Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 29.01.2013, Qupperneq 35
þess gegnt setudómarastörfum. Ríkarður var formaður Rauða- krossdeildar Strandasýslu 1984-’92, formaður Sjálfstæðisfélags Stranda- sýslu 1986-’91 og sat í stjórn Sýslu- mannafélags Íslands 1986-’93. Golfiðkun og frímerkjasöfnun Ríkarður spilar golf og safnar frí- merkjum: „Ég hef safnað frímerkjum frá fimm ára aldri. Sú var tíðin á mínum yngri árum að ég var í bréfaskiptum við frímerkjasafnara í Noregi, á Nýja-Sjálandi, Englandi og meira að segja í Kína. Slík samskipti hafa áreiðanlega margfaldast með til- komu netsins en ég er nú reyndar löngu hættur slíkum umsvifum. Hins vegar hef ég ennþá mjög gaman af því að dútla við frímerkin. Þetta er afskaplega róandi tómstundaiðja. Við hjónin höfum svo verið að spila golf síðustu 10-12 árin. Ég get nú ekki sagt að við séum í hópi þeirra áhugasömustu og við höfum ekkert verið að keppa við forgjöfina. En við förum saman út á golfvöll, hjónin, og nú fer maður að stunda þetta af alvöru, enda er þessi fíni golfvöllur hérna í hlaðvarpanum hjá okkur. Ég er ekki nema þrjár til fjórar mínútur að aka að heiman og út á völl.“ Aðspurður segist Ríkarður helst lesa Íslendingasögurnar: „Konan orðar það svo að ég lesi Íslendingasögurnar og aðrar glæpa- sögur. Ég las Grettissögu þegar ég var tólf ára og síðan hef ég lesið þessar stórkostlegu sögur á hverju ári. Ég er því löngu búinn að missa töluna á því hversu oft ég hef lesið hverja sögu. Ég les þær að sjálf- sögðu með gamla rithættinum, er núna að lesa Egilssögu en Njála er alltaf í uppáhaldi hjá mér.“ Fjölskylda Ríkarður kvæntist 24.9. 1966 Sig- rúnu Aspelund, f. 11.4. 1946, ritara og gjaldkera. Þau skildu 1991. Sonur Ríkarðs og Sigrúnar er Ríkarður Már Ríkarðsson, f. 18.6. 1965, tannsmíðameistari, búsettur í Mosfellsbæ en kona hans er Lilja Þorsteinsdóttir og eiga þau tvö börn. Ríkarður kvæntist 21.8. 1993, Herdísi Þórðardóttur, f. 3.8. 1948, húsfreyju. Hún er dóttir Þórðar Finnboga Guðmundssonar og Ólafar Hagalíns- dóttur í Reykjavík. Fósturbörn Ríkarðs og börn Her- dísar eru Hilmar Þór Óskarsson, f. 22.1. 1971, nemi í Ósló, en kona hans er Sigríður Síta Pétursdóttir leik- skólakennari og á hún þrjú börn; Sólveig Lilja Óskarsdóttir, f. 3.5. 1972, leikskólakennari, búsett í Mos- fellsbæ, en maður hennar er Helgi Rúnar og á hún eina dóttur; Davíð Þór Óskarsson, f. 9.4. 1979, sölumað- ur, búsettur á Akureyri, en kona hans er Eva Dögg Fjölnisdóttir hár- greiðslumeistari og eiga þau tvo syni. Systkini Ríkarðs eru Björn Þor- geir Másson, f. 15.3. 1944, fulltrúi í Reykjavík; María Másdóttir, f. 8.2. 1946, ritari í Reykjavík. Foreldrar Ríkarðs: Ríkarður Már Ríkarðsson, f. 4.12. 1915, d. 17.11. 1946, arkitekt í Reykjavík, og k.h., Þórey Jóna Bjarnadóttir, f. 28.2. 1924, d. 10.10. 2011, fyrrv. umboðs- maður Happdrættis Háskóla Ís- lands í Reykjavík. Úr frændgarði Ríkarðs Mássonar Ríkarður Másson Jón Jónsson, verkstj. á Hóli við Bræðraborgar- stíg í Rvík. af Víkingslækjarætt Guðrún Ingibjörg Magnea Jónsdóttir húsfr. í Rvík Bjarni Marinó Einarsson sjóm. og umsjónarmaður Alþýðuhússins í Rvík Þórey Jóna Bjarnadóttir húsfr. í Rvík Jónína Árnadóttir húsfr. Einar Árnason frá Búastöðum í Eyjum, sjóm. á Húsavík Björg Elísabet Stefánsdóttir húsfr. á Dallandi Ólafur Kjartansson b. á Dallandi í Húsavík eystra María Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Ríkarður Jónsson myndskeri Ríkarður Már Ríkarðsson arkitekt í Rvík Jón Þórarinsson smiður í Strýtu, bróðursonur Maríu Long, langömmu Eysteins Jónssonar ráðherra og Jakobs Jónssonar, sóknarprests í Hallgrímskirkju, föður Jökuls leik- ritaskálds og Svövu rithöfundar Finnur Jónsson listmálari Þóra Pétursdóttir húsfr. á Hóli, úr Vaktarabænum í Grjótaþorpi Anna Pétursdóttir húsfr. í Vörum í Garði Hrefna Þorsteinsdóttir húsfr. á Krókvelli í Garði EggertGíslason skipstj. Þorsteinn Gíslason fyrrv. fiskimálastj. Ólöf Finnsdóttir húsfreyja í Strýtu Margrét G. Finnsdóttir húsfr. á Litla- Búrfelli á Ásum Fanný K. Ingvarsdóttir húsfr. í Nesi í Norðfirði Ingvar Gíslason fyrrv. alþm. og ráðherra Sigurjón Ingvarsson skipstj. á Neskaupstað Sigurborg Sigurjónsdóttir húsfr. á Akranesi Karl Sighvatsson tónlistarmaður Sigurjón Sighvatsson kvikmynda- framleiðandi ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Páll Sigþór Pálsson hæstarétt-arlögmaður fæddist í Sauða-nesi í Torfalækjarhreppi 29.1. 1916. Hann var sonur Páls Jónssonar, bónda og búfræðings í Sauðanesi, og Sesselju Þórðardóttur frá Steindyrum. Meðal systkina Páls má nefna dr. Hermann, fyrrv. prófessor við Ed- inborgarháskóla; Gísla, fyrrv. odd- vita að Hofi í Vatnsdal; Hauk, bónda á Röðli, og Ríkharð tannlækni. Eiginkona Páls var Guðrún Stephensen, kennari, forstöðumaður á leikskólum í Reykjavík og starfs- maður á Þjóðminjasafni. Börn þeirra Páls eru lögfræðing- arnir Stefán og Páll Arnór; Signý, skrifstofustjóri menningarmála hjá Reykjavíkurborg; Sesselja forstjóri; Þórunn, kennari og leikari; Sig- þrúður sem er látin, bar listamanns- nafnið Sissú og var myndlistar- maður og arkitekt, dr. Anna Heiða bókmenntafræðingur og Ívar, við- skiptafræðingur og útflytjandi í Reykjavík. Sonur Páls frá því áður og Krist- ínar Gísladóttur er dr. Gísli Hlöðver Pálsson, ættleiddur sem Jack Gil- bert Hills, stjarneðlisfræðingur í Bandaríkjunum. Páll lauk kennaraprófi frá KÍ 1937, stúdentsprófi frá MR 1940 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1945. Hann var barnaskólakennari við Barnaskólann í Mýrarhúsum, Barnaskólann í Keflavík og Innri- Njarðvíkum og Miðbæjarskólann í Reykjavík á árunum 1937-42 og kenndi við Kvennaskólann í Reykja- vík í tíu ár. Hann var fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðn- rekenda 1947-56 en stundaði jafnframt málflutning með öðrum störfum og starfrækti síðan eigin málflutningsstofu í Reykjavík frá 1956 og til æviloka. Páll var um langt skeið í hópi virtustu málflutnings- manna, gegndi ýmsum trún- aðarstörfum, var t.d. formaður Hús- eigendafélags Íslands, Lögmannafélags Íslands og The World Peace Through Law Center, og sat í fjölda opinberra nefnda, einkum um margvíslegar lagabreyt- ingar. Páll lést 11.7. 1983. Merkir Íslendingar Páll S. Pálsson 103 ára Anna Pálmey Hjartardóttir 85 ára Guðmundur Eggertsson Guðrún Kristinsdóttir Herdís Tryggvadóttir Þuríður Fanney Sigurjónsdóttir 80 ára Anna Guðmundsdóttir 75 ára Baldur Guðmundsson Eiríkur Skjöldur Þorkelsson Ingigerður Guðmundsdóttir 70 ára Ársæll Þórðarson Lilja Una Óskarsdóttir Skúli Kristjánsson Trausti Sveinsson Valgerður Erla Friðleifsdóttir 60 ára Björn Snæbjörnsson Guðmundur Jóhannesson Helga Gerður Gunnarsdóttir Hrefna Sigríður Örlygsdóttir Jón Norðmann Engilbertsson María Anna Mikaelsdóttir Monica Mary Helgason Ragna Guðrún Atladóttir Sigrún B.K. Karlsdóttir Valur Guðmundsson 50 ára Aðalheiður H. Arnþórsdóttir Anna Guðrún Magnúsdóttir Bergþór Karlsson Birkir Einarsson Björgvin Kristbergsson Brynja Brynleifsdóttir Guðný Sif Njálsdóttir Guðrún Hrefna Sverrisdóttir Jóhanna Pétursdóttir Jón Hálfdan Árnason Katla Hallsdóttir Margrét Blowers Margrét Helgadóttir Páll Þór Guðmundsson Ragnheiður Ármannsdóttir Símon Helgason Viðar Þorkelsson 40 ára Davíð Örn Auðbergsson Guðni Steinn Sveinlaugsson Halla Birgisdóttir Halldór Vilhelm Svavarsson Jón Magnús Jónsson Nebojsa Vidic Óskar Örn Guðbrandsson Piotr Szkudlarek Rúnar Bogason Sigríður Einarsdóttir Sigríður Ingólfsdóttir Svava Rut Óðinsdóttir 30 ára Aleksandra Mladenovic Friðrik Hagalín Smárason Hrefna Sigurðardóttir Kolbrún Hauksdóttir Rut Stefánsdóttir Þórður Andri Hrannarson Til hamingju með daginn 30 ára Magnús ólst upp í Þorlákshöfn, er bygginga- tæknifræðingur frá HR og starfar hjá Trésmiðju Heimis í Þorlákshöfn. Maki: Finna Dröfn Sæ- mundsdóttir, f. 1982, hjúkrunarfræðingur. Foreldrar: Guðmundur Baldursson, f. 1949, skip- stjóri og framkvæmda- stjóri í Þorlákshöfn, og Kim Brigit Sorning, f. 1961, leiðbeinandi við leik- skóla í Þorlákshöfn. Magnús J. Guðmundsson 40 ára Sigrún lauk próf- um í uppeldis- og mennt- unarfræði frá HÍ og starf- ar á skóla- og frístunda- sviði Reykjavíkurborgar. Maki: Rúnar Bragason, f. 1972, vörubílstjóri. Börn: Heiða Rún, f. 1998; Arnar Máni, f. 2002, og Lilja Rún, f. 2008. Foreldrar: Lilja Júl- íusdóttir, f. 1937, hús- freyja, og Sveinbjörn Run- ólfsson, f. 1939, verktaki í Reykjavík. Sigrún Svein- björnsdóttir 40 ára Sveinbjörg ólst upp á Ísafirði, lauk emb- ættisprófi frá HÍ, er með hdl.-réttindi og er lög- maður með eigin stofu. Börn: Stefanía Þórhildur, f. 1998, Sesselja Katrín, f. 2001, og Eyjólfur Örn, f. 2001. Foreldrar: Sveinbjörn Kristjánsson, f. 1951, vél- virki, búsettur í Reykjavík, og Sesselja Ingjaldsdóttir, f. 1951, hárgreiðslum. í Reykjavík. Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.