Morgunblaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013 F L Í S A V E R Z L U N Bæjarlind 4, 201 Kópavogur | S: 554 6800 - Fax: 554 6801 | Njarðarnesi 9, 603 Akureyri | S: 466 3600 - Fax 466 3601 | www.vidd.is Veldu rétt BAKSVIÐ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir aslaug@mbl.is Ein vinsælasta ferðahelgi landsins er framundan, en fyrsta helgin í júlí hefur lengi verið ein mesta ferða- helgi sumarsins meðal Íslendinga. „Hér á Akranesi fara fram ýmsar keppnir um helgina á Írskum dög- um. Það er meðal annars keppt í dorgveiði, sandkastalagerð, mesta partíljóninu, sultugerð og hæfni með vinstri hendi. Þá er vinsælasta keppnin okkar þegar verðlaunaður er rauðhærðasti Íslendingurinn,“ segir Sædís Sigurmundsdóttir, verk- efnastjóri Akranesbæjar, en einnig er efnilegasti rauðhausinn verðlaun- aður. Keppnin hefur alla tíð notið mikilla vinsælda. „Hátíðin er mikil fjölskylduhátíð og er fyrst og fremst hugsuð sem slík. Tónlistarhátíðin Lopapeysan á 10 ára afmæli svo við- burðirnir verða ansi veglegir,“ segir Sædís en meðal þeirra sem koma fram eru Bubbi Morthens, Jón Jóns- son og Páll Óskar. Sædís vonar að veðurspáin rætist ekki, en segir að rigningin muni þó ekki hafa mikil áhrif á skemmtunina. Kynna þjóðlagaarf þjóða Besta veðrið verður á Norður- og Austurlandi og því ekki úr vegi að fara til Siglufjarðar þar sem Þjóð- lagahátíð stendur sem hæst um helgina. „Hátíðin hófst í gær og stendur til sunnudags og þá tekur við Bjarnahá- tíð hér á Siglufirði,“ segir Vigfús Þór Árnason, fyrrverandi sóknarprestur á Siglufirði. Markmið Þjóðlagahátíð- arinnar er að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða. Á Bjarnahátíðinni, sem Vigfús nefnir svo, verður vígður minnisvarði um séra Bjarna Þor- steinsson, tónskáld og heiðursborg- ara. Þá verður einnig vígt svonefnt Bjarnatorg. „Þetta verður í fyrsta sinn sem forsætis- og þjóðmenning- arráðherra, Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, verður viðstaddur sem slík- ur sem og Siglfirðingurinn Illugi Gunnarsson sem mennta- og menn- ingarmálaráðherra,“ segir Vigfús Þór. Margar hátíðir eru um helgina á víð og dreif um landið. Háskólanemar með útihátíð „Í Hallgeirsey verður haldið fyrsta Íslandsmeistaramótið í háskólasápu- fótbolta,“ segir Jóhann Einarsson, verkfræðinemi og einn af skipuleggj- endum útihátíðar háskólanema sem haldin verður í Hallgeirsey um helgina. Útihátíðin er ætluð öllum há- skólanemum landsins, en útilegan hefur verið haldin í mörg ár og var upphaflega í Þórsmörk. Á hátíðinni verður keppt í hinum ýmsu íþróttum og þrautum og vin- sælir tónlistarmenn koma fram, þar má nefna Ingó Veðurguð og hljóm- sveitina Úlfur Úlfur. „Hver vill ekki koma heim sem Ís- landsmeistari á sunnudaginn? Það verður enginn svikinn af þessari stórgóðu hátíð,“ segir Jóhann. Blaut ferðahelgi framundan  Þjóðlög, rauðhærðasti Íslendingurinn, sandkastalakeppni, sápufótbolti og fleira í boði um helgina  Besta veðrið á Norður- og Austurlandi  Fjöldi háskólanema skemmtir sér saman í Hallgeirsey Akranes Veitt verða verðlaun á Írskum dögum fyrir rauðhærðasta Íslendinginn og efnilegasta rauðhausinn. „Besta veðrið verður á Norður- og Austur- landi um helgina, en mögulega einhver smá bleyta þar af og til,“ segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, en hann telur besta veðrið verða þar á laugardag þar sem hiti gæti farið í 16-18 gráður. Þó er vætu spáð á öllu landinu á föstudag fram á kvöld. Á Vest- ur- og Suðurlandi á veðrið að vera heldur verra og búist er við mikilli vætu þar alla helgina. „Þá gæti einnig orðið ansi hvasst við fjöll og þurfa þeir sem eru með vagna í eftirdragi að gæta sín á ferð sinni milli landshluta.“ Á sunnudaginn verður veðrið heldur skárra á öllu landinu og lítur út fyrir að verða hið ágætasta víðast hvar, en þó svalt. „Versta veðrið verður á föstudag. Höfuðborgarsvæðið ætti þó að fá ágætt skjól um helgina, en þar verður þó alls ekki þurrt,“ segir veð- urfræðingur og býst við meiri rigningu og roki á Suður- og Suðaust- urlandi. Gæti haldist þurrt á laugardag BÍLAR MEÐ VAGNA Í EFTIRDRAGI ÞURFA AÐ GÆTA SÍN Sex nemendur, sem útskrifast hafa úr grunnnámi í eðlisfræði og efna- fræði við Háskóla Íslands í ár, tóku við verðlaunum úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi við hátíðlega athöfn í Öskju í vikunni. Nemendurnir; þrjár konur og þrír karlar, eiga það sameiginlegt að hafa náð afburða- árangri í BS-námi sínu við Raunvís- indadeild HÍ. Hver um sig fær 500 þúsund krónur og heildarupphæðin því þrjár milljónir króna. Nemend- urnir eru Árni Johnsen, Guð- mundur Kári Stefánsson og Eyjólf- ur Guðmundsson, sem útskrifuðust í eðlisfræði, Tinna Pálmadóttir og María Lind Sigurðardóttir í líf- efnafræði og loks Lilja Kristins- dóttir, sem útskrifaðist í efnafræði. Sjóðurinn var stofnaður árið 2000 með rausnargjöf Guðmundar, en hann lést árið 2006. Hann stundaði netagerð og útgerð á Akranesi og var líka fiskmatsmaður. Verðlaun Nemendurnir sex og sjóðsstjórn við athöfnina í Öskju í vikunni. Sjóður Guðmundar P. Bjarnasonar verð- launar sex nema Í síðustu viku náðist að klára fyrstu þrjá metr- ana í Njálurefl- inum sem verið er að sauma í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Fyrsta saum- sporið var tekið í byrjun febrúar og því hafa þessir þrír metrar klárast á fimm mán- uðum. Alls á refillinn að verða 80 metra langur þannig að næg vinna er eftir. Bæði heimafólk og ferða- menn koma við til að sauma, konur og karlar á öllum aldri. Fólk er eindregið hvatt til að renna við í Sögusetrinu og taka nokkur saumspor í refilinn, segir í fréttatilkynningu. Þrír metrar af 80 af Njálureflinum Hjólreiðakeppnin Alvogen Mid- night Time Trial verður haldin í fyrsta skipti í kvöld. Keppendur verða ræstir frá Hörpu kl. 21 og fer keppnin fram á Sæbrautinni, sem verður lokað til miðnættis. Lyfja- fyrirtækið Alvogen, sem er í eigu Róberts Wessman, styrkir keppn- ina en þátttökugjöld renna til styrktar verkefni UNICEF á Mada- gaskar og Rauða krossins í Síerra Leóne. Hjólreiðakeppni á Sæbrautinni í kvöld STUTT  Goslokahátíð í Vest- mannaeyjum  Írskir dagar á Akranesi  Þjóðlagahátíð á Siglufirði og Bjarnahátíð að henni lokinni  Hallgeirsey, Útihátíð háskólanema  Landsmót UMFÍ á Selfossi  Vopnaskak, fjölskylduhátíð á Vopnafirði  Fjórðungsmót hestamanna á Kaldármelum  Breiðfirska bátahátíðin á Reykhólum  Dýrafjarðardagar á Þingeyri  Markaðshelgi á Bolungarvík  Úlfljótsvatnshátíð  Fagrafest, tónlistarhátíð á Dalvík  N1-mótið á Akureyri Fjölbreyttir viðburðir MARGT UM AÐ VERA Fótbolti Fjöldi pilta mun keppa á N1-mótinu á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.