Morgunblaðið - 27.07.2013, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2013
Útboð BOL-31
Útboð HA1-01
Hafnarlína 1 – 132 kV jarðstrengur
Jarðvinna og lagning
Ægissíða - Höfn
Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og
lagningu 132 kV háspennustrengs við Höfn í
Hornafirði samkvæmt útboðsgögnum
HA1-01.
Verkið felur í sér lagningu 132 kV háspennu-
strengs frá endastæðu á Ægissíðu, skammt
norðan Hafnar í Hornafirði, að díselstöð RA-
RIK við Krosseyjarveg á Höfn í Hornafirði,
alls um 1,5 km.
Helstu verkliðir eru:
Gröftur og fleygun lagnaskurðar, lagning
háspennustrengs og fjarskiptarörs,
söndun, lagning aðvörunarborða, fylling,
jöfnun og frágangur yfirborðs: 1,5 km.
Flutningur strengja á keflum frá Geithálsi
að verkstað.
Verkinu skal að fullu lokið 1. nóvember 2013.
Væntanlegum bjóðendum er bent á að
kynna sér grunnkröfur Landsnets til birgja
sem finna má á heimasíðu fyrirtækisins,
www.landsnet.is.
Útboðsgögn verða afhent í móttöku Lands-
nets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík, frá og með
mánudeginum 29. júlí 2013.
Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets,
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 mið-
vikudaginn 14. ágúst 2013 þar sem þau verða
opnuð, að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Til sölu
Litla Trévinnustofan
Húsgögn í barnaherbergið
Rangárþing eystra
óskar hér með eftir tilboðum í verkið
Gatnagerð á Hvolsvelli
2013
Verkið felst í gerð nýrrar götu sunnan
heilsugæslustöðvarinnar á Hvolsvelli.
Helstu magntölur eru:
Lengd götu 133 m
Malbikun götu og bílastæða 1.050 m²
Steyptar gangstéttar 250 m²
Áfangaskil eru 1. nóvember 2013.
Lokaskil eru 1. júní 2014.
Útboðsgögn verða afhent endurgjaldslaust
á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa
Rangárþings eystra, Ormsvelli 1, 860 Hvols-
velli, og á skrifstofu Mannvits hf, Grensásvegi
1, 108 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum
1. ágúst 2013.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Orms-
velli 1, 860 Hvolsvelli, fimmtudaginn 15. ágúst
kl. 11.00.
Mannvit,
Grensásvegi 1,
108 Reykjavík.
Félagslíf
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund sunnudag kl. 14.
Safnaðarheimili Grensáskirkju
Sunnudaginn 28. júlí
Samkoman kl. 17. Ræðumaður
Guðlaugur Gunnarsson.
Sálarrannsóknarfélag
Reykjavíkur
Síðumúla 31,
s. 588 6060
Miðlarnir, spámiðlarnir og
huglæknarnir Þórhallur Guð-
mundsson, Ólafur Hraundal
Thorarensen talnaspekingur
og spámiðill, Ragnhildur
Filippusdóttir, Garðar Björg-
vinsson, Michael-miðill,
Símon Bacon, Guðríður
Hannesdóttir kristalsheilari
og auk annarra, starfa hjá
félaginu og bjóða félags-
mönnum og öðrum upp á einka-
tíma. Upplýsingar um félagið,
starfsemi þess, rannsóknir og
útgáfur, einkatíma og tíma-
pantanir eru alla virka daga
ársins frá kl. 13-18. auk þess
oft á kvöldin og um helgar.
SRFR
Tilboð/útboð
15509 Ýmis lyf fyrir Landspítala og
fleiri heilbrigðisstofnanir (nr. 24)
Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala og fleiri heil-
brigðisstofnana, óska eftir tilboðum í lyf í eftir-
farandi ATC-flokkum: A04AD12, B01AD02,
B01AD04, B05AA01, J01DB01, J01DB04, L01XA02,
L01XA03, L01CX01, L01XX44. Nánari uppýsingar
eru í útboðsgögnum sem eru aðgengileg á
vefsvæði Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Tilboð verða opnuð 10. september 2013.
ÚTBOÐ
!"!#$ %"$
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir tilboðum í verkið:
Kjalarnes – endurnýjun
Stofnæðar hitaveitu og
háspennustrengja:
Verkið felst skurðgreftri meðfram gamla
Vesturlandsveginum, frá gatnamótum vega 4749 og
4560 og inn í Grundarhverfið á Kjalarnesi, fyrir 11kV.
háspennustrengi sem og stofnæð hitaveitu, innifalið í
verkinu er að fjarlægja eldri stofnæð hitaveitu.
Orkuveitan sér um að leggja háspennustrengi í jörð
ásamt því að rífa niður háspennulínu sem fyrir er.
Orkuveitan sér um tengingar við núverandi veitukerfi.
Innifalið í tilboði skal vera allt það sem til þarf til að
ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum
ORV 2013/08.
Helstu magntölur í verkinu eru:
!
Útboðsverkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum
ORV 2013/08.
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu á vefsíðu
Orkuveitunnar: http://www.or.is/um-or/utbod frá og
með miðvikudeginum 31.07.2013.
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi
1, 110 Reykjavík, fimmtudaginn 15. ágúst 2013 kl. 11:00.
ORV 2013/08 28.07.2013
Raðauglýsingar 569 1100
__________Útboð ___________
Faxaflóahafnir sf. óska eftir tilboðum í verkið:
Grandagarður 16
Lóðarframkvæmdir
Verkið felur m.a. í sér upprif á núverandi yfirborði,
endurnýjun á regnvatnslögnum, lagningu á
snjóbræðslu, gerð hellulagðrar gangstéttar ásamt
ýmsum öðrum yfirborðsfrágangi.
Umfang verks:
Framkvæmdasvæði 1000 m2
Regnvatnslagnir 150 m
Snjóbræðslulagnir 807 m
Fræsing 150 m2
Hellulögn: 405 m2
Malbikun 160 m2
Útboðsgögnin verða afhent hjá Hnit verkfræðistofu
h.f., Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 30. júlí n.k. Gjald fyrir prentuð
útboðsgögn er 3000 kr.
Tilboðum skal skila til Hnit verkfræðistofu h.f.,
Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík fyrir klukkan
11:00, þriðjudaginn 27. ágúst 2013. Tilboð verða
opnuð á sama stað og tíma.
Verklok eru 15. nóvember 2013.
Tilkynningar
15511 Eftirlit brunaviðvörunarkerfa
hjá LSH
Ríkiskaup, fyrir hönd LSH, óska eftir tilboðum í
reglubundið eftirlit með sjálfvirkum bruna-
viðvörunarkerfum fyrir byggingar spítalans á
höfuðborgarsvæðinu. Verkið skal unnið sem ein
óslitin heild í hverju húsi fyrir sig, og vinna skal
óslitið á verkstað þar til verkinu þar er lokið.
Verktaki skal fara yfir staðsetningu alls búnaðar í
kerfunum ásamt því að merkingar séu uppfærðar
með tilliti til breytinga. Prófa skal alla skynjara
ásamt öllum handboða. Allar bjöllur, stýringar
hurða og stýringar loftræsikerfa skal prófa. Fara
skal skipulega yfir allar stjórnstöðvar, varaorku-
gjafa og skjástöðvar samkvæmt reglum Mann-
virkjastofnunar um sjálfvirk brunaviðvörunarkerfi.
Búnað skal prófa kerfisbundið, þannig að einu
sinni á ári séu allir skynjarar og handboðar
prófaðir. Einnig skal farið yfir stjórnstöðvar, vara-
orkugjafa og skjástöðvar á 6 mánaða fresti.
Bjóðendum er boðið til kynningarfundar (vett-
vangsskoðunar) 15. ágúst 2013 kl. 09.00 og verða
þar mættir fulltrúi verkkaupa. Útboðsgögn eru
aðgengileg á vef ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Opnun tilboða 5.9. 2013 kl.11:00.
Útboðsgögn verða aðgengileg á vef ríkiskaupa
www.rikiskaup.is hinn 30.7. 2013.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is