Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 23

Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Við bjóðum hagstæða vexti á bundnum óverðtryggðum innlánsreikningum. Binding frá 1—24 mánaða. Vextir frá 4,25%—5,05%. Nánari upplýsingar hjá viðskipta- stjórum í Borgartúni 26 eða í síma 540 3200 og á www.mp.is. Bankastræti 2, Sími 551 4430 info@laekjarbrekka.is - www.laekjarbrekka.is ...í sögulegu umhverfi Kristján Jónsson kjon@mbl.is Frá því í nóvember í fyrra hafa ítölsk skattayfirvöld beitt nýstárlegri að- ferð gegn skattasvindli: reynt er að fylgjast með því hvort peningaeyðsl- an á ákveðnum sviðum sé óeðlilega mikil miðað við uppgefnar tekjur og krefjast þá skýringa, að sögn New York Times. Hugmyndin um slíkt eftirlit, redditometro, kom upp í tíð Silvios Berlusconis, fyrrverandi for- sætisráðherra, en eftirmaðurinn, Mario Monti, fylgdi henni síðan eftir. Blöð á Ítalíu hafa oft sagt frá „ör- eigum“ sem þrátt fyrir uppgefna peningavesöld sína geta leyft sér að aka um á rándýrum Lamborghini- sportbílum. Með redditometro er m.a. fylgst með útgjöldum á sviði húsnæðis, bíla, sumarleyfa, líkams- ræktar, farsímanotkunar og fata. En seljendur slíkrar vöru og þjón- ustu kvarta og segja veltuna hafa snarminnkað. Fólk óttist nú að lenda í klóm Skattmanns. Aðrir segja að með hnýsni yfirvalda sé verið að brjóta gegn rétti fólks til að verja einkalíf sitt. Arnaraugu Skattmanns Unnið svart » Gert er ráð fyrir að 18% landsframleiðslu fari fram utan við skattkerfið. » Ítalía skuldar meira en flest önnur Evrópuríki og leitar í ör- væntingu að meiri tekjum. » Neytendasamtök segjast ætla að höfða mál gegn red- ditometro.  Fylgst með „óeðlilegri“ eyðslu á Ítalíu og krafist skýringa ef útgjöld eru vel yfir uppgefnum tekjum á skattskýrslu Börn í höfuðborg Indónesíu, Jakarta, bíða í gær eftir að fá ýmis skólagögn sem sjóður til aðstoðar fólki í flóðavanda úthlutar. Geysileg rigning á svæðinu í lið- inni viku olli miklum flóðum, 32 fórust og um 46.000 manns urðu að flýja heimili sín. Rúmlega 10 milljónir manna búa í Jakarta og 250 milljónir í landinu öllu. AFP Beðið eftir aðstoð í Jakarta Hugmyndin um sameinaða Evrópu er ekki í kreppu, „hún er að deyja“. Þetta er fullyrt í opnu bréfi 11 þekktra lista- og menntamanna sem birtist í ýmsum fjölmiðlum álfunnar í gær. Meðal þeirra eru Ítalinn Um- berto Eco, Frakkinn Bernard-Henri Levy og Indverjinn Salman Rushdie sem lengi hefur verið búsettur í Bretlandi. Bréfritararnir ræða um þá Evr- ópu sem hafi verið „ný hugmynd sem færði fólki áranna eftir stríð frið, hagsæld og lýðræði – gæði sem ekki áttu sér fordæmi. Þessi sama Evrópa er aftur að leysast upp fyrir framan augun á okkur.“ Hvarvetna séu teikn um upplausn og brotthvarf til lýðskrums, þjóð- rembu og gyðingahaturs. En ekki síst ríki upplausn vegna evru- krísunnar endalausu. Gjaldmiðill sem ekki eigi sér kjölfestu í sam- bandsríki eigi sé enga framtíð. „Val- ið er annaðhvort pólitísk eining eða villimennska,“ segir í bréfinu. Evrópa ekki í kreppu, „hún er að deyja“  Lista- og menntamenn svartsýnir Átök Bréfritararnir 11 segja Grikki hafa hlotið slæma meðferð í kreppunni af hálfu annarra þjóða Evrópusambandsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.