Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 ✝ Kjartan ÁrniBjörnsson fæddist á Krit- hóli í Skagafirði 7. október 1932. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Sauð- árkróks 20. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Helga Frið- riksdóttir, fædd 28. september 1906, dáin 3. maí 2005, og Björn Ólafsson, fæddur 9. ágúst 1908, dáinn 12. nóvember 1985. Kjart- an ólst upp á Krithóli og var annað barn foreldra sinna. Hin eru Guðríður, f. 2. október 1928, d. 21. apríl 2006. Maki Jónas Kristjánsson. Bára f. 15. sept- ember 1934. Var gift Jóni Hens- ley (skilin), hann lést 29. sept- ember 2005. Ólafur, f. 22. janúar 1949, maki Anna Ragn- arsdóttir. Eiginkona Kjartans er Birna Guðmundsdóttir frá Sölvanesi í Skagafirði, f. 1. júlí 1941, hófu þau búskap á Krit- hóli 1978 og bjuggu þau þar allan sinn búskap. Börn Birnu af fyrra hjónabandi eru Sigurlína Hrönn, f. 18. mars 1962, maki Gunnar Sig- urður Valtýsson, d. 16. janúar 2007. Eiga þau 3 börn. Sambýlismaður Hrafn Sigurðsson. Ragnhildur, f. 9. maí 1965. Maki Valdimar Bjarnason. Eiga þau 3 börn. Rósa Borg, f. 20. september 1966. Maki Þorgrímur Friðrik Jónsson. Eiga þau 3 syni. Sigríð- ur Margrét, f. 28. maí 1968. Maki Rögnvaldur Sigurðsson. Eiga þau 1 son og hún 4 börn af fyrra hjónabandi. Lúðvík Al- freð, f. 19. janúar 1973, d. 2. apríl 2006. Á hann 3 dætur. Útför Kjartans verður gerð frá Víðimýrarkirkju í dag, 29. janúar 2013, og hefst athöfnin klukkan 14. Mig langar til að segja nokkur orð um hann afa minn sem mér þótti alveg ofboðslega vænt um. Ég mun aldrei gleyma öllum þeim yndislegu minningum og stundum sem við afi fengum að eiga saman, þær eru einstakar. Við afi áttum margt sameig- inlegt, hestar voru okkar helsta áhugamál og þótti okkur ekki leiðinlegt að ræða saman um hesta, knapa og keppnir. Við afi höfðum alltaf sama smekk á hrossum og vorum alveg sam- mála um það hvernig ætti að sitja hest og þjálfa hann rétt, þetta var ekkert flókið fyrir okk- ur, bara sitja beinn í baki, vera mjúkur við hestinn og hafa gam- an af þessu. Afi er einn besti hestamaður sem ég hef kynnst, hann var þrælmagnaður og vissi alltaf hvað átti að gera, ég veit kannski ekki hvernig hann var þegar hann var á sínum yngri árum að temja hross en ég get ekki ímyndað mér neitt annað en að hann hafi verið algjört gæða- blóð og allir hestar hafi verið gæðingar. Ég man þegar mamma og pabbi voru einhvers- staðar í burtu og ég var að fara að keppa á Vindheimamelum og auðvitað vildi afi með glöðu geði hjálpa mér að keyra hestinum á melana og hjálpa mér með allt. Afi kom alltaf að horfa á mig þegar ég var að keppa, og hon- um fannst ég alltaf standa mig vel þó ég hefði kannski klúðrað öllu. Hann var alltof svo jákvæður og vildi allt fyrir mig gera, hann fór í eltingaleik við mig og vin- konur mínar í mörg ár og alltaf var hann jafn skemmtilegur við okkur. Við afi áttum svo margt sam- eiginlegt að það er erfitt að hugsa út í það að það verði aldr- ei neinn afi sem vill fá hjálp með að skíra folöldin, smala kindum, marka lömb og draga í dilka. Ég kveð þig hér, elsku afi, og allar stundirnar sem við áttum saman verða efst í minni mínu, þín verður sárt saknað. Þitt barnabarn og vinur. Það er sveit bak við heiðina háu þar sem heiðríkust vornóttin skín. Þar sem ótal mörg lífssporin lágu leitar hugur minn ákaft til þín. Þar sem dvaldi ég æskuna alla þar sem ævinnar starf mér ég bjó. Mega hverfa í faðm þinna fjalla færir sál minni huggun og ró. Ég var bundinn þér bláfjallasalur hverju blómi er í skjóli þér grær og þú seiddir mig sólríki dalur sveitin öll, hún var hjartanu kær. Þar sem hnjúkurinn hæstbrýndur fjalla heldur trúr yfir byggðinni vörð. Ó, hve gott er nú höfðinu að halla hinsta sinn að þér blessaða jörð. (Jóhann frá Giljum.) Rósanna. Í nokkrum orðum langar mig að minnast Kjartans vinar míns og fóstra. Það er orðinn langur tími síðan mamma kom inn í líf hans með fjörugan og uppá- tækjasaman barnahóp. Kjartan tók vel á móti hópnum og ann- aðist okkur af umburðarlyndi og trausti. Við tókum þátt í bú- skapnum eins og venja er með börn í sveit. Mér leið vel í návist Kjartans og við urðum strax miklir vinir. Hann fór með mig í reiðtúra til að stytta mér stundir þegar næði gafst og má segja að hann hafi komið okkur Valla af stað í okkar hrossarækt, var allt- af áhugasamur og hvetjandi leið- beinandi. Hann Kjartan hafði óskaplega gaman af börnum og þau hænd- ust að honum, vinir mínir voru alltaf velkomnir heim í Krithól með mér og seinna einnig vinir barna minna. Það kom oftar en ekki fyrir að allt fór á fleygiferð innanhúss í eltingaleikjum og alls kyns ærslum og átti hann oftast upptökin sjálfur. Kjartan var þátttakandi í gleði- og sorg- arstundum fjölskyldunnar, hann var ekki maður margra orða, skipti aldrei skapi og alltaf traustur og til staðar. Ég kveð hann með kæru þakklæti fyrir allt sem hann var mér, Valla og börnunum. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma. – Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Einarsson) Ragnhildur. Kjartan Árni Björnsson ✝ Kristjana Guð-rún Benedikts- dóttir fæddist á Hólmavaði í Að- aldal 17. desember 1927. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar henn- ar voru Benedikt Kristjánsson, bóndi á Hólmavaði, og eiginkona hans Jónasína Halldórsdóttir. Systkini Krist- jönu eru Kristjana, f. 1916, d. 1925; Kristján, f. 1923, d. 2007. Halldór Davíð, f. 1929, d. 2009 og Lára, f. 1937. Kristjana ólst Jónasson, f. 18.9. 1957, maki Guðrún Guðbjartsdóttir, f. 6.1. 1959. Börn þeirra eru Krist- jana Snædís, maki Sveinn Bjarnason, Guðbjartur Fannar, maki Guðrún Þórhildur, Þor- steinn Snævar, maki Helga Dagný. 3) Guðlaug Alda Jón- asdóttir, f. 19.7. 1959, d. 2.8. 1979. 4) Hólmdís Birna Jón- asdóttir, f. 25.2. 1965, maki Gerhard Grillitsch, f. 4.6. 1961. Börn þeirra eru Daníel Örn, Tómas Atli. 5) Guðrún Elín Jónasdóttir, f. 21.12. 1966. Barnabarnabörnin eru sex. Hófu þau sambúð á Hólmavaði en fluttu ári síðar til Húsavíkur og bjuggu þar alla tíð. Ásamt því að vera húsmóðir vann Kristjana hin ýmsu störf utan heimilis. Útför Kristjönu fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag, 29. jan- úar 2013, og hefst athöfnin kl. 14. upp á Hólmavaði og nam við Hús- mæðraskólann á Laugum. Hinn 25.11. 1954 giftist hún Jónasi Þor- steinssyni, f. 24.11. 1921, bifreiða- stjóra og eignuðust þau fimm börn. Þau eru: 1) Guð- mundur Jón Jón- asson, f. 16.4. 1955, maki Dóra Gunnarsdóttir, f. 20.1. 1950. Börn þeirra eru Gunnur Ósk, maki Aðalsteinn, Jónas Þór, maki Heiða Björk, Guðlaugur Hólm, maki Helga Bergrún. 2) Benedikt Kristján Með örfáum fátæklegum orð- um langar mig að minnast tengda- móður minnar Kristjönu Guðrún- ar Benediktsdóttur. Nú þegar komið er að kveðju- stund streyma fram góðar minn- ingar um skemmtilega, ljúfa og góða dugnaðarkonu. Stjana (eins og hún var kölluð) var hógvær manneskja sem ekki bar tilfinn- ingar sínar á torg þrátt fyrir áföll í lífinu. Hinsvegar var hún ávallt reiðubúin að hlusta á aðra og hjálpa öðrum eftir fremstu getu. Eiginmanni sínum og börnum bjó hún fallegt heimili þar sem all- ir voru velkomnir og ávallt tekið höfðinglega á móti gestum, óhætt er að segja að Stjana hafi stjanað við alla þá sem til hennar komu og notið þess af lífi og sál. Garðinn sinn ræktaði hún af mikilli alúð, rósirnar hennar voru augnayndi og sólskinsdagar í garði þeirra hjóna við Ásgarðs- veginn voru dásamlegir þar sem rósirnar ilmuðu, árniðurinn söngl- aði í eyrum og Stjana bar fram kaffi og kökur út á sólpallinn, sem var þeirra unaðsreitur. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Ég þakka Stjönu samfylgdina og alla þá elsku og hlýju sem hún ávallt sýndi mér og mínum. Einnig vil ég þakka þá frábæru umönnun sem hún hlaut hjá starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á Húsavík í hennar erfiðu veikindum, var ekki hægt að hugsa sér betri aðbúnað. Ég bið góðan Guð að styrkja tengdaföður minn og sendi honum og öllum ástvinum mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Dóra Gunnarsdóttir Elsku amma, mig langar til að þakka þér fyrir allar þær notalegu og skemmtilegu stundir sem við höfum átt saman, en þær eru ófá- ar. Tíminn á Ásgarðsveginum með ykkur afa Donda eru mér efst í huga núna, en þangað kom ég nær daglega sem barn. Það var fastur punktur að koma til ykkar afa eftir skíðaæf- ingu og í hádegishléinu í skólan- um, þá var ætíð tekið á móti manni með smurðu brauði, steiktri ýsu eða einhverju öðru matarkyns úr búrinu, síðan var manni kannski pakkað inn í teppi og sagt að hvíl- ast. Ég minnist þess eitt sinn sem ég kom til ykkar í hádegishléi í skólanum að eftir matinn var ég vafin inn í teppi upp í sófa og sagt að hvílast. Ég bað þig að vekja mig svo ég yrði nú ekki of sein í skólann, þú kinkaðir kolli og glott- ir, þegar ég vaknaði síðan og leit á klukkuna og sá að ég var orðin alltof sein í skólann. Ég spurði þig af hverju þú hefðir ekki vakið mig. Þá svaraðir þú brosandi: „Æi ég tímdi bara ekki að vekja þig, nafna mín, þú svafst svo vært.“ Þetta finnst mér lýsa þér svo vel, vildir alltaf að öllum liði vel og gerðir allt til þess. Mér þótti alltaf svo gaman þeg- ar þú dróst mig um allt hús, upp á loft og útí garð, þú hafðir svo margt að sýna mér. Það sem ein- kenndi þessa leiðangra var hvern- ig þú barst þig, þú bograðir yfir rósunum og dinglaðir fingrunum ótt og títt. Þú tókst aldrei bílpróf og held ég að þú hafir séð eftir því – og þó. Eitt sinn er við vorum á leið í kart- öflugarðinn lét pabbi þig keyra gamla Broncoinn sinn. Það reyndi vel á fjaðrirnar í bílnum og held ég að þetta hafi verið ein skemmti- legasta bílferð sem ég hef farið í um dagana því við hlógum og hlógum alla leiðina í garðinn. Það eru forréttindi að hafa átt svona yndislega ömmu sem ávallt tók svo blíðlega á móti manni og alltaf var stutt í húmorinn. Þú varst ein mín besta vinkona enda hægt að tala við þig um allt og oft var mikið hlegið. Ég á góðar minningar um góða ömmu og kveð ég þig með söknuði. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Þín nafna, Kristjana Snædís Benediktsdóttir. Elsku amma okkar, Við systkinin úr Norðurbyggð- inni viljum minnast þín í nokkrum orðum. Það var alltaf svo notalegt að koma í heimsókn til þín og afa á Ásgarðsveginn. Sitja inni í betri stofu og spila við afa eða inni í eld- húskróknum og spjalla við þig. Það fyrsta sem okkur dettur í hug þegar við hugsum til þín, amma, er hversu góðan húmor þú hafðir. Þú varst alltaf til í eitthvert sprell og einhvern fíflagang með okkur barnabörnunum. Alltaf sástu já- kvæðu hliðarnar á hlutunum og gleði þín hafði góð áhrif á þá sem voru í kringum þig. Þú varst mikið náttúrubarn og gaman var að upplifa og fræðast um náttúruna í þínum félagsskap. Við fórum oft í berjamó, bíltúra um sveitina og tókum upp kart- öflur saman. Garðurinn þinn var alltaf svo fallegur og gríðarlega skemmtilegt leiksvæði fyrir okkur krakkana og ekki skemmdi Búð- aráin fyrir. Jónas minnist þess sérstaklega þegar þú gerðir handa honum veiðistöng úr kúst- skafti, þykkum tvinna og á end- ann hnýttir þú svo öngul sem þú gerðir úr gamalli bréfaklemmu. Með þennan búnað stóð hann klukkutímum saman við Búðar- ána og stöngin klikkaði ekki því nokkrar lontur enduðu í fötunni eftir daginn. Ekki er hægt að minnast á þig, amma, og Ásgarðsveginn án þess að koma inn á þær miklu matar- veislur sem þú framreiddir þegar einhver kom í heimsókn. Í uppáhaldi hjá okkur var góð- gæti á borð við frómas, ömmu- hakkið fræga, kleinur o.s.frv. Við minnumst þó sérstaklega jóla- boðsins sem var á hverju ári, allir sátu við langborðið inn í betri stof- unni en þú þeyttist fram og til baka, stjanandi við alla eins og þér einni var lagið. Já, margs er að minnast þegar komið er að kveðjustund og viljum við þakka þér innilega fyrir sam- veruna og velvildina í okkar garð í gegnum tíðina. Við munum sakna þín, elsku amma okkar. Gunnur, Jónas og Guðlaugur. „Má ekki bjóða þér eitthvað?“ Þessi setning hljómaði reglulega þegar komið var í heimsókn til þín á Ásgarðsveginn og það þýddi lítið að svara „nei takk“ því áður en hægt var að svara þér varstu byrj- uð að tína fram einhverjar kræs- ingar sem ekki voru af verri end- anum. Mér fannst stundum búrið þitt endalaus uppspretta af mat. „Langamma er fyndin og stríð- in,“ sagði dóttir mín, fimm ára, fyrir nokkrum dögum eftir heim- sókn til þín upp á sjúkrahús, en þá hafðir þú leikið á als oddi við hana og litla bróður hennar, m.a. gert atriðið með tönnunum sem gerði mikla lukku. Þú varst höfðingi heim að sækja, mikil barnagæla og hafðir gaman af því að stríða og fá börnin til að hlæja og notaðir til þess ým- is úrræði enda mjög svo úrræða- góð kona. Ég gleymi því ekki þegar ég sá Guðbjart, kannski átta ára, koma hlaupandi frá þér yfir til mín þar sem ég lá í heitum potti hjá afa og ömmu í Bergi. Þú hafðir klætt drenginn í gamlan brúnrósóttan sundbol af þér og sagt honum að þetta væri bara flott. Nafna þín hafði sagt þér að senda drenginn ekki svona klæddan yfir pottinn, en þú svaraðir að bragði: „Held- urðu að strákunum sé ekki sama?“ Ég þakka þér fyrir þenn- an gjörning, þetta var ógleyman- leg sjón. Elsku Stjana mín, það hafa ver- ið forréttindi að fá að kynnast þér og hef ég hef litið á þig sem eina af ömmum mínum. Þín mun ég ætíð minnast sem skemmtilegrar og líflegrar konu eða ömmu. Með þakkarkveðju, Sveinn Bjarnason. Kristjana Guðrún Benediktsdóttir ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför fóstur- móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGVELDAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Höfða, Akranesi, áður Vesturgötu 80. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilisins Höfða fyrir einstaka umönnun í veikindum hennar og hlýju í okkar garð. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Garðarsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför eiginkonu minnar og móður okkar, KRISTJÖNU ELÍSABETAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Brúnavegi 9, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu í Reykjavík á hjúkrunardeild H-1. Guðlaugur Gíslason, Guðmundur Guðlaugsson, Gísli Steinn Guðlaugsson. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför INGIBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR frá Ökrum, Ánahlíð 16, Borgarnesi. Gunnar Þór Ólafsson, Dagný Þorsteinsdóttir, Þórir Jökull Þorsteinsson, Böðvar Bjarki Þorsteinsson, Kolbeinn Þorsteinsson, Guðný Ása Þorsteinsdóttir. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.