Morgunblaðið - 04.07.2013, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ -ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
STURTU- OG BAÐHURÐIR
með hertu öryggisgleri
ALMAR STURTUHAUSAR FJÖLBREYTT ÚRVAL
STAR STURTUHORN ÁN BOTNS OASIS STURTUHURÐ ÁN BOTNS
SKINNY handsturtuhaus
SPRING sturtuhaus
EMOTION sturtuhaus
Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305
NÝTT
á Íslandi
HÁR
Dreifingaraðili
• Forðast höfuðverk
• Engir klofnir endar
• Sterkt grip
• Allar hárgerðir
• Ekkert teygjufar
Hárteygjur
Ný sending
AFP
Bólivíumenn sökuðu í gær fjögur
Evrópuríki um hafa gerst sek um
gróft brot á þjóðarétti með því að
meina þotu forseta Bólivíu að fara
inn fyrir lofthelgi ríkjanna vegna
gruns um að bandaríski flóttamaður-
inn Edward Snowden væri í þotunni.
Evo Morales, forseti Bólivíu, var á
heimleið frá Moskvu þegar þota
hans þurfti að lenda í Vínarborg í
fyrrakvöld. Bólivíumenn segja
ástæðuna þá að þotunni hafi verið
bannað að fljúga yfir Frakkland,
Ítalíu, Portúgal og Spán, en frönsk
og spænsk yfirvöld neita því að þau
hafi meinað þotunni að fara inn fyrir
lofthelgina.
„Móðgun við landið“
Yfirvöld í Vín segja að lögreglu-
menn hafi leitað í þotu forsetans. Svo
virtist sem Edward Snowden væri
ekki í þotunni og talið var í gær að
hann væri enn á Sheremejevo-flug-
velli í Moskvu.
Þota forsetans fór síðan frá Vín í
gærmorgun. Alvaro Garcia, varafor-
seti Bólivíu, sagði að landið hefði
sent framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna kvörtun vegna atviksins og
hygðist einnig leita til Mannrétt-
indaráðs SÞ vegna málsins. Hann
sagði að Evrópuríkin hefðu gerst sek
um gróft brot á þjóðarétti og stefnt
lífi forsetans í hættu.
Morales sagði að þjóðhöfðingjar
ættu að hafa rétt til að ferðast á milli
landa. „Þetta er ekki móðgun við for-
setann, heldur við landið, við alla
Rómönsku Ameríku,“ sagði hann.
Cristina Kirchner, forseti Argent-
ínu, mótmælti einnig atvikinu og
sagði það „mjög auðmýkjandi“.
bogi@mbl.is
Saka Evrópuríki um
gróft brot á þjóðarétti
AFP
Gramur Evo Morales ræðir við
fréttamenn á flugvelli í Vín.
Bræðralag múslíma var stofnað
1928 og langtímamarkmið þess
er að stofna ríki sem grundvall-
ist á íslömskum lögum. Khaled
Fahmy, sagnfræðingur í Kaíró,
telur samtökin standa frammi
fyrir mestu kreppu í 85 ára sögu
sinni. „Ég tel að þetta sé tilvist-
arkreppa, miklu alvarlegri en
erfiðleikar samtakanna þegar
Nasser eða Mubarak voru við
völd,“ hefur The New York Times
eftir Fahmy. „Sífellt fleiri Egypt-
ar telja að þetta snúist ekki um íslam gegn veraldarhyggju, heldur um
Egyptaland gegn valdaklíku,“ segir Fahmy og telur samtökin hafa látið
hjá líða að hlýða á kröfur fólksins.
Egyptaland gegn valdaklíku
BRÆÐRALAG MÚSLÍMA Í „TILVISTARKREPPU“
Umdeildur forseti Konur á mótmæla-
fundi í Kaíró til stuðnings Morsi.
Bandaríkin hafa verið mjög áhrifa-
mikil í Egyptalandi frá árinu 1976
þegar Anwar Sadat, þáverandi for-
seti landsins, rauf vináttutengsl þess
við Sovétríkin og hóf samstarf við
stjórnvöld í Washington. The Wall
Street Journal segir að eitt af því
eftirtektarverðasta við ólguna í
Egyptalandi nú sé hversu lítil áhrif
Bandaríkjastjórn hafi á framvind-
una. Fréttaritari blaðsins í Egypta-
landi segir að mótmælendurnir á
götum Kaíró átti sig engan veginn á
afstöðu Bandaríkjastjórnar til
Mohameds Morsi, viti ekki hvort
hún styðji forsetann eða vilji að her-
inn víki honum frá.
Að sögn fréttavefjar BBC telja
fréttaskýrendur að embættismenn
Baracks Obama Bandaríkjaforseta
hafi verið of hikandi og tregir til að
gagnrýna Morsi. „Þeim tókst ekki að
halda réttu jafnvægi milli samstarfs
við Morsi og gagnrýni á hann,“ hefur
vefurinn eftir Amy Hawthorn, fyrr-
verandi embættismanni bandaríska
utanríkisráðuneytisins.
Obama of
hikandi?