Morgunblaðið - 04.07.2013, Page 1
„Ég lenti í röfli við lögfræðinga
Vegagerðarinnar við að fá þetta
í gegn á sínum tíma,“ segir
Guðni Agnarsson, en hann er
eini einstaklingurinn sem hefur
einstaklingsleyfi til að reka bíla-
leigu hér á landi. „Ég passaði
mig á að gera þetta allt eftir
reglunum þrátt fyrir kostnað og
umstang,“ segir Guðni.
Bæði einstaklingar og fyrir-
tæki geta fengið bílaleiguleyfi.
„Ég leigði bílinn út fyrir
sænskar hestakonur sam-
hliða tjaldvagnaleigu
fyrir nokkrum ár-
um en er alveg
hættur þessu í
dag,“ segir
Guðni.
Lenti í röfli
en fékk leyfi
EINN EINSTAKLINGUR
Friðrik Larsen,
lektor við Há-
skólann í
Reykjavík og
formaður
Ímark, segir að
rannsóknir hans
og annarra sýni
að hægt sé að
búa til vöru-
merki fyrir raf-
magn.
Til mikils sé að vinna að búa til
vörumerki fyrir íslenskt rafmagn ef
flytja á út rafmagn í gegnum sæ-
streng, líkt og rætt er um, þar sem
vörumerki sé hægt að selja fyrir
hærra verð en aðrar vörur. Hópur
fólks sé reiðubúinn að greiða hærra
verð fyrir rafmagn sem framleitt sé
með endurnýjanlegum hætti, líkt og
hér sé gert. Hins vegar sé sá mark-
aður hlutfallslega lítill. „Á Bret-
landseyjum búa rúmlega 60 millj-
ónir og ef 3% þeirra eru tilbúin til
að borga meira fyrir grænt raf-
magn er það markhópur sem í eru
tæplega tvær milljónir neytenda,“
segir hann. »Viðskipti
Hærra
verð með
vörumerki
Græn orka dýrari
F I M M T U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 3
Stofnað 1913 154. tölublað 101. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
NÆTURLÍF,
ÓÖRYGGI OG
FORTÍÐARÞRÁ
EKKI EIN-
STEFNA Í
KAUPHÖLL
BRÝNT AÐ
GÆTA HAGS-
MUNA BARNA
VIÐSKIPTABLAÐ BÓKIN VERNDUM ÞAU 10TILRAUNALEIKHÚS AUSTURLANDS 36
Traust almennings til fjármála-
fyrirtækja hér á landi hefur stór-
aukist seinustu ár og er almenn-
ingur mun jákvæðari gagnvart
þeim en verið hefur eftir fjár-
málahrunið. Þetta kemur fram í
nýrri könnun sem MMR gerði fyrir
Samtök fjármálafyrirtækja. 62%
aðspurðra sögðust vera frekar eða
mjög jákvæð gagnvart bankanum
sínum. »Viðskipti
Traust til fjármála-
fyrirtækja eykst
„Lög um sjóðinn
og ákvæði EES-
samningsins
standa því ekki í
vegi fyrir að sjóð-
urinn ávaxti upp-
greiðslufé með
þeim hætti sem
heppilegast er
fyrir sjóðinn, enda
ekki um það að
ræða að sjóðurinn afli fjár á skulda-
bréfamarkaði sem síðan sé varið til
endurlána til fjármálastofnana,“
sagði í lögfræðiáliti sem Árni Páll
Árnason, formaður Samfylking-
arinnar en þá héraðsdómslögmaður,
vann fyrir Íbúðalánasjóð árið 2005 og
birt var í Morgunblaðinu í júní það ár.
Árni Páll sinnti lögfræðiráðgjöf
fyrir sjóðinn 2004-2008. Greiðslur til
hans frá ÍLS á þessum árum námu
tæplega 39 milljónum.
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis um Íbúðalánsjóð kemur fram
að umrædd lán ÍLS til banka og
sparisjóða hafi numið um 95 millj-
örðum króna á tímabilinu desember
2004 til desember 2005. Þar segir
einnig að allt bendi til þess að samn-
ingarnir hafi verið ólöglegir. »15
Árni Páll
taldi lánin
vera lögleg
Árni Páll Árnason
Veitti ÍLS ráðgjöf
Jón Heiðar Gunnarsson
jonheidar@mbl.is
„Það er mikil aukning í þessu og það
er alltaf nóg að gera,“ segir Valdís
Eiríksdóttir, sem sér um starfsleyfi
bílaleigubíla hjá Samgöngustofu.
Nú eru 12.198 bílaleigubifreiðar á
Íslandi og þar af eru 3.092 sem voru
nýskráðar árið 2013. Aldrei áður
hafa jafn margir bílaleigubílar verið
á götum landsins.
Þetta eru þeir bílaleigubílar sem
notaðir eru til útleigu samkvæmt
lögum nr. 46/2000 um bílaleigur en
þeir eru skráðir sérstaklega hjá
Samgöngustofu vegna trygginga-
mála o.fl.
Erlendir ferðamenn greiddu í maí
554 millj. kr. með kortum sínum fyrir
bílaleigubíla hér á landi skv. tölum
frá Rannsóknasetri verslunarinnar.
Þetta er fjórðungi hærri upphæð en í
maí í fyrra.
Bílaleigum fjölgar einnig ört hér á
landi, en alls eru 140 aðilar með
starfsleyfi í dag. Aldrei áður hafa
jafn margar bílaleigur verið með
starfsleyfi hér á landi.
„Þetta eru ekki allt stór fyrirtæki
heldur er einnig mikið um að minni
aðilar sæki um bílaleiguleyfi sam-
hliða annarri starfsemi í ferðaþjón-
ustu,“ segir Valdís og nefnir gistihús
sem dæmi.
Hún bendir á að ólöglegt er fyrir
aðila í ferðaþjónustu að leigja út bíl-
ana sína án þess að vera komnir með
tilskilið bílaleiguleyfi.
Bransinn vaknar á vorin
Það er mest að gera í þessum um-
sóknum yfir vor- og sumartímann.
„Helsti annatíminn byrjar upp úr
mars, apríl og svo er kannski lítið
sem ekkert að gerast í þessu í ágúst
og september og næstu mánuði á eft-
ir,“ segir Valdís en hún er með þrjár
umsóknir í ferli um þessar mundir.
„Þó mér finnist mikið vera að gera
hjá mér þá eru þetta ekki ein-
göngu nýjar skráningar
því það eru líka
margir sem eru
að endurnýja
leyfin sín en þau
gilda í fimm ár í
senn.“
Aldrei fleiri bíla-
leigubílar hér á landi
Yfir 12.000 skráðir bílaleigubílar Bílaleigum fjölgar ört
Mikil spenna var í Egyptalandi í gærkvöldi í kjöl-
far þess að egypski herinn vék Mohammed Morsi
úr embætti forseta. Andstæðingar hans fagna en
stuðningsmenn hans óttast um sinn hag. Í gær-
kvöldi bárust fregnir af því að herinn hefði fyrir-
skipað að um 300 félagar í Bræðralagi múslíma
yrðu handteknir. Víða í borgum landsins brutust
út átök og í gærkvöldi höfðu a.m.k. tuttugu manns
látist af þeirra völdum. Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, og Catherine Ashton, utanríkis-
málastjóri Evrópusambandsins, lögðu í gærkvöldi
ríka áherslu á að gengið yrði til lýðræðislegra
kosninga sem fyrst.
AFP
Fögnuður Tugþúsundir fögnuðu á Tahrir-torgi eftir að staðfest hafði verið að herinn hefði vikið fyrsta lýðræðilega kjörna forseta landsins úr embætti.
Mikil spenna eftir valdarán hersins
Fyrirskipa að 300 félagsmenn í Bræðralagi múslíma verði handteknir
MMorsi vikið úr embætti »18