Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 41

Morgunblaðið - 29.01.2013, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Íslensk-kanadískir risahrærigraut- artónleikar verða haldnir á skemmtistaðnum Faktorý í kvöld en á þeim koma fram Prins Póló, Benni Hemm Hemm og kanadísku tónlistarmennirnir Woodpigeon, Clinton St. John, Samantha Savage Smith og Laura Leif. Þessir tónlist- armenn og hljómsveitir vinna sam- an þessa dagana að umfangsmiklu verkefni, að því er fram kemur í til- kynningu, leika saman á tónleikum á Íslandi og í Kanada og munu svo taka upp afrakstur samstarfsins í Banff Centre listamiðstöðinni í Kanada. Um tónleikana segir að þeir verði með óhefðbundnu sniði, hljómsveitirnar muni bæði leika eigið efni hver fyrir sig og koma saman allar á sviði og spila fyrir áheyrendur. Að tónleikum loknum halda Prins Póló og Benni Hemm Hemm til Kanada og endurtaka leikinn þar. Tónleikastaðurinn á Ís- landi, Faktorý, verður opnaður kl. 21 í kvöld en tónleikarnir hefjast klukkustund síðar. Hræringur Benni leikur á Faktorý í kvöld og heldur svo til Kanada. Íslensk-kanadískur hrærigrautur á Faktorý í kvöld Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Dansarinn og danshöfundurinn Sig- ríður Soffía Níelsdóttir og Marino Thorlacius ljósmyndari hafa undan- farið verið að vinna að stuttmynd sem sýnd verður á vormánuðum og nefnist Requiem. Í henni eru hreyf- ingar sóttar í trúarbrögð, dans eða annars konar endurtekna hreyfingu sem fólk stundar og endurtekur með það að markmiði að komast nær guði sínum eða guðum. Barði Jóhannsson semur tónlist fyrir myndina og í henni koma fram Sigríður og leik- arinn Hjörtur Jóhann Jónsson. Hild- ur Yeoman tískuhönnuður sér um stíliseringu. „Byrjunarpunktur hugmynda- vinnunnar var hugurinn og mögu- leikinn á því að stjórna honum með líkamanum,“ segir Sigríður um hug- myndina að baki myndinni. „Við hugmyndavinnuna söfnuðum við saman blaðagreinum um svefnrann- sóknir og mismunandi skynjun fólks á raunveruleikanum. Hvernig fólk skynjar mun milli drauma og minn- inga,“ segir hún. Þá hafi einnig verið leitað innblásturs í greinum um drómasýki, þar sem líkami og hugur fylgist ekki að. Sigríður segir áhuga- vert að sjá hversu viðkvæmur hugur mannsins sé, svefnleysi geti jafnvel valdið geðtruflunum og ofskynj- unum. „Í því samhengi fórum við að skoða hvaða leiðir maðurinn hefur notað í aldanna rás til hugarstjórn- unar og huggunar, þ.e. í hreyfingu.“ Unnu í sama verkefni Sigríður hefur áður gert dans- stuttmyndir, Uniform Sierra árið 2008 og Children of Eve árið 2010. Fyrrnefnda myndin hlaut verðlaun sem besta myndin á hátíðinni Act- festival á Bilbao á Spáni árið 2008 og var sýnd víða á hátíðum, á Norður- löndunum, í Frakklandi, Belgíu og Ástralíu. Requiem er fyrsta stutt- myndin sem hún gerir með Marino. „Við unnum í sama verkefni á Paris Fashion Week, þar sem Marino var að mynda tískusýningu Sruli Recht sem ég var að dansa í og byrjuðum þar að ræða samstarf. Hugmyndin kom út frá sameiginlegum áhuga á að fanga hreyfingu á mynd,“ segir hún um samstarf þeirra. En af hverju er dansari og dans- höfundur að gera stuttmyndir? „Það sem heillar mig við dans í kvikmyndagerð er að fá að stjórna algjörlega því sem áhorfandinn sér. Að geta leitt áhorfandann gegnum fegurð hreyfinga og smáatriða sem leikhússviðið nær ekki að skila vegna fjarlægðar og stærðar,“ svar- ar Sigríður. „Það sem gerir dans- myndina áhugaverða er að enn er ekkert staðlað form eða reglur til um fyrirbærið og allt því leyfilegt hvað varðar byggingu og gerð. Áhersla er lögð á sterkar, sjónrænar myndir, hreyfingu og orku í stað rökrænnar söguframvindu.“ Tungumál sem allir skilja Sigríður bendir á að dansmynda- formið eða hreyfimiðaðar stutt- myndir sé ungt fyrirbæri hér á landi. Íslenskar dansmyndir hafi þó farið víða og hlotið viðurkenningar og margir kvikmyndagerðarmenn séu að uppgötva þennan heim. „Í dag má finna um 150 dansmyndahá- tíðir um allan heim en slíkar hátíðir hafa verið í miklum vexti síðasta ára- tuginn og nýjar hátíðir spretta upp á hverju ári,“ segir Sigríður. Mark- hópur þeirra sé fólk á öllum aldri og af öllum þjóðernum því dans og hreyfing sé alþjóðlegt tungumál sem allir skilji. Nánari upplýsingar um stuttmyndina má finna á www.re- quiemshortfilm.com og stiklu fyrir hana á slóðinni vimeo.com/57927128. Hreyfing og orka í stað rökrænnar söguframvindu  Sigríður Soffía og Marino Thorlacius gera stuttmynd Heillandi Úr Requiem. „Það sem heillar mig við dans í kvikmyndagerð er að fá að stjórna algjörlega því sem áhorf- andinn sér,“ segir Sigríður Soffía, einn höfunda stuttmyndarinnar sem Barði Jóhannsson semur tónlistina við. Kyrrð Sigríður Soffía íhugul á svip í stillu úr Requiem. Ljósmyndir/Marino Thorlacius NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ NAOMI WATTS TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA “IT’S PART JASON BOURNE, PART DIRTY HARRY.” -EMPIRE  -TOTAL FILM -THE HOLLYWOOD REPORTER  MÖGNUÐ NÝ ÍSLENSK MYND “THE BEST FILM OF “SPELLBINDING DGA AWARD NOMINEE BEST DIRECTOR PGA AWARD NOMINEE BEST PICTURE OF THE YEAR WGA AWARD NOMINEE BEST ADAPTED SCREENPLAY SAG AWARD® N O M I N A T I O N S OUTSTANDING PERFORMANCE BY A MALE ACTOR IN A SUPPORTING ROLE OUTSTANDING PERFORMANCE BY A CAST IN A MOTION PICTURE 2 ACADEMY AWARD ® NOMINATIONS7 INCLUDING BEST PICTURE GRANT HESLOV BEN AFFLECK GEORGE CLOONEY WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR CRITICS’ CHOICE AWARDS BEN AFFLECK WINNER BEST PICTURE  BEST DIRECTOR GOLDEN GLOBE® AWARDS DRAMA 7 TILN FNING R TILÓSKARSVERÐLAUNA BESTA MYND BESTA YND BESTA MYND BESTI LEIKSTJÓRI BESTI LEIKSTJÓ I SIGURVEGA I MEÐAL ANNARS SIGURVEGA I -MBL  -FBL FRÁBÆR MYND MEÐ GERALD BUTLER OG ELISABETH SUE “SURPRISING” -ROGER EBERT BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM ÞAU ERU KOMIN AFTUR NÚ Í FRÁBÆRRI ÞRÍVÍDD SKRÍMSLIN SEM ALLIR ELSKA EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP GANGSTER SQUAD KL. 6 - 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD VIP KL. 5:30 - 8 - 10:30 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 XL KL. 10:30 CHASING MAVERICKS KL. 8 JACK REACHER KL. 5:20 - 8 - 10:40 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 8:30 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50 KRINGLUNNI GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 8 - 10:30 XL KL. 6 - 8 - 10:10 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 GANGSTER SQUAD KL. 5:30 - 8 - 10:30 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 5:50 DJANGO UNCHAINED KL. 8 - 10:30 JACK REACHER KL. 8 - 10:40 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 ARGO KL. 5:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK GANGSTER SQUAD KL. 8 - 10:20 XL KL. 8 CHASING MAVERICKS KL. 10:10 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 6 AKUREYRI GANGSTER SQUAD KL. 8 MONSTERS INC ÍSLTAL3D KL. 6 XL KL. 10:20 CHASING MAVERICKS KL. 6 JACK REACHER KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 8 ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ TILB OÐ Á Krúsku færðu: heilsusamlegan mat, kjúklingarétti, grænmetisrétti, fersk salöt, heilsudrykki, súkkulaðiköku, gæðakaffi frá Kaffitár og fallega stemningu. Suðurlandsbraut 12 l 108 Reykjavík l S. 557-5880 l kruska@kruska.is l kruska.is OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 11-20 SENDUM Í FYRIRTÆKI Næring fyrir líkama og sál

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.