Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 36

Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þér finnist eitt og annað kalla á krafta þína þá skaltu varast að dreifa þeim um of. Kannaðu hvert mál vandlega áður en þú lætur til skarar skríða. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt þú sjáir í gegn um tiltæki fólks, skaltu fara þér hægt í að afhjúpa það, ef eng- in hætta er á ferðum. Með smá hugarflugi tekst þér að láta þægilega reisu treysta böndin. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú kynnist einhverjum í dag sem kemur eins og stormsveipur með ýmsar nýj- ar hugmyndir. Líttu á það sem gjöf frá al- heimsvitundinni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ígrundaðu á hvern hátt þú getur bætt samskipti þín við ættingja og fjölskyldu. Reyndu að sýna umburðarlyndi þeim sem minna mega sín. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér finnst þú bera skarðan hlut frá borði þegar hvíld og afslöppun eru annars vegar. Ekki bíða eftir því að afrekin hrannist upp, þau gera það ekki nema þú lyftir litla putta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sköpunargáfa þín er öflug um þessar mundir. Innst inni þráir þú að komast út úr rútínunni. Bjóddu einhverjum í kaffi eða pitsu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það þarf ekki meira en eina ástúðlega hugsun til þess að miðla orku ástarinnar í þínum heimi á ný. Þú nærð alla leið ef þú vilt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekki er allt sem sýnist og hafðu það í huga ef þú ætlar að velja auðveldustu leiðina til að vinna þér tíma. Vertu því þol- inmóð/ur og gefðu öðrum tíma til þess að skilja um hvað málið snýst. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú munt ná takmarki þínu ef þér tekst að virkja annað fólk til að bera sinn hluta byrðarinnar. Ef þér finnst eitthvað að því ættirðu að hugleiða, hvað veldur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur reynt á þig að halda heimilisfriðinn. Það fer aldrei úr tísku að vera jákvæður. Vendu þig á að ganga strax frá eft- ir þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Spurningar sem ekki hefur verið svarað liggja í loftinu. Þér hættir til að gera úlfalda úr mýflugu. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú munt hugsanlega fá annað tæki- færi til að þiggja starf sem þú hefur þegar hafnað. Leystu eigin vandamál fyrst áður en þú tekur að þér að hjálpa öðrum með sín. Ekki er úr vegi að rifja upp limruHjálmars Freysteinssonar, sem orti í apríl árið 2011 eftir að samningurinn var felldur í þjóð- aratkvæðagreiðslu: Komið í bátinn er babb nú breytast þrætur í rabb, þegar menn fatt́að þetta er satt að Icesave var aprílgabb. Og Jón Ingvar Jónsson orti í að- draganda kosninga: Öll við munum úti frjósa ef að líkum kjörið fer. Fráleitt þjóðin fer að kjósa frið ef stríð í boði er. Jón Karl Einarsson sendi Vísna- horninu línu þar sem hann sagði samninganefndina eiga allt okkar þakklæti skilið: Þakka ber okkar þrjósku sveit þjóðinni er nú sælan vís. Nú vil ég spyrja hvort nokkur veit hvort niðurstaðan var bara grís? Vigfús M. Vigfússon yrkir á fés- bók: Þú mátt vita þetta að það er lítil viska; að segja: „víst ég vissi það“ er varstu bara að giska. Annars er furðulítið um kveð- skap um Icesave á fésbókinni. Kisan Jósefín Dietrich hringaði sig og rifjaði upp atburði úr bernsku sinni: Eitt sinn gekk ég út í skóg, amma gamla skellihló, því ég utanundir sló úlfinn ljóta svo hann dó. Bjarki Karlsson brá á leik með kenningar og orti dýrt: Hagla reiðir hrygling hártagls tvinnum stagla myglu kaffis kögglum keyrifogl við þvoglu. Frekt þar frák at sækti fornhlut brauðs er kauði súrs ok sætrar mæru suðrá bæjum puðrask. En svo leysir hann sjálfur upp úr kenningum: „Hesturinn reiðir mál- halta manninn með tveim pökkum af sætabrauði. Ég frétti að gam- almennið sem laumast suður á bæj- um hafi með frekju sótt bróðurpart- inn af sýrðu brauði og sætindum.“ Eða eins og við þekkjum vísuna betur: Afi minn fór á honum Rauð eitthvað suður á bæi að sækja bæði sykur og brauð sitt af hvoru tagi. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Icesave, fésbók, kosn- ingum og kenningum Í klípu „HÚN Á EKKI EFTIR AÐ LÁTA OKKUR Í FRIÐI FYRR EN VIÐ TÖKUM ÞÁTT Í ÞESSU 12 SKREFA DÆMI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ SETTIST UPP UM MIÐJA NÓTT OG ÖSKRAÐIR: „NUDDA TVEIMUR PRIKUM SAMAN!““ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... varanlegur dansfélagi í lífsins dansi. DAG- MAMMA HUNDAR ÆTTU ALLS EKKI AÐ DREKKA KAFFI. EINMITT. VIÐ GERÐUM ÞAÐ Í GÆR!HVAÐ VILTU GERA Í DAG, HRÓLFUR? EIGUM VIÐ AÐ RIFJA UPP GAMLAR, GÓÐAR STUNDIR? Víkverji á börn í VerzlunarskólaÍslands og leggur leið sína þangað nær daglega til að keyra þau og/eða sækja. Mikið umferðar- öngþveiti myndast við skólann upp úr klukkan átta á morgnana enda margir foreldrar augljóslega jafn- almennilegir og Víkverji. Er þá þröng á þingi. x x x Bílarnir mjakast áfram og ekkinægir að taka tillit til annarra bíla, því svo virðist sem nemend- urnir komi fótgangandi úr öllum áttum. Flestir nota gangstéttar og gangbrautir en alls ekki allir. Þegar mest er minna þeir verzlingar einna helst á uppvakninga, þar sem þeir hengslast syfjulegir til skóla í myrkrinu. x x x Bílakostur íslenskra framhalds-skólanema er ekkert slor og komast færri að en vilja á bílaplani Verzlunarskólans á morgnana. Leggja ýmsir með æði frumlegum hætti. Fræg er sagan af því þegar sænski skiptineminn kom fyrsta daginn í Verzló og gapti af undrun þegar hann sá bílaflotann fyrir utan skólann. „Mikið svakalega kenna margir við þennan skóla!“ sagði aumingja skiptineminn enda tíðkast það ekki í heimalandi hans að fram- haldsskólanemar eigi bíla. x x x Svo eru það símarnir. Enginn erunglingur með unglingum nema hann eigi nýjustu kynslóð snjall- síma og sé helst með hann fyrir framan nefið öllum stundum. Það gerir aðstæður við framhaldsskóla landsins ennþá hættulegri. Að ganga í mikilli umferð og senda textaskilaboð um leið fer alls ekki vel saman. x x x Víðar eru ungmenni í símanum.Víkverji var í brúðkaupsveislu á dögunum þegar honum varð litið á næsta borð, þótti það heldur hljóð- látt. Skýringin var einföld: Allir voru í símanum, ekki að tala í hann, heldur lesa og/eða senda skilaboð. Ætli meðalaldur borðverja hafi ekki verið tæp þrjátíu ár. Sumsé engir unglingar. víkverji@mbl.is Víkverji Guði séu þakkir, sem gefur oss sig- urinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist! (Fyrra Korintubréf 15:57) Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000 husgogn.is Heill heimur af ævintýrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.