Morgunblaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
Lín Design Laugavegi & Akureyri www.lindesign.is
Kynnum nýja vörulínu
20% af öllum nýjum vörum í dag laugardag
Dokkupoki eða hárband fylgir þegar
verslað er fyrir 5.000 kr eða meira.
H
elga er fædd í Reykja-
vík 4. júlí 1973, en er
uppalin í Keflavík á
æskuslóðum föður
síns. Hún lauk grunn-
skólaprófi frá Holtaskóla í Keflavík
1989, fór þá í Menntaskólann í
Reykjavík og lauk þaðan stúdents-
prófi árið 1993. „Þaðan lá leiðin til
Þýskalands í rúmt ár þar sem ég
dvaldi sem au-pair hjá yndislegri
fjölskyldu og tók svo eina önn við
Ruhr Universität í Bochum þar sem
ég lagði stund á þýsk málvísindi og
bókmenntir. Útþráin hófst snemma
en ég fór 15 ára gömul til Bretlands í
enskuskóla og 18 ára í Nordjobb í
Kristiansand í Noregi auk þess að
ferðast mikið með fjölskyldunni.“
Helga lauk BSc-gráðu í við-
skiptafræði frá HÍ 1998 og MSc frá
sama skóla árið 2005. Helga tók
markþjálfun frá Háskólanum í
Reykjavík 2012 og lauk svo námi
sem NLP coach frá Bruen í lok árs.
Helga Jóhanna Oddsdóttir, markþjálfi og viðskiptafr. – 40 ára
Fjölskyldan Efri röð: Ástþór Atli, Arnór Breki og Haukur. Neðri röð: Einar, Tómas Ingi, Oddur Fannar og Helga.
Markmiðið er að vaxa
og njóta hvers dags
Pæjugengi úr MR Þær verða allar fertugar í ár og munu fara í helgarferð
til Berlínar af því tilefni. Efri röð: Steinunn og Margrét, neðri röð: Linda,
Hulda, Kristbjörg Kari og Helga.
Í ár fer ég huldu höfði. Þetta er lognið á undan storminumsem verður á næsta ári,“ segir Björn Bragi Arnarson, uppi-standari og sjónvarpsmaður á Stöð 2, en hann ætlar að
njóta afmælisdagsins á rólegum og rómantískum nótum þetta
árið og spara þannig kraftana fyrir þrítugsafmælið á næsta ári.
„Ég ætla að fara út að borða með kærustunni og öðrum góðum
vinum, ekkert mikið tilstand, bara huggulegheit.“ Segja má að
Björn Bragi bregði með þessu út af vananum, þar sem hann er
almennt ekki þekktur fyrir að taka það rólega á afmælisdaginn.
Hann er sérlega mikið afmælisbarn og hefur í gegnum árin lagt
mikið upp úr afmælisdeginum.
Björn Bragi, sem er rómaður svínaáhugamaður, hefur nokkr-
um sinnum haldið svokallaða Svínaskelduhátíð í tilefni dagsins.
Hátíðin er haldin til höfuðs Hróarskelduhátíðinni, sem einmitt
lendir á afmælishelginni hans. „Þetta hefur verið mikil veisla
þar sem gestirnir fara í leiki sem ég bý til, en þeir fela gjarnan
í sér miklar hremmingar og voru menn því eiginlega alveg
hættir að skemmta sér sökum kappsemi.“ Stóri afmælisdraum-
urinn hjá Birni er að eyða deginum í Bandaríkjunum, þar sem
afmælisdagurinn hans lendir á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna. Í
ár missir hann naumlega af þeirri gleði, en hann ætlar í helg-
arferð með kærustunni til Boston um næstkomandi helgi.
sunnasaem@mbl.is
Björn Bragi er 29 ára í dag
Afmælisbarn. Björn Bragi nýtur þess vanalega að halda ærlega upp
á daginn, en í ár ætlar hann hins vegar að slaka á og hafa það náðugt.
Lognið á undan
storminum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Sess-
elja Guðmunds-
dóttir fæddist 19.
ágúst kl. 5.38.
Hún vó 4.000 g
og var 51 cm
löng. Foreldrar
hennar eru Elfa
Arnardóttir og
Guðmundur
Freyr Jónasson.
Nýir borgarar
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón