Morgunblaðið - 04.07.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
GLITRANDI VARIR
NÝTT
IN LOVE
SÉRFRÆÐI-
BURSTI
Nýjung: tvíhliða bursti.
GLOSS IN LOVE MEÐ
EINUM SMELLI
Emma Watson
Kristjana Rúnarsdóttir Lancôme national make-up
artist verður í Hygeu Kringlu fimmtudag og föstudag.
HYGEA KYNNIR
NÝJU GLOSS IN LOVE VARAGLOSSIN SEM GEFA
TVISVAR SINNUM MEIRI GLANS.
Signý Gunnarsdóttir
signy@mbl.is
Það var leitað til okkar Ólaf-ar Ástu Farestveit frámenntamálráðuneytinu ogÆskulýðsráði ríkisins og
við beðnar um að skrifa þessa bók
þar sem við höfum báðar starfað í
Barnahúsi frá árinu 2001. Við höfum
þar af leiðandi mikla reynslu af of-
beldismálum sem snúa að börnum
og unglingum,“ segir Þorbjörg
Sveinsdóttir, annar höfundur bók-
arinnar Verndum þau. Bókin var
fyrst gefin út árið 2006 en hefur nú
nýlega verið endurútgefin og segir
Þorbjörg það hafa verið nauðsynlegt
því í þessum málaflokki sé svo margt
sem breytist á skömmum tíma. Þó
að reynsla Þorbjargar og Ólafar
byggist að mestu leyti á kynferð-
isbrotamálum gagnvart börnum og
unglingum var ákveðið að taka á öllu
ofbeldi og vanrækslu gagnvart börn-
um í bókinni. „Markmiðið var að
gefa út fræðsluefni sem myndi
gagnast öllum þeim sem starfa með
börnum og unglingum í rauninni á
hvaða vettvangi sem er. Ef maður er
að vinna með börnum þá skuldbind-
ur maður sig til að fylgjast með að-
búnaði þeirra og líðan,“ segir Þor-
björg.
Okkur er skylt að segja frá
Á sama tíma og bókin var gefin
út var ákveðið að útbúa þriggja
klukkustunda námskeið sérstaklega
fyrir starfsfólk sem vinnur með
börnum. „Við Ólöf Ásta höfum í dag
haldið um 200 námskeið og það hef-
ur verið mjög gott að geta fylgt bók-
inni eftir á þann hátt. Allir sem
vinna með börnum og við öll sem bú-
um í þessu landi erum bundin til-
Hagsmunir barnsins
hafðir að leiðarljósi
Hvernig eigum við að bregðast við ef okkur grunar að börn búi við van-
rækslu eða ofbeldi? Þær Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur
og Þorbjörg Sveinsdóttir, MSc í sálfræði, leitast við að svara þessari spurn-
ingu í nýendurútgefinni bók sinni, Verndum þau.
Sérfræðingurinn Þorbjörg Sveinsdóttir er sérhæfður rannsakandi hjá
Barnahúsi og annar tveggja höfunda bókarinnar Verndum þau.
Aðferðafræðin Það skiptir máli að börn séu ekki spurð leiðandi og óviðeig-
andi spurninga áður en þau mæta í viðtal hjá fagfólki. Myndin er sviðsett.
Að vera vel máli farinn, bæði hvað
rit- og talmál varðar, er góður kost-
ur. Það getur þó komið fyrir besta
fólk að hrasa um íslenskt málfar,
enda flókið oft á tíðum. Á síðu
Stofnunar Árna Magnússonar um
beygingu íslensks nútímamáls, bin-
.arnastofnun.is, er hægt að slá upp
orðum og sjá hvernig þau beygjast í
öllum föllum og tíðum. Síðan hefur
verið í stöðugri vinnslu frá árinu
2002 en þá var það Orðabók Há-
skólans sem stóð að verkefninu. Á
síðunni má finna hátt í þrjú hundr-
uð þúsund beygingardæmi nafnorða
og lýsingarorða. Upprunalegt mark-
mið síðunnar, sem er öllum opin,
var að auðvelda aðgang almennings
að góðum beygingarfróðleik auk
þess sem síðan átti að nýtast í alls-
konar tungutækniverkefni, orða-
bókagerð og við málfræðirann-
sóknir.
Vefsíðan www.bin.arnastofnun.is
Morgunblaðið/Kristinn
Málfar Orðabók Háskólans hratt verkefninu af stað síðla sumars árið 2002.
Að læra íslenskar beygingar
Markaðshelgin í Bolungarvík verður
haldin dagana 5. og 6. júlí næst-
komandi. Bænum verður þá skipt
upp í tvö hverfi, það bláa og það
rauða, auk þess sem sultur, hand-
verk og fleira sem fólk lumar á
verður til sölu. Boðið verður upp á
hoppukastala og meðal þeirra sem
hafa boðað komu sína eru Pétur
Örn Guðmundsson og hljómsveit
hans Buff, auk nokkurra Vest-
fjarðavíkinga. Hátt í tvö þúsund
manns hafa mætt á hátíðir síðustu
ára og því ljóst að Bolvíkingar verða
ekki einir undir Bolafjalli nú um
helgina.
Endilega...
... skellið ykkur
á Markaðshelgi
Morgunblaðið/Ernir
Buff Pétur Örn Guðmundsson mun
að öllum líkindum troða upp.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Ef einhver grunur leikur á að brot-
ið sé gegn barni er hægt að leita
ráða hjá Barnahúsi, þjónustu-
miðstöðvum hverfanna, félags-
ráðgjafa eða öðru fagfólki.
Aftur á móti ef grunurinn
er sterkur þá á ekki að
hika við að hafa sam-
band við Barna-
vernd í því umdæmi
þar sem viðkom-
andi býr. Það er
síðan hlutverk
Barnaverndar að
upplýsa þann sem
í hlut á að til-
kynning hafi
borist.
Barnavernd
gæti þurft
að grípa til úr-
ræða þar sem rætt
er við barnið án vitn-
eskju foreldra og því skiptir máli
að sá sem tilkynnti brotið fyrst
upplýsi ekki viðkomandi fjölskyldu
um stöðu mála svo vinnuferli
Barnaverndarnefndar sé
ekki raskað. Það er ætíð
haft að leiðarljósi að
ekkert sé gert sem
getur skaðað barnið
og hagsmunir þess
njóta alltaf vaf-
ans. Það getur
verið snúið að
ræða við börn. Þau
geta verið sef-
næm og svarað
eins og þau
halda að full-
orðnir vilji. Það
er því mikilvægt
að fagfólk komi
að þessum fyrstu
viðtölum.
Grunar þig að barn sæti
ofbeldi eða vanrækslu?
TILKYNNINGASKYLDAN