutrygg-
ingar, þá var það ekki hægt á þess-
um tímapunkti. Það sem meira er,
þá virðist mér á einum stað vera
vísað til þess að aðgerðir breskra
stjórnvalda hafi gert þeim það enn
erfiðara. Þannig að þarna er komin
upp sú staða að það sem bresk
stjórnvöld gerðu er að koma þeim í
koll í þessari dómsniðurstöðu að
nokkru leyti.“
Gjörðir Breta komu þeim í koll
NIÐURSTAÐAN GRUNDVÖLLUR FYRIR BÆTT LÁNSHÆFISMAT
Már Guðmundsson
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,,
,/+.0+
+,1.2,
,3./2-
,3.+-,
+2.-1,
+3-.3-
+.4+31
+21.25
+0,.31
+,-.53
,/,.,
+,0.,2
,3.+11
,3.,5
+2.2,
+3-.00
+.4+00
+20.54
+0,.-4
,34./-,+
+,-.-4
,/,.12
+,0.11
,3.,34
,3.3+-
+2.20-
+32.+1
+.4,+-
+2-.+3
+03.3,
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Heimild: Tölur frá fjármálaráðuneytinu í maí 2012. Sá samningur sem íslensk stjórnvöld, undir forystu Svavars
Gestssonar, undirrituðu við Breta og Hollendinga árið 2009 gerði ráð fyrir að ekki yrðu greiddar afborganir og vextir fyrr
en um mitt ár 2016. Icesave 2 og Icesave 3 samningunum var hafnað í þjóðaratkvæðugreiðslum árið 2010 og 2011.
Rétt er að geta þess að miðað við áætlanir á árunum 2009 og 2010 var búist við því að kostnaður ríkissjóðs vegna
Icesave gæti orðið mun meiri en þessar tölur sýna - tugi ef ekki hundruð milljörðum króna hærri.”
Svavars-
samningurinn
213
ma. kr.
Icesave 2
146
ma. kr.
Icesave 3
Buchheit
samningurinn
64
ma. kr.
Hvað hefðu Icesave-samningar kostað Ísland?
Hreinn kostnaður íslenska ríkisins
FRÉTTASKÝRING
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Með fullnaðarsigri Íslands í Icesave-
málinu hefur umtalsverðum óvissu-
þætti um skuldbindingar ríkissjóðs
og efnahagshorfur Íslands verið rutt
úr vegi. Væntingar eru ennfremur
um að alþjóðlegu lánshæfismatsfyrir-
tækin muni í kjölfarið uppfæra láns-
hæfiseinkunn íslenska ríkisins. Þetta
er mat sérfræðinga á fjármálamark-
aði sem Morgunblaðið leitaði til í gær.
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri eignastýringar MP
banka og einn af forsvarsmönnum
Indefence-hópsins, segir í samtali við
Morgunblaðið að þrátt fyrir að þessi
niðurstaða marki ekki endilega
vendipunkt varðandi efnahagshorfur
Íslands þá sé ljóst að áhrifin séu já-
kvæð. „Það sem mestu máli skiptir er
að með sigri Íslands í þessu máli hef-
ur óvissu um skuldbindingar ríkis-
sjóðs verið eytt en bæði Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn og lánshæfismats-
fyrirtækin höfðu talið mögulegan
kostnað ríkisins vegna Icesave veru-
legan áhættuþátt fyrir íslenska hag-
kerfið.“
Öll þrjú lánshæfismatsfyrirtækin –
Moody’s, Standard & Poor’s og Fitch
– eru með íslenska ríkið í lægsta
þrepi fjárfestingarflokksins. Ekki er
þó líklegt að dómsniðurstaðan muni
leiða til skjótra breytinga fyrir láns-
hæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá
S&P og Fitch, en bæði fyrirtækin
hafa talið efnahagshorfur Íslands
stöðugar. Haft var eftir Eileen
Zhang, sérfræðingi hjá S&P, á
Bloomberg-fréttaveitunni í gær að
niðurstaðan muni á þessari stundu
ekki hafa mikil áhrif á mat þess á
lánshæfiseinkunn ríksins. Hins vegar
má leiða að því líkur að Moody’s muni
breyta horfum sínum úr neikvæðum í
stöðugar.
Jón Daníelsson, forstöðumaður
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013
Icesave-málið rataði á síður fjölda
erlendra fréttamiðla í gær. Breska
blaðið Financial Times sagði m.a. að
Ísland hefði unnið óvæntan sigur.
Þá var norski Aftenposten með
stóra samantekt á málinu og í við-
skiptahluta danska blaðsins Berl-
ingske var haft eftir Lars Christen-
sen, aðalhagfræðingi Danske Bank,
að niðurstaðan væri gífurlegur léttir
fyrir Ísland. Christensen segir jafn-
framt: „Þótt þetta sé sigur íslensks
efnahagslífs, verður ekki annað sagt
en að þetta sé visst áfall fyrir rík-
isstjórn Íslands.“
Margir erlendir fjölmiðlar
fjölluðu um Icesave í gær
FT Financial Times sagði í gær að
sigur Íslands væri óvæntur.
● Gengi hluta-
bréfa hækkaði
talsvert í Kaup-
höllinni í gær
eftir að EFTA-
dómstóllinn
sýknaði Ísland í
Icesave-málinu.
Gengi hluta-
bréfa Icelandair
Group hafði
hækkað um
3,10% um kl. 15.30 í gær og stóð hlut-
urinn þá í 9,65.
Á sama tíma hafði gengi bréfa Eim-
skips hækkað um 2,20% og stóð í 255.
Hlutabréf Haga höfðu á sama tíma
hækkað um 1,87%. gengi bréfa Marel
um 2,65%.
Hækkun í Kauphöllinni