Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013
Við konan [Tinna] héldum saman upp á afmælið um helgina.Hún varð líka þrítug fyrr í mánuðinum. Þetta var svonasmá geim hérna heima á laugardaginn, við elduðum fiski-
súpu og það var mikið stuð og sprell allan laugardaginn,“ segir
Friðrik Hagalín en gítartónar fengu víst eitthvað að hljóma fram-
eftir.
Friðrik Hagalín er vélstjóri að mennt. Hann er nýbyrjaður að
kenna vélstjórnargreinar í Menntaskólanum á Ísafirði. „Það er
mjög gaman en mikil vinna að byrja að kenna svona í fyrsta
skipti,“ segir Friðrik Hagalín og líkar vel að vera í kringum ung-
mennin. Í vélstjórnarnámi eru fyrstu tvö árin kennd á Ísafirði af
fimm en eftir það verða nemendur að leggja land undir fót og
halda suður í áframhaldandi nám. Friðrik Hagalín fór til Reykja-
víkur að klára sitt nám.
„Maður er með einhverja skipadellu,“ segir Friðrik, spurður um
áhugamálin. Hann sótti sjóinn áður í ríkum mæli en segist ekkert
fara að ráði núna því kennslan og fjölskyldan hafi forgang þessi
misserin.
Friðrik Hagalín er fæddur á Ísafirði og býr þar í dag með
Tinnu Arnórsdóttur og börnum þeirra; Elvari sjö ára og Helgu
Diljá tæplega tveggja ára. thorunn@mbl.is
Friðrik Hagalín Smárason er 30 ára í dag
Afmælisbarn Ísfirðingurinn og vélstjórinn Friðrik Hagalín Smára-
son hélt upp á afmælið ásamt konu sinni Tinnu sem er líka 30 ára.
Héldu upp á 60 ára
afmæli um helgina
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Akureyri Tinna Margrét fæddist 6.
mars kl. 13.56. Hún vó 3.850 g og var
53 cm löng. Foreldrar hennar eru Ólöf
Harpa Jósefsdóttir og Axel Grett-
isson.
Nýr borgari
Sigrún Anna Bjarnadóttir og Elín
Pálsdóttir söfnuðu 5.618 kr. á Húsavík
með því að ganga í hús og syngja fyrir
nágranna. Þær gáfu Rauða krossinum
ágóðann.
Söfnun
R
íkarður fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1964,
stundaði nám í læknis-
fræði við HÍ 1964-’66 en lauk emb-
ættisprófi í lögfræði við HÍ 1975.
Ríkarður var fulltrúi hjá sýslu-
manninum í Barðastrandarsýslu
1975-’76 og hjá sýslumanninum í
Dalasýslu 1975-’76, hjá bæjarfóg-
etanum í Hafnarfirði, Garðabæ og á
Seltjarnarnesi og sýslumanninum í
Kjósarsýslu 1976-’77, fulltrúi hjá
sýslumanninum í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu 1976 og 1977-’83,
settur sýslumaður í Strandasýslu
1980, settur sýslumaður í Snæfells-
nes- og Hnappadalssýslu 1982, skip-
aður sýslumaður í Strandasýslu
1983, skipaður sýslumaður á Hólma-
vík 1992 og var skipaður sýslumaður
á Sauðárkróki 1996 og hefur auk
Ríkarður Másson, sýslumaður Skagafjarðarsýslu - 70 ára
Barnabörn Ríkarður og Herdís á góðri stund með barnabörnunum Óskari Mána, Emil Andra, Áshildi Ólöfu, Ástu
Lilju, sem heldur á langafabarninu Ríkarði Magna, og Ragnari Má.
Íslendingasögurnar
lesnar spjalda á milli
Bergnumin Ríkarður og Herdís í boði í miðjum Vestfjarðargöngunum.
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981