Morgunblaðið - 04.07.2013, Síða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2013
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Langtímaleiga
– langsniðugust!
Reiknaðu dæmið til enda.
Frá
49.900 kr.á mánuði!
591-4000 | www.avis.is
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Næturlíf nefnist leiksýning sem Til-
raunaleikhús Austurlands frum-
sýnir í Sláturhúsinu á Egilsstöðum
annað kvöld kl. 20. Um er að ræða
fyrstu frumsýningu hópsins, sem
settur var saman í byrjun sumars.
„Okkur langar til að kanna hvort
grundvöllur sé fyrir því að starf-
rækja atvinnuleikhóp af þessu tagi
hér á Egilsstöðum. Ef vel gengur
stefnum við að því að vinna sýningar
á sumrin undir merkjum hópsins,“
segir Pétur Ármannsson sviðs-
listamaður. Auk hans eru í hópnum
þau Brogan Davison danshöfundur,
Hjálmar Baldursson hönnuður,
Bjarni Rafn Kjartansson tónlist-
armaður og Jónas Reynir Gunn-
arsson textasmiður.
„Meirihluti hópsins er fæddur og
uppalinn á Fljótsdalshéraði og hefur
eytt síðustu árum í listnám fjarri
heimaslóðum,“ segir Pétur sem
sjálfur lauk leikaranámi frá Lista-
háskóla Íslands í fyrra. „Brogan
nam dans við Trinity Laban Con-
servatoire of Music and Dance í
London, Hjálmar lærði í Winchester
School of Art í Bretlandi, Bjarni er
sjálfmenntaður raftónlistarmaður
og Jónas er nýútskrifaður úr ritlist
frá Háskóla Íslands. Við erum allir
að snúa heim og markmið okkar er
að lífga upp á menningarlífið hér og
reyna að stunda okkar listgrein í
heimabæ,“ segir Pétur sem leikur
og dansar í sýningunni ásamt Brog-
an, enda leikur dansinn stórt hlut-
verk í næturlífinu. „Auk þess eru á
sviðinu þeir Bjarni sem flytur tón-
listina og Hjálmar sem þjónar hlut-
verki lifandi og líkamsgerðrar sviðs-
myndar,“ segir Pétur og tekur fram
að sýningin hafi hlotið styrk frá
Evrópu unga fólksins, Menning-
arráði Austurlands og Sláturhúsinu
á Egilsstöðum auk þess sem nokkur
fyrirtæki á Egilsstöðum styrki upp-
setninguna með ýmsum hætti.
Greindu kosti og galla
Aðspurður hvernig hugmyndin að
uppfærslunni hafi kviknað segir
Pétur að þau Brogan hafi byrjað að
velta fyrir sér næturlífinu meðan
þau bjuggu í Berlín síðasta vetur.
„Við fórum að átta okkur á því
hversu stóran þátt næturlíf ætti í
raun í okkar lífi og hvað það hefur
mótað okkur mikið. Við Brogan eig-
um bæði mjög góðar minningar frá
næturlífinu en einnig líka margar
slæmar. Við fórum að endurskoða
og endurmeta hvað felist í næturlífi
og af hverju við stundum það. Við
ræddum einnig hverju við vildum
breyta til þess að fá sem mest út úr
okkar næturlífi,“ segir Pétur og tek-
ur fram að sýningin sjálf hafi verið
unnin í samvinnu alls hópsins.
„Sýningin er unnin undir for-
merkjum samsköpunarleikhússins
þar sem eigin upplifanir og minn-
ingar leiða af sér persónulegar sýn-
ingar. Við vinnum út frá eigin
vandamálum tengdum næturlífi,
félagslegu óöryggi, fortíðarþrá og
ótta við að fullorðnast. Þannig má
segja að við höfum unnið þetta sem
eigindlega rannsókn auk þess sem
við tókum viðtöl við heimamenn til
að draga fram bæði það jákvæða og
neikvæða við næturlífið. Meðal þess
sem þar kom fram var að utanbæj-
armenn með læti, of mikil drykkja
og leiðindapúkar eru helstu orsakir
lélegs næturlífs.
Sýnin á leikhúsið breyttist í
starfsþjálfun hjá Schaubühne
Það góða við næturlífið er hins
vegar að þá gefst færi á mikilvægum
samskiptum við vini utan samhengis
hversdagsins sem veitt geta okkur
nýja innsýn. Auk þess er dansinn
sem fylgir næturlífinu það allra
besta í heiminum,“ segir Pétur og
tekur fram að sýningin fjalli þannig
um upplifanir af næturlífi og mik-
ilvægi þess í jafnt smábæjum sem
og stórborgum.
Eins og fyrr segir útskrifaðist
Pétur sem leikari frá LHÍ í fyrra, en
frá útskrift hefur hann fremur ein-
beitt sér að leikstjórn og haft nóg að
gera á því sviði. „Ástæða þess að við
Brogan fórum til Þýskalands í fyrra
var að mér bauðst að fara í starfs-
þjálfun sem leikstjóri við Schau-
bühne-samtímaleikhúsið í Berlín hjá
Agli Heiðari Antoni Pálssyni sem
var að setja upp Notizen aus der
Küche eftir Rodrigo García,“ segir
Pétur sem hlaut til þessa Leonardo
da Vinci-styrk, sem er hluti af
starfsmenntunaráætlun Evrópu-
sambandsins. „Þetta var sérlega
gefandi og skemmtileg vist. Óhætt
er að segja að sýn mín á leikhúsið
hafi breyst algjörlega við að búa úti í
Þýskalandi og sjá allt sem þar er í
boði. Mér finnst mjög spennandi að
geta komið beint heim til Egilsstaða
og leyft fólki að sjá áhrifavalda úr
leikhúsi sem eru á hvað fremsta
stigi í heiminum í dag að mínu
mati.“
Spurður hvað sé framundan hjá
honum segist Pétur vera á leiðinni
til höfuðborgarinnar með haustinu,
en hann verður aðstoðarleikstjóri
hjá Vigni Rafni Valþórssyni sem
leikstýra mun leikritinu Foxfinder
eftir Dawn King hjá Borgarleikhús-
inu fyrir áramót. „Síðan er ég að
fylgja eftir sýningunni Dansaðu fyr-
ir mig sem ég leikstýrði fyrr í vetur
og sýnd var á Dalvík, Akureyri og
Ólafsfirði. Það hefur verið tals-
verður áhugi á henni erlendis og
hefur henni m.a. verið boðið á leik-
listarhátíð í Ástralíu. Auk þess var
hún valin inn á leiklistarhátíðina
Lókal í haust,“ segir Pétur, en svo
skemmtilega vill til að þátttakendur
í sýningunni eru Brogan og Ármann
Einarsson, faðir Péturs. „Þetta var
skemmtilegur fjölskyldupakki. Við
Brogan bjuggum hjá pabba meðan
við unnum sýninguna og það var
ekki rætt um annað en dans allan
daginn.“
Þess má að lokum geta að allar
nánari upplýsingar um Næturlíf
sem og sýningaplan má sjá á vefn-
um tilraunaleikhus.wordpress.com.
Næstu sýningar verða á morgun,
fimmtudaginn 11. júlí, föstudaginn
12. júlí og laugardaginn 13. júlí, en
allar hefjast þær kl. 20. Ráðgert er
að sýna alls tíu sinnum og verður
lokasýningin 25. júlí. Panta má miða
með því að senda póst á netfangið
tilraunaleikhus@gmail.com.
Dansinn leikur stórt hlutverk
Tilraunaleikhús Austurlands frumsýnir samsköpunarsýninguna Næturlíf í Sláturhúsinu annað
kvöld kl. 20 Hópurinn kannar hvort grundvöllur sé fyrir rekstri atvinnuleikhúss á Egilsstöðum
Sviðslistafólkið Bjarni Rafn Kjartansson, Hjálmar Baldursson, Pétur Ármannsson og Brogan Davison fara öll með hlutverk í sýningunni en eru hver með sína listgrein í forgrunni.