Morgunblaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
HÆGINDASTÓLAR
BÆJARLIND 16 KÓPAVOGUR SÍMI 553 7100 WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARD. 11 - 16
FREYJA
Vel hannaðir og vandaðir hægindastólar með innbyggðum
skemmli, stillanlegum hnakkapúða, 360° gráðu snúningi og
stillanlegu ruggi. Stærð B:72 D:80 H:102
NÝTT - KYNNINGARVERÐ
kr. 165.900
Kynningarverð
KR. 149.300
kr. 133.700
Kynningarverð
KR. 119.900
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Um miðjan júlímánuð hefjast fram-
kvæmdir í Borgartúni í Reykjavík.
Meðal annars stendur til að þrengja
umferðargötu úr níu metrum í 6,5
metra. Áfram verða þó tvær akrein-
ar. Eins á að leggja 1,7 metra breiða
hjólastíga sitthvorumegin við göt-
una. Þá verða engin bílastæði sam-
síða götunni eftir breytingar.
Að sögn Davíðs Baldurssonar,
yfirverkfræðings hjá Reykjavíkur-
borg, mun bílastæðum fækka um 52 í
heild. Þar á meðal verða öll bílastæði
sem eru samsíða umferðargötunni
milli Sóltúns og Katrínartúns tekin
úr notkun. Alls 32 stæði.
Þúsundir vinna í Borgartúni
Ekki eru allir á eitt sáttir um
fyrirhugaðar framkvæmdir með til-
liti til bílaumferðar og fyrirséðs
skorts á bílastæðum. „Þótt það sé
gott og gilt að veita Borgartúni and-
litslyftingu er ég hræddur um að
menn átti sig ekki á því hvernig
Borgartún virkar. Hér vinna þús-
undir manna, fjölmargir sækja þjón-
ustu hingað og þegar eru bílastæða-
vandamál. Þá er umferðarþungi
mikill í götunni og fyrirséð að um-
ferðarhnútar muni versna enn við þá
þrengingu sem er fyrirhuguð,“ segir
Hlöðver Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarinnar Ein-
ars Farestveit, sem er til húsa í
Borgartúni 28. Davíð segir að menn
hjá Reykjavíkurborg sjái fyrir sér að
almenningssamgöngur og hjólreiða-
stígar verði nýttir í auknum mæli.
„Þessi stæðafækkun er lítil ef miðað
er við heildarstæðafjölda í Borgar-
túni,“ segir Davíð.
Morgunblaðið/Eggert
Borgartún Ekki eru allir á eitt sáttir um fyrirhugaðar þrengingar umferðargötunnar í Borgartúni.
Borgartúnið breytist
Umferðargata þrengd og hjólreiðastígar lagðir Fram-
kvæmdastjóri óttast bílastæðaskort og umferðarhnúta
Framkvæmdir Gatan verður þrengd og hjólastígar lagðir sitthvorumegin
við umferðargötuna í Borgartúni. 52 bílastæði verða tekin úr notkun.
Íslenska safnadeginum verður fagn-
að víða um land nk. sunnudag, 7. júlí,
með ókeypis aðgangi að söfnum. Í
Þjóðminjasafninu verður sérstök af-
höfn kl. 14 þar sem um 70 börn
munu grafa niður fornleifar framtíð-
arinnar. Viðstödd verður Vigdís
Finnbogadóttir, formaður afmæl-
isnefndar Þjóðminjasafnsins, en
safnið helgar 150 ára afmælisári í ár
æsku landsins.
Safnið hefur unnið sérstakt verk-
efni með stórum hópi barna. Þau
fengu box á safninu sem þau hafa
sett nokkra gripi í að eigin vali,
ásamt hefti sem þau hafa skrifað og
teiknað í. Á safnadaginn koma börn-
in með boxin á Þjóðminjasafnið og
setja þau í kistu sem grafin verður
niður á lóð safnsins og geymd þar í
25 ár. Árið 2038, á 175 ára afmæli
safnsins, verður „börnunum“ boðið
að koma og vera viðstödd þegar kist-
an verður grafin upp aftur.
Boðið verður upp á leiðsögn um
Þjóðminjasafnið á sunnudaginn kl.
11 á ensku, kl. 13 á íslensku og kl. 14
á pólsku.
Börn grafa niður
fornleifar framtíðar
Safnadegi fagnað á sunnudaginn
Morgunblaðið/Kristinn
Þjóðminjasafn Börn leika stórt hlutverk í safnadeginum á sunnudag.