Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 28

Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 ✝ SnæfríðurBaldvinsdóttir fæddist 18. maí 1968 í Reykjavík, en ólst upp á Ísafirði fram á unglingsár. Hún lézt á heimili sínu laugardaginn 19. janúar sl., 44 ára að aldri. Foreldrar Snæ- fríðar eru Bryndís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson. Systkini Snæfríðar eru: Aldís lögfræð- ingur, f. 21. janúar 1959. Dóttir hennar er Tatjana Dís Aldís- ardóttir; Glúmur, stjórnmála- fræðingur, f. 13. okt. 1966. Dóttir hans og Bryndísar Bjarnadóttur er Melkorka Glúmsdóttir; Kol- finna, sagnfræðingur, f. 6. okt. 1970. Börn hennar eru Starkað- ur Sigurðarson og Magdalena Björnsdóttir. Sambýlismaður Snæfríðar var Gunnar Gylfason, framkvæmda- stjóri, f. 10. marz 1965. Börn hans eru Sigríður Diljá Gunnars- dóttir, f. 12. marz 1993, Rakel Gróa Gunnarsdóttir, f. 24. júlí áratug (1990-2000) og í Mexíkó- borg (2001-’03) þar sem hún starfaði sem aðstoðarfram- kvæmdastjóri Ítalska verzl- unaráðsins. Á Rómarárunum stundaði hún háskólanám með- fram fyrirsætustörfum vítt og breitt um heiminn. Hún lauk B.Sc.-prófi í hagfræði og alþjóða- samskiptum frá John Cabot Uni- versity (1995) og M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði og stærðfræði frá St. John’s University (2000). Árið 2011 lauk hún öðru meist- araprófi frá Háskóla Íslands í þjóðhagfræði og hagmælingum (ekonometríu). Eftir sautján ára útivist sneri Snæfríður heim árið 2003. Þá gerðist hún aðjunkt og síðan lektor í hagfræði við Háskólann á Bifröst. Því starfi gegndi hún í tæpan áratug. Á sl. hausti var hún ráðin til starfa sem sérfræð- ingur hjá Fjármálaeftirlitinu. Frá árinu 2010 sat hún í stjórn Neytendasamtakanna og í fram- kvæmdastjórn þeirra frá hausti 2012. Snæfríður var á sl. hausti valin í alþjóðlega nefnd sérfræð- inga til að semja kennslurit í þjóðhagfræði, sem sniðið væri að þörfum meistaraprófsnema í þróunarlöndum. Útför Snæfríðar Baldvins- dóttur fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík í dag, 29. janúar 2013, og hefst athöfnin kl. 15. 1995, og Oddný Þóra Gunnarsdótt- ir, f. 14. nóvember 2003. Foreldrar hans eru Oddný Sigurðardóttir, f. 1. marz 1932, og Gylfi Snær Gylfason, f. 23. október 1932, d. 14. febrúar 1967. Barnsfaðir Snæ- fríðar er Marco Brancaccia blaða- maður. Dóttir þeirra er Marta Snæfríðardóttir Brancaccia, f. 31. mars 1996, framhaldskóla- nemi. Marco og Snæfríður slitu samvistum árið 2003. Snæfríður hóf skólagöngu sína í Barnaskólanum á Ísafirði. Hún stundaði tónlistarnám við Tónlistarskóla Ragnars H. Ragn- ar á Ísafirði frá barnsaldri með fiðluleik sem aðalgrein. Snæfríð- ur lauk stúdentsprófi frá MR 1988, en las utan skóla tvo sein- ustu veturna, þar sem hún starf- aði sem fyrirsæta frá sautján ára aldri, með aðsetri í París, London og Róm. Snæfríður var búsett í Róm í Þegar hún leit fyrst ljós heims- ins kvaddi hún sér hljóðs, eftir- minnilega. Það var hvorki van- máttugt kjökur né síngjörn heimtufrekja. Það var sjálfstæðis- yfirlýsing. Þannig var hún var allt sitt líf: Sjálfstæð og viljasterk. Uppvaxtarárin á Ísafirði settu á hana mark. Frá barnsaldri lagði hún stund á fiðluleik í Tónlistar- skóla Ragnars H. Ragnar. Í þeim skóla voru tónleikar fyrir fullum sal þrisvar á ári: Um jól, páska og vor. Á öllum þessum tónleikum spilaði hún einleik af öryggi og ástríðu. Í fiðluleiknum birtust okk- ur aðrir eðliskostir hennar: Feg- urðarþráin og vandvirknin. Við eigum ennþá eintak af Faunu, karikatúr menntskælinga í MR af útskriftarnemum. Þar birt- ist hún í skólastofunni, fljúgandi utan úr heimi á töfrateppi fyrir- sætunnar, og spyr: „Stelpur, hvað á að lesa til prófs?“ Myndin er raunsönn. Hún las á fáeinum vik- um námsefni ársins. Hún stóðst öll sín próf með sóma. Og sýndi í því óvenjulegan sjálfsaga og einbeit- ingarhæfni. Á þeim árum, þegar hún ferðað- ist heimshorna á milli í starfi sínu sem fyrirsæta, lét hún það ekki trufla sig frá kröfuhörðu námi við ameríska háskóla, þaðan sem hún lauk bæði B.Sc.- og meistaraprófi. Og uppgötvaði þá að stærðfræði lá létt fyrir henni eins og ömmu hennar, Aldísi, sem las stærðfræði að gamni sínu á efri árum, til að bæta fyrir glötuð tækifæri á upp- vaxtarárum, mitt í heimskreppu. Í þessu birtist metnaður Snæfríðar og fyrirhyggja. Kennsla er göfugt starf. Góður kennari er bæði gefandi og skap- andi. Þannig reyndist Snæfríður nemendum sínum á Bifröst þann tæpa áratug, sem hennar naut þar við. Hún fór stöðugt vaxandi sem kennari og fræðimaður. Og lét sig ekki muna um að taka aðra meist- aragráðu, með kennslu, við Há- skóla Íslands, í torskildustu grein- um hagfræðinnar. Hún vildi dýpka skilning sinn á viðfangsefnunum til að geta betur miðlað öðrum. Þannig birtist okkur skyldurækni hennar og ábyrgðartilfinning. Aldrei heyrði ég hana stæra sig af verkum sínum. En ég gleymi ekki brosinu í augum hennar þeg- ar hún sýndi mér nýlega bréf, þar sem tilkynnt var, að hún hefði ver- ið valin í alþjóðlega nefnd til að semja grundvallarrit í þjóðhag- fræði, sem væri sniðið að þörfum meistaranema í þróunarríkjum. Til slíkra verka veljast bara hinir bestu. Undanfarin dægur höfum við Bryndís, systkini Snæfríðar, vinir og vandamenn spurt hvert annað, skilningsvana frammi fyrir mis- kunnarleysi örlaganna – hvers vegna? Hvers vegna einmitt núna – í blóma lífs – þegar sköpunar- verkið bíður heillandi fram und- an? Hvers vegna spyrjum við, ráð- þrota í örvilnan, – en fáum ekkert svar. Á slíkri stundu leitum við á náðir tónlistarinnar, sem kemst næst því að lyfta mannsandanum upp á æðra tilverustig sköpunar- verksins. Með Svanavatn Tsjaí- kovskís, herhvöt Verdis til hinnar fjötruðu og frelsisóð Beethovens ómandi innra með okkur varðveit- um við og vegsömum minningu þína í hjarta okkar. Í huga okkar og hjarta ert þú, varst og verður alltaf, svo lengi sem við drögum lífsandann, okkar eina sanna Snæ- fríður Íslandssól. Jón Baldvin Hannibalsson. Æi góði, hváir þú líklega þegar þú lest þessi orð. En þú verður að leyfa ást minni að ráða ferð að þessu sinni. Hér sit ég og græt í landinu þar sem myrkrið ræður ríkjum þessa daga. Og mér dettur ekki til hugar að hætta að gráta. Það er gott að gráta. Af hverju græt ég? Af því ég elska þig. Ég elska þig svo mik- ið, vissirðu? Ég ætla að láta það vera að fara í gegnum líf okkar saman hér á þessu dimma, regnvota kveldi. Ég ætla bara að halda áfram að hugsa um þig og gráta. Það er gott að gráta. Það hef ég uppgötvað eftir að þú fórst í burt. Svo ég mun bara halda því áfram fyrst það gerir mér svo gott. Og þess í millum ætla ég að gera það sem þú vildir að ég gerði. Ég ætla að verða sterkur fyrir þig, en leyfa mér samt að finna til. Og ég lofa þér að þótt ég gráti þá mun ég ekki leggja árar í bát. Síður en svo. Ég mun fara að þeim orðum sem þú hvíslaðir svo blíðlega í eyru mér um daginn. Ég treysti því að þú sért núna í fögnuði með okkar ástvinum þeirra megin. Ömmu og afa og allri hersingunni. Og ég strengi þess heit, elsku systir mín, að þeg- ar ég kem mun ég koma hnar- reistur og mun þá fyrst hætta að gráta þegar ég fell í faðm þinn. Og þá kennirðu mér að dansa og blóta á ítölsku. Og þá spilar þú á fiðluna litlu og ég verð með fíflalæti. Og þá tekurðu ballett-possisjónirnar fyrir framan spegilinn og ég verð með fíflalæti. Og ég skal láta gamminn geisa og ég skal gera gys og þú mátt alveg stríða mér eins og þú gerðir svo oft og tíðum. Stríðni þín var neisti þeirrar djúpu ástar sem ég ber til þín. Nærvera þín er, var og verður hvati minn. Svo fáum við okkur lystaukandi ítalska forrétti og dí- sæta eftirrétti en sleppum óþarfa aðalréttum líkt og við gerðum allt- af í London og Mílanó forðum. Þú veist þú varst besti vinur minn. Þú varst stóra systir mín þótt yngri værir að árum. Og þú dansar og dansar og ég brosi vandræðalega en hughrifinn. Þegar eitthvað bjátaði á í lífinu þá hafði ég þig og þú mig. Svo mín fyrstu viðbrögð við harmi mínum voru að fálma eftir símanum til að hringja í þig – þar til ég áttaði mig á því að harmur minn var brott- hvarf þitt. Ég hringdi samt og vonaði í hjarta mínu að þú svar- aðir og allt væri þetta bara einn stór misskilningur. Ekkert svar. Ég lifi við það. Og við munum allt- af hafa Mörtu þína sem speglar þína ásjónu. Dagarnir verða aldrei aftur samir á mínum ófarna vegi. Ég tek því. Vegna þess að ég mun geyma okkar sólríku daga fjær og nær í hjarta mér þar til ég finn þig aftur. Ég skal, þrátt fyrir harm minn, brosa við þinni undurfögru minningu. Þú ert mitt ljós, stefna og mín sýn. Ég ætla að láta þína fögru ásjónu og sterku persónu verða mér keppikefli. Hið ljósa man, sem nóbelsskáldið orti um. Snæ- fríður Íslandssól. Sá hitti nú held- ur betur naglann á höfuðið þegar þú komst í heiminn. Þá loksins varð hún til. Um persónu þína verður margt fallegt sagt. Þú sem enginn gleymir. Þínir ljósu lokkar sem við öll þurfum á að halda, alla þessa löngu daga í sól og skugga. Eins og skáldið að vestan sagði: fjarlægð þín sefur í faðmi mín- um … Glúmur Baldvinsson. Heyrðu mig, hjartfólgna systir mín, heyrðu köll mín, ástin, til þín, hvað ég hrópa í himinsins átt, hvað ég harma þitt hvarf svo brátt, og þrái að þú vitir, ef vissir ei þú sem værum svefni blundar nú, ég ann þér, systir, svo undurheitt, enginn og ekkert fær því breytt og sjá, ég þig signi í bæn til Abba er saman við eigum fyrir pabba og bið hann að hugga dóttur minnar systur, heyr mína bæn, Guðs vors Kristur. Aldís Schram. Það var fallegur sumardagur og þú stóðst hnarreist, eins og ís- lenska fjallkonan, í stofunni á heimili foreldra þinna í Mosfells- dalnum, tignarleg, björt og íðilfög- ur – hið ljósa man – Snæfríður Baldvinsdóttir, eða Dídí, eins og við kölluðum þig alltaf. Heiðblá augun leiftruðu af hlýju og húmor, stofan var full af fólki og þú beind- ir orðum þínum til mín. Þú hafðir ritað mér ræðu á fertugsafmælinu og talaðir af festu, yfirvegun og til- gerðarleysi, eins og þú gerðir allt- af, og þú lést engan ósnortinn þennan dag. Enda barstu af með tígulegt og lifandi fasið, og leiftr- andi persónutöfra, hvar sem þú komst. Í ræðunni sagðirðu m.a. frá því þegar við hittumst fyrst fyrir 25 árum við ljósmyndatöku, en báðar höfðum við af því starfa að sitja fyrir um skeið, þótt þér hafi aldrei hugnast tildur og prjál fyrirsætuheimsins. Þú lagðir líka land undir fót sem fótómódel og komst heim með hagfræðipróf undir hendinni. Það var þér líkt. Seinna gerðist ég mágkona þín þegar ég tók saman við Glúm bróður þinn og innileg vinátta tókst með okkur. Ég var svo óum- ræðanlega stolt af þér og því að þú værir náin vinkona mín. Þú þessi leifturgreinda, heilsteypta, stað- fasta, fallega, einstaka, bráð- skemmtilega kona. Það var engin heilli og fallegri en þú. Kannski setur þú í brýrnar núna og fussar yfir því hversu væmin ég er en samt þykist ég vita að þú fyrirgef- ir mér það núna. Mér er um megn að skilja af hverju þú varst tekin frá okkur í blóma lífsins. En ég verð að læra að lifa með því. Læra að vera sterk eins og þú hefðir verið. Læra að lifa með sorginni og söknuðinum. Læra að lifa með því að ég get ekki lengur slegið á þráðinn eða hitt þig og átt með þér innihaldsríkar og einlægar sam- ræður. Að geta ekki lengur leitað til þín í trúnaði, eins og ég gerði svo oft, líka þegar illa áraði og mér fannst ég hafa kollsiglt lífi mínu, og þú af þinni einstöku rósemd og rökfestu gafst mér bjargráð og heilræði. Nafn þitt barstu með rentu, hin eina sanna Snæfríður Íslandssól, kvenskörungur fram í fingurgóma sem aldrei barmaðir þér og varst fádæma hógvær, þótt þú hefðir hlotið alla þá mannkosti í vöggugjöf sem eina manneskju getur dreymt um. Í svo ótal mörgu varstu mér fyrirmynd. Í styrk þínum, yfirvegun og skap- festu þegar þú tókst á við erfið verkefni eins og málaferlin í bar- áttunni fyrir forsjá dóttur þinnar og lést aldrei bilbug á þér finna. Í kennslustörfum þínum á Bifröst, þar sem við kenndum saman um stund og nákvæmni þín, metnað- ur, dugnaður og vandvirkni var allsráðandi. Í móðurhlutverkinu þar sem þú sýndir dóttur þinni einstakt atlæti, kenndir henni sömu festu og styrk og þú hafðir fyrir og varst hennar allra besti vinur. Það er ótal margt annað sem ég get talið upp og þú mátt vita að ég leit mjög upp til þín. Þú varst mér sem systir. Vissir þú það? Ég trúi að þú hafir vitað það. Og jafnvel þótt ég komi ekki á Víðimelinn lengur og hitti þig þar fyrir mun ég halda áfram að tala við þig svona, elsku Dídí, því þú dvelur í hjarta mér um aldur og ævi. Ég bý að hafsjó af stórbrotn- um og fallegum minningum um þig sem ég vegsama og geymi, fal- lega Snæfríður mín. Þakka þér heilshugar fyrir allt sem þú gafst mér. Far í friði hjartans vinkona, Bryndís Bjarnadóttir. Skammt er nú stórra högga á milli. Aðeins rúm vika var liðin frá því að við fylgdum Arnóri bróður mínum til grafar, þegar annað högg reið af í sama knérunn og hitti í þetta sinn fyrir Snæfríði Baldvinsdóttur bróðurdóttur mína, konu á besta aldri og í blóma lífsins, sem allir væntu að ætti langt líf og farsæla ævi framund- an. Víst er það harmsefni þegar öldungur hnígur í val, þótt langur sé að því aðdragandinn, hitt nær óbærileg sorg þegar dauðinn hrifsar á einu augabragði til sín ástvin í miðri dagsins önn. Snæfríður hafði flest það til brunns að bera sem eina mann- eskju getur prýtt. Hún var björt og fögur álitum, sviphrein og stilli- leg. Í menntaskóla buðust henni spennandi tækifæri til starfa sem fyrirsæta í háborgum tískunnar París og Róm og hún lét sig ekki muna um að stunda námið jafn- framt því sem hún ferðaðist út og suður og vann myrkranna á milli. Skólafélagarnir hafa löngum skemmt sér yfir hinni klassísku spurningu Snæfríðar: getur ein- hver sagt mér hvað er til prófs? En henni var ljóst að lífið og lífs- stíllinn sem þessum starfa fylgir átti ekki við hana til lengri tíma lit- ið, og svo fór að hún lagði fyrir sig langskólanám í hagfræði og stærðfræði. Á þeim sviðum byggði hún starfsferil sinn sem háskóla- kennari og sérfræðingur hjá Fjár- málaeftirlitinu. Snæfríður hafði alltaf vakið at- hygli mína í fríðum barnahópi Jóns og Bryndísar, en það var ekki fyrr en aldamótaárið 2000 sem ég kynntist henni sem sjálf- stæðri ungri konu. Við Guðrún fluttum þá um nokkurra mánaða skeið til starfa í Róm ásamt dætr- um okkar. Þar tók Snæfríður á móti okkur opnum örmum og greiddi götu okkar í hvívetna. Hún kom því í kring að stelpurnar fengu inni í sama skóla og Marta litla dóttir hennar, hjálpaði okkur að finna íbúð og læra að rata um myrkviði ítalska skrifræðisins. Hún opnaði heimili sitt fyrir okk- ur, leiðsagði okkur um borgina, lét okkur vita af leyndum bílastæðum á bak við fornminjar, ráðlagði um notalega veitingastaði og tók okk- ur með á vinafundi suður með sjó. Okkur leið vel saman og það mynduðust sterk og hlý bönd á milli okkar og væntumþykja sem við höfum átt síðan. Þótt hún sigldi þá í átt að erfiðum skerja- garði í einkalífi sínu, lét hún aldrei á neinu bera við okkur, hún var dul, kvartaði aldrei heldur var björt og gerði gott úr. Hún sigraði í þeim orrustum og bjó dóttur sinni gott og friðsælt líf hér heima. Við höfum glaðst yfir hamingju þeirra Gunnars og fylgst stolt með Snæfríði vaxa í námi og störfum. Við fjölskyldan erum óendan- lega þakklát fyrir þau góðu kynni sem tókust með okkur og þökkum Snæfríði allar þær góðu stundir. Við blessum minningu hennar og varðveitum hana. Innilega samúð vottum við Mörtu, Gunnari, Jóni, Bryndísi og ástvinum Snæfríðar öllum. Ólafur Hannibalsson. Elskuleg vinkona mín og frænka er horfin úr þessu jarðlífi langt fyrir aldur fram. Svo skyndi- lega. Við sem eftir sitjum og sökn- um hennar sárt erum harmi sleg- in. Hún var í blóma lífsins og svo margt framundan, svo ótrúlega margt sem hún átti eftir að upplifa með dóttur sinni og augasteinin- um Mörtu smörtu, eins og hún kallaði hana gjarnan, og svo margt sem hún átti eftir að gera með okkur öllum hinum sem stóð- um henni næst. Svo ósanngjarnt. Bara ósanngjarnt. Þeir sem þekktu Snæfríði vita að hún var ekki bara falleg, ein- staklega falleg að sjá heldur með eindæmum fögur að innan. Í sál hennar var ekki einn falskur tónn, ekki einn einasti, bara hreinir, ljúfir og fagrir tónar sem urðu sterkari, stærri og hljómfegurri eftir því sem árin liðu. Það var svo gott að tala við hana og síðustu árin var hún orðin ein af mínum bestu trúnaðarvin- um. Hún var alltaf reiðubúin að hlusta og greina, stilla strengina, rétta af áttavitann og beina mér á réttu brautina þegar mér fannst ég vera að villast af leið. Hún var hreinskilin og hljómurinn frá henni var ávallt hlýr, einlægur og góður. Hún var skilningsrík, um- burðarlynd og fordómalaus. Ég treysti dómgreind hennar og rétt- lætiskennd og vissi alltaf hvar ég hafði hana. Þannig var hún innst inni hún Snæfríður; góð og gefandi, en hún gat líka sýnt á sér aðrar litríkar hliðar, gat misst úr sér skondnar setningar, lent í klaufalegum og fyndnum atvikum, gert óspart grín að sjálfri sér og öðrum, og komið með beinskeyttar athuga- semdir þegar sá gállinn var á henni. En það risti aldrei djúpt – var kannski bara hennar leið til að komast í gegnum allt það sem hún gekk í gegnum sjálf og þær hildir sem hún háði. Ég veit að þær bar- áttur voru ekki til einskis og áttu eftir að ryðja brautina og hjálpa þeim sem á eftir komu. Ég sakna vinkonu minnar og frænku og sorgin rífur í hjartað en á sama tíma gleðst ég yfir góðum minningum um hana sem ég mun varðveita og hlúa að þar til minn tími kemur. Ég ætla að trúa því að þá munum við hittast að nýju. Megi Guð og allar góðar vættir gæta og styrkja gullmolann henn- ar hana Mörtu, Gunnar, foreldra Snæfríðar, systkini hennar og þeirra börn. Þín elskandi, Arna Schram. Snæfríður Íslandssól. Fegurst kvenna. Ég áttaði mig fyrst á vel- gengni frænku minnar sem fyrir- sætu á ferðalagi um Evrópu á 9. áratugnum þegar andlit hennar birtist hvarvetna á auglýsinga- skiltum á brautarstöðvum og flug- völlum. En persónuleiki Snæfríðar rúmaðist ekki innan ramma risa- stórra auglýsinga. Það var ekki undrunarefni þegar hún sagði skilið við fyrirsætubransann og sneri sér að námi og kennslu. Áhugasvið hennar var svo miklu víðtækara en það sem sneri að út- liti og ytra byrði. Öll viðkynning við Snæfríði skilur eftir góðar tilfinningar. Hún var greind og heilsteypt, hlý og æðrulaus. Þokki hennar og styrk- ur var svo augljós á álagstímum í lífi hennar. Minningarnar um ljóshærða stúlku í heimsókn hjá ömmu og afa í Selárdal, um páska á Ísafirði, um fjölskyldustundir þar sem böndin voru treyst lifa um ókomna tíð. Síðast þegar við hittumst ræddum við þá dásemd að verða móðir. Það fundu allir sterklega fyrir móðurástinni sem umvafði Mörtu og verndaði. Það, ásamt öll- um þeim kostum sem Snæfríður var búin, er gott veganesti fyrir lífið. Ég kveð frænku mína með söknuði og trega. Sólveig. Okkar elskulega vinkona til margra ára er fallin frá í blóma lífsins. Hún er okkur öllum mikill harmdauði og verður hennar sárt saknað. Hún var ljúf og falleg, fyndin og skemmtileg og við eig- um margar góðar minningar um samverustundir á Íslandi og víða um heim. Hún var alltaf traustur vinur sem sýndi okkur vinkonum sínum ætíð sannan áhuga og tók þátt í gleði okkar og sorgum af þeirri einlægni sem einkenndi hana alla tíð. Andi hennar verður með okkur áfram þótt við finnum sárt fyrir skarðinu sem hefur verið höggvið í okkar vinahóp. Hugur okkar er hjá Mörtu, Gunnari og fjölskyldum þeirra. Aðalheiður Lilja, Arna, Bergljót, Dagný, Gunnlaug, Hanna Þóra, Kristín, Lára, Sigrún og Ýrr. Góður starfsfélagi og vinur til margra ára, Snæfríður Baldvins- dóttir, er fallin frá í blóma lífsins. Við sviplegt fráfall hennar er margs að minnast. Við blasir að Snæfríður var forkunnarfögur. Ein glæsilegasta kona landsins. Mér er þó hnífskörp greind henn- ar og hlý nærvera efst í huga. Snæfríður var dáð, virt og elsk- uð af nemendum sínum. Það veit ég af ummælum þeirra margra í Snæfríður Baldvinsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.