Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 A World of Service Við erum í hádegismat Við bjóðum upp á hollan og góðan hádegisverð alla virka daga fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Þrjá daga vikunnar bjóðum við að auki upp á grænmetisrétt – til að mæta þörfum sem flestra. Skoðaðu matarmálin hjá þér og vertu í samband við veitingasvið ISS. www.iss.is - sími 5 800 600. ”Hádegið er hápunktur dagsins hjá okkur” Skechers GOwalk fisléttir og sveigjanlegir Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi Blómsturvellir, Hellisandi | Mössuskór, Akureyri Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum Skóbúðin, Keflavík GO Like Never Before 53 nýir þéttbýlisstaðir fá ljósnet Símans á árinu. Þegar er unnið að því að uppfæra netið á Akranesi, í Keflavík og Njarðvík. Ljósnet á staðina þýðir meiri hraða, öflugra net og bætta sjónvarpsþjónustu fyr- ir þúsundir landsmanna, sam- kvæmt því sem fram kom í frétta- tilkynningu frá Símanum í gær. Þar kemur jafnframt fram að nú geti 62 þúsund fjölskyldur nýtt ljós- netið og að Síminn stefni að því að heimilin verði 100 þúsund um mitt ár 2014. Ljósnetið fengið góðar viðtökur Haft er eftir Sævari Frey Þráins- syni, forstjóri Símans, í frétta- tilkynningunni að fyrirtækið sé mjög stolt af því að geta boðið ljós- netsþjónustuna utan höfuðborg- arinnar. „Ljósnetið hefur fengið frábærar viðtökur þar sem það er í boði. Við höfum verið í góðu sam- bandi við forsvarsmenn fjölmargra sveitarfélaga undanfarna mánuði og það er greinilega mikill áhugi á að fá kraftmeiri tengingar og að- gang að fullri sjónvarpsþjónustu á Sjónvarpi Símans,“ segir Sævar Freyr orðrétt. Sævar Freyr segir að vegna þess hve vel landsmenn hafa tekið ljós- netinu hafi verið ákveðið að hraða uppbyggingu þess á landsbyggð- inni. „Við vitum hve mikilvægt það er fyrir sveitarfélög landsins að sitja ekki eftir á tækniöld, því fjarskipti skipa lykilsess í grósku samfélaga og farsæld fyrirtækja. Við gerum því okkar besta svo fjarskiptin stýri ekki byggðaþróuninni í landinu heldur skapi tækifæri fyrir lands- menn til að hasla sér völl þar sem þeir vilja helst.“ „Þegar búið verður að uppfæra þessa staði standa aðeins 1,4% landsmanna án fullrar sjónvarps- þjónustu hjá Símanum, nærri helm- ingi færri en nú,“ segir ennfremur í fréttatilkynningu Símans. Margir staðir fá ljósnet á árinu Morgunblaðið/Sigurgeir S. Síminn Ljósnetið á að ná til 100 þús- und heimila á næsta ári. Töluvert minni velta var á fast- eignamarkaði á höfuðborgarsvæð- inu í liðinni viku en vikunni þar á undan. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 18. janúar til og með 24. janúar 2013 var 90. Þar af var 61 samningur um eignir í fjölbýli, 20 samningar um sérbýli og 9 samningar um annars konar eign- ir en íbúðarhúsnæði. Heildarvelta 2,7 milljarðar Heildarveltan var 2.714 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,2 milljónir króna, segir í upplýs- ingum frá Þjóðskrá. Á sama tíma var 8 kaupsamn- ingum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 124 milljónir króna og meðalupphæð hvers samnings 15,5 milljónir króna. Á sama tíma var 5 kaupsamn- ingum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjöl- býli, 1 samningur um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 78 milljónir króna og meðalupp- hæð á samning 15,6 milljónir króna. Vikuna 18. til 24. janúar 2013 var 4 kaupsamningum þinglýst á Ár- borgarsvæðinu. Þar af voru 3 samn- ingar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðar- húsnæði. Heildarveltan var 94 millj- ónir króna og meðalupphæð á samning 23,4 milljónir króna. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Reykjavík Talsverð fækkun varð á þinglýstum kaupsamningum. Töluvert færri kaupsamningar  90 samningum þinglýst á viku ● Jón Ingi Árna- son hefur verið ráð- inn sjóðstjóri hjá Landsbréfum hf. Frá árinu 2009 hef- ur hann starfað hjá og verið meðeig- andi J Bond Part- ners þar sem hann stýrði meðal annars J Bond Fund, veitti fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu. Á ár- unum 2007 til 2009 var Jón Ingi for- stöðumaður skuldabréfamiðlunar Ís- landsbanka/Glitnis og verðbréfamiðlari hjá Íslandsbanka á árunum 2004-2007. Á árunum 2000 til 2004 starfaði Jón Ingi hjá Sameinaða lífeyrissjóðnum. Jón Ingi er viðskiptafræðingur frá Há- skóla Íslands og hefur lokið prófi í verð- bréfaviðskiptum. Ráðinn sjóðstjóri Jón Ingi Árnason ● Greint var frá því í samgönguráðu- neyti Japans í gær, að rannsakendur og eftirlitsmenn hefðu enga galla fundið í rafgeymum Dreamliner Boeing 787, sem hafa verið kyrrsettar undanfarið og teknar til gaumgæfilegrar rannsóknar. Upphaflega var talið að rafgeymar vélanna væru gallaðir og strax í kjölfar- ið voru þær vélar sem voru í eigu tveggja japanskra flugfélaga kyrrsettar og skömmu síðar allar 50 vélarnar sem til eru í heiminum. Fyrir liggja pantanir í 800 slíkar vélar hjá Boeing. Rafgeymar Dreamliner Boeing 787 sagðir í lagi AFP STUTTAR FRÉTTIR ● Breska lágfargjaldfélagið Ryanair greindi frá því í gær að það hefði endur- skoðað og hækkað hagnaðarspá sína fyrir þetta ár. Þetta var gert vegna þess að afkoma félagsins á þriðja fjórðungi rekstrarárs félagsins á árinu 2012, þ.e. september, október og nóvember, var mun betri en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Hagnaðurinn reyndist vera liðlega 3,1 milljarður króna og hafði hagnaðurinn aukist um 21% á milli ára á fjórð- ungnum og var einkum skýrður með miklum bókunum fyrir desember og lægri rekstrarkostnaði. Frá þessu var greint á vefsíðu Breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær. Hækkar hagnaðarspá

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.