Morgunblaðið - 04.07.2013, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
www.veislulist.is
Pinnaborð eru afgreidd í öskjum þar sem kaupand
i sér sjálfur um að raða þeim á föt eða tilbúnir á á b
orð á einnota
veislufötum. Sé veislan 150 manna eða meira eru a
llar veitingar afhentar á einnota veislufötum.
Verð frá 2.258
pr. mann
Hólshraun 3 · 220 Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810
Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.isSkútan
PINNAMATUR
FYRIR ÖLLTÆKIFÆRI
Þú getur lesið allt um
pinnamat og aðra rétti
á heimasíðu okkar
PINNAMATUR
Við val á veitingum þarf að hafa í huga á hvaða tím
a
dags móttakan er og hversu lengi hún á að standa.
Í “standandi” veislum er vinsælt að bjóða upp á t.d
fimm til sjö rétta pinnaborð.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Vonandi berum við gæfu til að
koma á fyrirkomulagi sem reynist
okkur farsælt til framtíðar þannig
að hvorki við né komandi kynslóðir
eigi eftir að standa í þeim sporum
sem við stöndum nú í,“ sagði Eygló
Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, í umræðum á Alþingi
í gær um skýrslu rannsóknarnefnd-
ar þingsins um Íbúðalánasjóð sem
gerð var opinber síðastliðinn þriðju-
dag. Vísaði hún þar til fyrirkomu-
lags húsnæðismála hér á landi.
Ráðherrann sagði ljóst að skýrsl-
an væri hörð og óvægin en innihald
hennar ætti þó ekki að koma þing-
mönnum á óvart enda væri hún efn-
islega í samræmi við skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis um
aðdraganda og orsakir falls íslensku
bankanna sem lokið var við árið
2010. „Það er auðvelt að vita betur í
dag. Það er erfiðara að líta um öxl
og viðurkenna að stjórnmálamenn-
irnir og Alþingi brugðust líka.“
Breið sátt skapist um málið
Eygló sagði ljóst að nánast engin
opinber stofnun sem átt hafi hlut að
máli sé undanskilin gagnrýni. Efni
skýrslunnar yrði ekki slitið frá
þeirri staðreynd að hér hafi orðið
efnahagshrun. Íbúðalánasjóður
hefði ekki farið varhluta af því enda
hefði 80% af bókfærðu tapi sjóðsins
komið til eftir það. Þess bæri þó að
geta að gripið hefði verið til úrbóta
síðan bæði í íslenskri stjórnsýslu og
innan Íbúðalánasjóðs.
„Það sem ég tel þó mikilvægast í
þessu samhengi er að sem breiðust
sátt og samstaða náist um skipulag
íslensks húsnæðiskerfis. Ég mun því
leggja ríka áherslu á að sem flestir
komi að endurskipulagningu hús-
næðiskerfisins og mun því á næst-
unni óska tilnefninga í samvinnuhóp
sem mun hafa það hlutverk að vera
framangreindri verkefnisstjórn til
ráðleggingar,“ sagði Eygló og bætti
við að hún myndi meðal annars leita
eftir tilnefningum frá þeim þing-
flokkum þeirra stjórnmálaflokka
sem sæti ættu á Alþingi.
Gagnrýndi pólitíska einstefnu
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
sagði að stærstu mistökin í
tengslum við Íbúðalánasjóð hefði
verið pólitísk einstefna í málaflokkn-
um. Meira máli hafi skipt að efna
vanhugsuð kosningaloforð en hlusta
á varnaðarorð í þeim efnum og vís-
aði hún þar til loforða Framsókn-
arflokksins um 90% íbúðalán fyrir
þingkosningarnar 2003. Fleiri þing-
menn stjórnarandstöðunnar gagn-
rýndu framsóknarmenn harðlega
fyrir aðkomu þeirra að Íbúðalána-
sjóði.
„Verkefnið nú er að horfa fram á
veginn og læra af þeirri skýrslu sem
hér liggur fyrir. Einn mikilvægasti
lærdómurinn sem ég dreg af skýrsl-
unni er að starfsemi Íbúðalánasjóðs
verði að tengjast almennri stefnu-
mótun í húsnæðismálum og þeim
markmiðum sem stjórnvöld vilja ná
til að tryggja húsnæðisöryggi og
velsæld. Það er einnig mikilvægt að
sátt sé um starf sjóðsins og breyt-
ingar gerðar með samráði stjórnar
og stjórnarandstöðu,“ sagði Sigríður
ennfremur en hún lagði fram á sín-
um tíma þingsályktunartillögu um
að umrædd rannsókn færi fram á
Íbúðalánasjóði.
Græðgi í gjörspilltu kerfi
Ögmundur Jónasson, þingmaður
VG og formaður stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis, sagði í um-
ræðunni að fjármálakerfið og fé-
lagsleg öfl hafi lengi tekist á um
hlutverk Íbúðalánasjóðs og að höf-
undar rannsóknarskýrslunnar hafi
horft framhjá þeim tíðaranda
græðgi og svindls í gjörspilltu kerfi.
Morgunblaðið/Eggert
Umræða Þingmenn rýna í Íbúðalánasjóðsskýrsluna á Alþingi í gær.
Kallað eftir þverpóli-
tísku samstarfi
Framsókn gagnrýnd fyrir aðkomu sína að Íbúðalánasjóði
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Íbúðalánasjóður keypti í lok árs 2007
og í upphafi árs 2008 sjö lánshæfis-
tengd skuldabréf (e. credit linked no-
tes, CLN) útgefin af Straumi fjár-
festingarbanka hf. og Glitni banka
hf., öll með áhættu á Kaupþing banka
hf. Íbúðalánasjóður gæti tapað allt að
9,4 milljörðum vegna lánshæfis-
tengdra skuldabréfa á Straumi fjár-
festingarbanka, samkvæmt því sem
fram kemur í nýútkominni skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
Í skýrslunni er meðal annars
fjallað um uppgjör vegna þessara
skuldabréfa, en í skýrslunni segir:
„Eftir greiðslustöðvun Kaupþings, í
byrjun október 2008, var Straumur
fjárfestingarbanki í verulegum
lausafjárvandræðum og stjórnendur
bankans beittu ýmsum ráðum til að
forðast greiðsluþrot. Í þeirri viðleitni
voru þeir tilbúnir til að greiða mikið
fyrir aðgengi að lausafé. Vegna þessa
buðu þeir Íbúðalánasjóði að fara í
flókin viðskipti við uppgjör lánshæf-
istengdu skuldabréfanna í eigu
Íbúðalánasjóðs sem útgefin voru af
Straumi, viðskipti sem gætu leitt til
þess að tap Íbúðalánasjóðs af skulda-
bréfunum yrði minna en ella.“
Í skýrslunni kemur fram að vegna
þessara viðskipta hafi tap Íbúðalána-
sjóðs af lánshæfistengdu skuldabréf-
unum numið um 6,2 milljörðum
króna í stað 9,4 milljarða. Hins vegar
hafi slitastjórn Straums rift ofan-
greindum viðskiptum sem óeðlilegu
uppgjöri skulda og sé það rift-
unarmál fyrir dómstólum. Nettó-
krafa Straums, nú ALMC hf., er að
ÍLS endurgreiði ofangreinda 3,2
milljarða króna, að því er fram kem-
ur í skýrslunni. Þar segir ennfremur
að nái krafa ALMC fram að ganga
verði endanlegt tap ÍLS af lánshæf-
istengdu skuldabréfunum á Straum
9,4 milljarðar króna.
Voru að ávaxta lausafé
Í frétt Morgunblaðsins frá því í
mars 2009 er eftirfarandi haft eftir
Guðmundi Bjarnasyni, formanni
sjóðsins: „Samkvæmt áhættustýr-
ingu ber okkur að hafa til reiðu
ákveðið fjármagn til að svara skuld-
bindingum sjóðsins vegna afborgana
af okkar lánum og eins fyrir vænt-
anleg útlán. Þetta lausafé ávöxtum
við á markaði, í fjármálastofnunum,
með ríkisbréfum eða í seðlabanka
eftir atvikum. Hluti af því var í
Straumi. Þar áttum við hagsmuna að
gæta.“
Níu milljarða tap
vegna Straums
Jók áhættu Fall bankanna dýrt